Kambar
Kambar
Kambar er brött hlíðarbrekka austan í Hellisheiði vestan við Hveragerði. Hraunflóð hafa runnið þar niður nær 240 m háa hlíðina. Kambavegur þótti fyrrum allgræfralegur. Vegur var fyrst lagður um Kamba árið 1879 en núverandi vegur var opnaður 1972. Suður frá Kömbum er þverhnípt hamrabrún Núpafjall. Kambabrún er nyrst í því. Af brúninni er víð og fögur útsýn austur yfir Suðurlandsundirlendið og til Vestmannaeyja. Þar er hringsjá.

