Hellisheiði
Hellisheiði er sunnan Henglafjalla. Þar sem hallar niður í Ölfusá að austanverðu heitir Kambar. Heiðin er víðast eldbrunnin og hraunin eru að mestu vaxin mosa og lyngi. Þjóðvegurinn á milli Reykjavíkur og Suðurlands hefur löngum legið um hana. Forna leiðin lá að austan upp Kambana, yfir Hurðarás og um Hellisgarð fyrir ofan Kolviðarhól. Þaðan lá hún um Bolavelli austur um Húsmúla og norðanvert Svínahraun hjá Lyklafelli. Þessi leið sker núverandi þjóðbraut við sæluhúsið og beggja vegna vegar sjást vörðurnar með reglulegu millibili. Norðan þjóðvegarins sést stór þúst milli varðanna, þar er borg, hlaðið sæluhús sem byggt var í kring um 1930 og er nefnt Hellukofi. Vegurinn upp Kamba var hlaðinn upp á árunum 1879 - 1880 nálægt hinni fornu leið. Núverandi vegur var opnaður árið 1972.

