Selvogsviti

13.5.2009

selvogsvitiSelvogsviti

Selvogsviti var byggður árið 1919 og endurbyggður árið 1931. Ljóshæð yfir sjó er 20 m.

Árið 1919 var 15 metra há járngrind reist á Selvogstanga. Á hana var látið 3,3 metra hátt ljóshús og 200°díoptrísk1000 mm linsa og gas-ljóstæki. Inn á milli hornstoða grindarinnar var komið fyrir steinsteyptri gashylkjageymslu en efst undir svölum var skýli utan um stiga upp í ljóshúsið. Vitinn var sömu gerðar og Stokksnesviti sem reistur var árið 1922. En eftir aðeins rúm 10 ár var vitinn orðinn svo ryðbrunninn að nauðsynlegt reyndist að byggja nýjan vita.

Árið 1930 var byggður 15,8 m hár vitaturn úr steinsteypu. Ári síðar voru sett á hann ljóshús, linsa og gasljóstæki járngrindarvitans og hinn nýi Selvogsviti tekinn í notkun. Árið 1987 voru veggir ljóshúss endurnýjaðir. Vitinn var raflýstur ári síðar og settur á hann radarsvari." Nú er ljós látið loga á vitanum af öryggisástæðum en radíósendir efst á honum er þó það sem mestu máli skiptir nú orðið.


Í vitanum hefur verið geymt blað með eftirfarandi texta;

"REGLUR um komur gesta í vita landsins:

Vitaverðum er heimilt að veita gestum leyfi til að skoða vitann á tímabilinu frá því hálf stund er liðin frá sólaruppkomu þar til hálfri stundu fyrir sólarlag.
Gestir skulu, áður en þeir fara inn í vitann, rita nöfn sín, og heimili í gestabók vitans. Eigi mega þar koma fleiri en 3 gestir í senn. Skulu þeir, áður en en þeir ganga upp í vitann, þurrka vandlega af fótum sér á gólfmottunni; bannað er að rita eða rispa nöfn eða annað á veggi og rúður. Gæta ber og þess, að enginn snerti við nokkru því, er til vitatækjanna heyrir. Gestirnir mega ekki vera í blautum utanyfirfatnaði né hafa með sér stafi, regnhlífar, svipur eða annað því um líkt inn í vitann: Bannað er að reykja tóbak, svo og að hrækja, nema í hrákadalla. Neftóbak má eigi hafa um hönd í ljóskerinu. Hundar og kettir mega ekki koma inn í vitann.
Ölvuðum mönnum og óhreinlega til fara er bannað að koma í vitann.
Einhver vitaþjónanna skal ávallt vera gestunum í vitanum og ber honum að koma kurteislega fram við þá og skýra þeim frá öllu, sem þeir óska um vitafærin, en um fram það er honum ekki heimilt að veita óviðkomandi mönnum neina vitneskju um rekstur vitans.
Hverjum gesti ber að greiða vitaþjóninum 25 aura fyrir ómak hans.
Í stjórnarráði Íslands 3 maí 1910 - Björn Jónsson (vitundarvottur; Jón Hermannsson)."


Selvogsviti var reistur fyrst framarlega á klöppunum, en síðar færður ofar, þangað sem hann stendur nú. Eldri vitinn var stálgrindarviti, en nýi vitinn er steyptur.

 


Risakrabbinn skoðaður

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica