Árnahellir

13.5.2009

arnahellirÁrnahellir

Árnahellir er hellir í Selvogi í Ölfusi. Hann er á lista yfir friðlýstar náttúrumyndanir og var lokaður fyrir aðgengi almennings árið 1995 til verndar dropasteinsmyndunum í honum sem eru afar viðkvæmar. Hellirinn er nefndur eftir Árna B. Stefánssyni, augnlækni sem fann hellinn sumarið 1985. Árnahellir er í flokki örfárra hella á jörðinni sem skarta jafn glæsilegum og ósnortnum hraunmyndunum og er náttúrufyrirbæri á heimsvísu.

Árnahellir er einn glæsilegasti hellir jarðar.

Árnahellir er á um 20 m dýpi, breidd um 10 metrar og lágt til lofts. 

Lengd Árnahellis er um 150 m.

Dropsteinar Árnahellis verða seint taldir en líkja má þeim við frumskóg. Lengstu dropsteinar í Árnahelli eru rúmur metri og er þvermál þeirra um 7 cm. Sumir dropsteinanna eru þaktir gifsi að hluta, allt að 15 mm þykku. Lengstu hraunstráin um 60 cm. Loftið í hellinum er nær allt þakið hraunstráum, 5-10 mm í þvermál.

Framandi steintegundir hafa fundist í Árnahelli, m.a. 2 cm langur grænblár steinn, ópall


Risakrabbinn skoðaður

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica