Lionsklúbbur Þorlákshafnar

16.2.2010

 

Lions 

Lionsklúbbur Þorlákshafnar


 

Lions er stærsta alþjóðlega þjónustuhreyfing heims, stofnuð í Bandaríkjunum 1917. Í dag starfa um 1,3 milljónir Lionsfélaga, í 46.000 Lionsklúbbum í 202 löndum.

Lions á Íslandi

Fyrsti Lionsklúbbur á Íslandi var stofnaður í Reykjavík 14. Ágúst 1951. Í dag eru á Íslandi um 2400 félagar í 88 klúbbum, víðsvegar um landið.

 

Lionsklúbbur Þorlákshafnar

Lionsklúbbur Þorlákshafnar var stofnaður 27. maí árið 1975 og voru stofnfélagar 16.

Klúbburinn starfar að líknarmálum samkvæmt einkunnarorðum alþjóðahreyfingar Lions "Við leggjum lið".

Lögð er áhersla á vináttu félaganna og fjölskyldna þeirra. Vináttan er undistaða að starfi Lionsklúbba.

Lionsfélagar er tryggur vinahópur, sem stendur saman og styðja hvern annan. Í Lions eignast margir sína bestu vini.

Ítarlegri upplýsingar er að finna á heimasíðu Lionsklúbbs Þorlákshafnar.

Heimasíða Lionsklúbbs Þorlákshafnar

  

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál



Útlit síðu: