Kvenfélag Þorlákshafnar

9.2.2010

 

Kvenfélag Þorlákshafnar

KvenfélagKvenfélag Þorlákshafnar er félagsskapur kvenna sem búsettar eru í Þorlákshöfn.

Markmið félagsins er að styrkja og efla félagskonur og að láta gott af sér leiða.

Kvenfélag Þorlákshafnar hefur starfað í rúm 40 ár. Á þessum tíma hefur félagið unnið að mörgum góðum málum fyrir samfélagið í Þorlákshöfn og gjafir frá
félaginu sjást víða. Má þar nefna altaristöfluna í Þorlákskirkju, hljóðkerfið í kirkjunni, loftdýnu í íþróttahúsi auk listaverka sem víða prýða stofnanir í bænum.

Kvenfélagið hefur í gegnum árin gefið í Líknarsjóð kirkjunnar fyrir jól og stutt við margvísleg önnur málefni.


Félagsfundir eru haldnir í Kíwanishúsinu fyrsta fimmtudag hvers mánaðar frá
október fram í maí.

Innan félagsins starfa hinar ýmsu nefndir, þær geta verið breytilegar á milli ára
en nú eru starfandi: ferðanefnd, menningar- og skemmtinefnd, kaffinefndir auk annara nefnda.


Með því að starfa saman að hinum ýmsu málum gefst konum kostur á að kynnast og þroskast í félagsstarfi með öðrum konum.
Við hvetjum þær konur sem hafa áhuga á að ganga í félagið að hafa samband við stjórn, en hana skipa:


Formaður: Sigrún Þorgilsdóttir, s. 483 3207, 867 5690


Ritari: Berglind Hallmarsdóttir, s. 587 4932, 895 8360

 
Gjaldkeri: Guðrún Ísfold, s. 861 3438


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica