Hveradalir
Hveradalir eru dalir og hvammar sunnan og suðvestan í Reykjafelli vestan undir Hellisheiði og liggur þjóðvegurinn yfir heiðina um þá. Í efsta dalnum vestan við Eldborg var skíðastökkpallur og heitir þar Flengingarbrekka. Stærsti dalurinn heitir Stóridalur og ofan við mynni hans er Skíðaskálinn. Hverirnir sem dalirnir eru kenndir við eru í litlum hvammi fyrir ofan Skíðaskálann. Á móts við þá er allstór grasflöt Hveradalaflöt sem nær að Lakahnúkum. Þar var áningarstaður ferðamanna er þeir lögðu á heiðina eða komu af henni.
Skíðaskálinn í Hveradölum var reistur árið 1934 af Skíðafélagi Reykjavíkur og var hann í eigu þess til ársins 1971 þegar Reykjavíkurborg keypti hann. Skálinn brann til kaldra kola þann 21. janúar 1991. Nýr skáli í svipuðum stíl var þá reistur á grunni hins gamla. Hann var tekinn í notkun 4. april 1992 og formlega vígður 17. júní það ár.
Uppi í brekkunni fyrir ofan skálann eru tveir minnisvarðar. Annar þeirra er til minningar um Ludvig H. Müller (1879-1952) kaupmann er formaður Skíðafélags Reykjavíkur í 26 ár frá stofnun þess 1914 en hinn um Kristján Ó. Skagfjörð (1883-1951) kaupmann er var formaður þess næstu 11 árin. Í Hveradölum bjó á árunum milli 1930 og 1940 danskur maður A.C. Hoyer að nafni. Hafði hann þar greiðasölu. Þá hafði hann gufu- og leirböð og vísi að gróðúrhúsarækt líklega einn fyrsti maður hér á landi sem stundaði þann atvinnuveg.
Frá Hveradölum að Ölfusi liggur Lágaskarðsvegur um Stóradal, Hellur og Lágaskarð austan við Stóra-Meitil að Hjalla. Lágaskarðsvegur var fjölfarinn áður fyrr.

