Skötubót

18.5.2009

 

Skötubót
 

fjaranFjaran okkar austan við byggðina í Þorlákshöfn er í daglegu tali nefnd Skötubót.  Skötubótin er skemmtilegur staður fyrir útivist, ungir sem aldnir njóta þess að ganga og leika sér í þessari fallegu sandfjöru.  Hún er sólarströnd okkar Þorlákshafnarbúa og á heitum sumardögum er gaman að fara og baða sig í sjónum.

 

Á íbúaþinginu sem haldið var í Þorlákshöfn árið 2004 nefndu börnin í Þorlákshöfn m.a. fallega og skemmtilega fjöru sem einn af aðalkostum þess að búa í Þorlákshöfn. Þau vildu gjarnan gera ylströnd í Skötubót.

brim03                                                                  skotubotteikning

 

 


Risakrabbinn skoðaður

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica