Foreldra- og kennarafélag Grunnskólans í Þorlákshöfn

8.2.2010

dagur_isl_tunguVið skólann er starfandi foreldrafélag. Tilgangur félagsins er að koma á lifandi sambandi milli skólans og heimila nemenda. Auk þess stuðlar félagið að framkvæmdum sem eru skólanum og nemendum hans til góðs en liggja e.t.v. í láginni vegna fjárskorts eða af öðrum ástæðum. Markmið félagsins er einnig að afla foreldrum/forráðamönnum nemenda betri þekkingar og skilnings á þeirri vinnu sem af nemendum er krafist innan skólans og hvernig árangri verði best náð. Til að ná þessum markmiðum er ætlunin m.a. að halda fræðslufundi um uppeldismál, aðstoða nemendur við félagsstörf og vera vettvangur umræðna um ýmsar þarfir skólans er snerta búnað innanhúss og utan.

Stjórn Foreldra-og kennarafélagsins skipa:

Rebekka Ómarsdóttir formaður
Ragnheiður María Hannesdóttir gjaldkeri
Daðey Hannesdóttir
Ásta Margrét Grétarsdóttir
Svanhildur Helgadóttir
Hrönn Sverrisdóttir fulltrúi kennar


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál



Útlit síðu: