Knattspyrnufélagið Ægir

9.2.2010

 Knattspyrnufélagið Ægir

kn_aegirUm mitt ár 1987 hittust nokkrir aðilar frá strandbæjunum Eyrarbakka, Stokkseyri og Þorlákshöfn.  Tilefni fundarins var hugsanleg stofnun knattspyrnufélags en knattspyrna á þessum stöðum hafði legið niðri um tíma.

Ákveðið var á þessum fundi að halda málinu áfram og stefna á stofnfund þá um haustið.  Það gekk eftir og Knattspyrnufélagið Ægir varð til þann 6. desember 1987.  Árið 1988 vorum við í fyrsta skipti með meistaraflokk í 4. deild og enduðum við í 7. sæti að móti loknu.

Þeir sem komu að stofnun félagsins voru þeir Magnús Skúlason og Jón Eiríksson frá Eyrarbakka, Jóhann Þórðarson, Marteinn Arilíusson og Óskar Arilíusson frá Stokkseyri, Ellert Hreinsson, Jóhannes Guðmundsson og Ármann Sigurðsson frá Þorlákshöfn.  Stokkseyringar ákváðu síðan ári seinna að hætta samstarfinu.  Samstarfið á milli bæjanna hefur gengið vel en síðan Eyrarbakki varð hluti af Árborg hefur smá saman dregið úr starfseminni á Eyrarbakka og er félagið nú alfarið undir stjórn Þorlákshafnarbúa.

Heimild:  vefur félagsins

Heimasíða Knattspyrnufélagsins Ægis

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica