Árið 1994 ákváðu Landgræðslan og bæjaryfirvöld í Þorlákshöfn að reyna að hefta sandfok við innkeyrsluna til Þorlákshafnar. Voru menn það fyrirhyggjusamir, að samhliða uppgræðslu var ákveðið að gera tilraun með að móta fyrir golfvelli og rækta hann upp. Skemmst er frá því að segja, að tilraun þessi tókst mjög vel og nú er í Þorlákshöfn einn glæsilegasti 18 holu golfvöllur landsins.
Árið 1997 var Golfklúbbur Þorlákshafnar stofnaður. Með stórhug sveitarfélagsins og dugnaði golfmanna í Þorlákshöfn hefur tekist á mjög skömmum tíma að gera mjög góðan 18 holu golfvöll. Samhliða uppbyggingu vallarins hefur tekist að skapa góða þjónustuaðstöðu fyrir vallargesti. Á árinu 2003 var tekinn í notkun golfskáli sem gjörbreytti starfsaðstöðu og rekstri golfklúbbsins til hins betra.
Golfvöllurinn í Þorlákshöfn er svokallaður strandvöllur (e. Links) þar sem undirlagið er fyrst og fremst sandur. Þess vegna er völlurinn ávallt tilbúinn snemma til leiks á vorin. Völlurinn liggur meðfram sjávarkambi að hluta og skapar hann oft skjól fyrir vindi frá sjónum og gefur möguleika á golfspili í misjöfnum veðrum. Þægilegt er að ganga völlinn og liggja 1. og 10. braut vallarins frá golfskála.
Þorláksvöllur er einungis í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Stór – Reykjavíkursvæðinu.
Vefsíða golfklúbbsins er http://golfthor.is


