Söngfélag Þorlákshafnar
Söngfélag Þorlákshafnar var stofnað 19. okt. 1960.
Það var stofnað á sínum tíma af áhugasömu fólki hér í Þorlákshöfn og nágrenni, einkum fyrir tilstilli Ingimundar Guðjónssonar organista
og fyrsta söngstjóra félagsins.
Engin kirkja var þá á staðnum og því ekki hægt að stofna kirkjukór
og fátt var um samkomusali.
Æfingar fóru fram í mötuneyti Meitilsins fyrstu árin og þurfti að bera hljóðfæri heiman frá organistanum á hverja æfingu.
Áhuginn hefur verið gríðarlegur hjá þessu fólki
sem hafði sannarlega nóg að gera dags daglega,
en söngurinn og góður félagsskapur hefur þá veitt fólkinu hvíld
og lífsfyllingu að kvöldi dags, eins og hann gerir enn í dag
fyrir félagana sem sönginn stunda.
Söngfélagið hefur allar götur frá því kirkjustarf hófst hér í Þorlákshöfn séð um söng við kirkjulegar athafnir.
Messusöngur er í raun aðalviðfangsefni Söngfélagsins allan ársins hring, enda sungið við helgihald í þremur kirkjum, Þorlákskirkju, Hjallakirkju í Ölfusi og Strandarkirkju í Selvogi. Fyrir utan kirkjusönginn hefur félagið þó ávallt haft veraldlegan söng
á dagskránni eftir því sem tími hefur unnist til æfinga. Stundum hefur verið farið í söngferðalög um landið og reyndar einnig til útlanda.
Árið 1986 var farið til Noregs og árið 2002 til Ítalíu.
Allar ferðir Söngfélagsins hafa tekist afar vel og standa utanlandsferðirnar upp úr og eru ógleymanlegar þeim sem þátt tóku.
Oftast er fjöldi þeirra sem syngja hverju sinni á bilinu 20-30. Þetta er fólk á öllum aldri, þeir yngstu gjarnan um tvítugt
og þeir elstu sennilega á sjötugsaldri. Breiddin er því mikil en það hefur aldrei háð félagsstarfinu, einhvern veginn verður enginn aldursmunur til þegar kórsöngur er annars vegar.
Eins og áður kom fram var Ingimundur Guðjónsson fyrsti söngstjóri félagins og stjórnaði hann kórnum til dauðadags árið 1982 eða í 22 ár. Þá tók við í nokkur ár Hilmar Örn Agnarsson, þá Ari Agnarsson og 1989-1991 var Karl heitinn Sighvatsson hjá okkur. Hann hafði nýlokið við að spila hér við sjómannadagsmessu vorið 1991 þegar hann lést í hörmulegu bílslysi. Þá tók Hákon Leifsson við organistastarfinu í eitt ár. 1992-2002 var Róbert Darling söngstjóri og organisti, fyrir utan nokkurra mánaða námsleyfi, en þá leysti Ester Hjartardóttir hann af við orgelið. Árið 2002 og til 2004 tók Julian Isaacs við stöðu organista í Þorlákskirkju og stjórnaði kórnum.
Árið 2004 urðu kaflaskipti hjá Söngfélaginu. Kórinn ákvað að kljúfa sig frá kirkjustarfinu og einbeita sér að kórsöng. Róbert Darling tók aftur við kórstjórn og hefur stjórnað kórnum síðan.
Alltaf er pláss fyrir nýja söngfugla í kórnum og er best að kíkja á vefsíðu kórsins og hafa samband við einhverja í stjórn, eða kórstjóra ef áhugi er á að taka þátt í kórstarfinu.


