Utan tíma- handan rúms
Blaðamaðurinn Jack stendur yfir moldum bróður síns, lögreglumanns sem svipti sig lífi og krotaði á dauðastundu þessi undarlegu orð á bílrúðu: „Utan tíma- handan rúms.“ Jack neitar að trúa því að bróðir hans hafi framið sjálfsmorð. Hann fer og rannsakar sjálfur sjálfsmorð lögreglumanna í starfi. Hann fær til liðs við sig bókasafnsvörðinn Laurie Prine. Sjálfsmorð bróðir hans tengist ljóði eftir Edgar Allan Poe, en annað lát lögreglumanns með sama hætti tengist öðru ljóði eftir sama höfund. Bæði ljóðin er í bók sem heitir Fall Usher ættarinnar. En margt annað um sjálfsmorð lögreglumanna í starfi leiðir Jack á slóð morðingja sem hann kallar Skáldið. Leitin að Skáldinu leiðir Jack í myrkviði sjúkra ofbeldismanna þar sem siðleysið ríkir og brátt verður atburðarásin honum ofviða.
Skáldið er stórkostleg lesning og skyldulesning fyrir alla sem hafa gaman af góðum glæpasögum. Myrk og æsispennandi bók sem engin má láta fram hjá sér fara.
Hákon Svavarsson sumarstarfsmaður Bæjarbókasafns Ölfuss.
