Þorlákshöfn

Áhugaverðir staðir í Þorlákshöfn

Hægt er að finna staðsetningu eftirtalinna staða með því að leita upp númerið á korti fyrir neðan.

  1. Listaverkið Við sjónarrönd eftir Helga Gíslason myndhöggvara er staðsett fyrir framan Ráðhús Ölfuss.
  2. Skrúðgarður Þorlákshafnar. Skrúðgarðurinn er við Ráðhús Ölfuss. Þar er upplýsingaskilti þar sem finna má gamlar myndir af garðinum og áhugaverðar upplýsingar.
  3. Þorlákskirkju er opin á sumrin fyrir ferðamenn og áhugasama. Kirkjan var vígð árið 1985. Fyrir framan kirkjuna stendur minnisvarði um drukknaða. Minnisvarðinn var hannaður af Bjarna Jónssyni myndlistarmanne. Við kirkjuna er einnig að finna upplýsingaskilti með gömlum myndum og þaðan liggur stígur um svonefnt "hverfisverndarsvæði". Stígurinn liggur um svæði þar sem finna má tóftir og upplýsingaskilti sem rifja upp sögu verstöðvarinnar.
  4. Hverfisverndarsvæði. Svæði þar sem enn sjást tóftir sjóbúða, tómthúsa, garða og byrgja.  Þar er steinninn Latur sem áður þjónaði sem mið af sjó og brunnur sem reistur hefur verið upp. Járngrind kemur í veg fyrir að nokkur detti ofan í brunninn. Á nokkrum stöðum eru fræðsluskilti með gömlum myndum og fróðleik.
  5. Minnisvarði um Egil Thorarensen, hugsjóna- og athafnamann og einn af frumkvöðlum Þorlákshafnar.  Listaverkið er eftir Gunnstein Gíslason. Minnisvarðinn stendur við horn Egilsbrautar og Óseyrarbrautar.
  6. Við vinnslustöð Frostfisks er fræðsluskilti um örnefnið "Sýslu".
  7. Við Hafnarskeið er að finna fræðsluskilti um gamla Þorlákshafnarbæinn. Á skiltinu eru að finna fróðleik og gamlar ljósmyndir af bænum.
  8. Við fyrirtækið Fjölverk er að finna fræðsluskilti um gamla kirkjureitinn og gapastokkinn.
  9. Listaverkið Vor eftir Grím Marinó stendur fyrir framan vinnsluhús fyrirtækisins Hafnarnes/Ver, við Óseyrarbraut.
  10. Útsýnisstaður á hafnargarðinum.  Á útsýnisstaðnum var reist útsýnisskífa árið 2011. Þar er hægt að sjá nöfn fjalla og miða. Frá útsýnisstað liggur göngustígur út í Hafnarnesvita.
  11. Hafnarnesviti var byggður árið 1951 og stendur 11 metra yfir sjó.

 

Kort-Thorlakshofn    


Risakrabbinn skoðaður

Tungumál



Útlit síðu: