Hellarannsóknarfélag Íslands

9.2.2010

Stofnun félagsins

Arnarker07Hér er ætlunin að greina í fáeinum orðum frá því hvers vegna félag er til á Íslandi sem sérhæfir sig í rannsóknum á hellum og líkum fyrirbærum og hver sé saga þess.  Frá fyrstu tíð hafa hellar verið þekktir hér á landi og er þeirra getið í gömlum ritum.  Aðdragandi að stofnun félagsins er skammur og er þess helst að geta að um 1982 var orðin til hópur manna sem gerði sér far um að skoða hella og var hellaskoðun þeirra helsta áhugamál.  Fram til ársins 1989 var þessi hópur við sína iðju og fór lítið fyrir þeim.  Snemma árs 1989 barst forsvarsmönnum hópsins bréf eftir krókaleiðum sem innihélt boð um að koma til Tékkóslóvakíu þáverandi og skoða hella þar í skiptum fyrir heimboð Tékkana hingað til lands en jafnframt var þess getið að til stæði að halda alþjóðlega ráðstefnu um hellafræði í Ungverjalandi í ágúst sama ár.  Tékkarnir vildu að Íslendingarnir kæmu sér til Búdapest á ráðstefnuna, sætu hana og færu í framhaldi af því til Tékkóslóvakíu á vit hella og ævintýra.  Það varð úr og var sú ferð ógleymanleg þeim sem hana fóru.  Þegar heim var komið voru menn fullir eldmóðs og sáu að samtök eða klúbbar hellamanna voru forsenda fyrir góðu og árangursríku samstarfi.  þegar var hafinn undirbúningur þes að  stofnun viðlíka félags hér á landi og var sent bréf til allra sem voru vænlegir þátttakendur.  Árangurinn lét ekki á sér standa og þann 25. nóvember 1989 voru saman komnir nærri þrír tugir manna og kvenna sem stofnuðu félagið.

Næstu atburðir í starfi félagsins voru að mestu ferðir og frekari rannsóknir á íslenskum hellum og samantekt gagna um þá auk öflun nýrra.  Framan af var boðið til funda með fréttabréfi og voru haldnir fundir með óreglulegu millibili, gjarnan á nokkurra mánaða fresti.  Fréttabréf var jafnan gefið út, allt að nokkrum sinnum á ári.  Þegar árin tóku að líða var það félaginu nokkuð dýrt að senda fréttabréf mjög ört og fór því að halla undan færi í fréttabréfaútgáfunni.  með tilkomu Internets lagðist fréttabréfaútgáfan af en enn eru send fréttabréf til manna, einu sinni til tvisvar á ári.

Árið 1995 urðu nokkur tímamót í starfi félagsins en þá var gerður samningur við Ferðafélag Íslands um aðstöðu Hellarannsóknarfélagsins í Mörkinni - í húsi F.Í.  Hefur þar verið haldinn fundur fjórða mánudag hvers mánaðar og er ekki sérstaklega boðað til hans.  Venjulega er fastur kjarni manna sem mætir en alltaf slæðast inn einhverjir nýir en segja má að nýgengi hellaáhugans sé ekki mikið og að jafnaði geinast um eitt til tvö tilfelli á ári!

Hellarannsóknarfélagið hefur frá fyrstu tíð gefið út tímaritið Surt.  Surtur er helgaður hellum og hellarannsóknum og hafa komið út sjö tölublöð frá stofnun félagsins.  Í Surti hefur safnast saman fróðleikur úr ýmsum áttum.

Heimild:  Vefur Hellarannsóknarfélags Íslands

Heimasíða Hellarannsóknarfélags Íslands


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál



Útlit síðu: