Tónlistarfélag Hveragerðis og Ölfuss
Stofnað 1971 og endurvakið 1988
Fjöldi félagsmanna: 40-50
Félagsgjöld: Ársgjald 1.500 kr.
(Innifalið aðgangsmiði á eina tónleika innan ársins).
Formaður
Anna Jórun Stefánsdóttir
Hveramörk 4
810 Hveragerði
Sími: 483 4594
Aðrir stjórnarmenn
Hlíf S. Arndal, gjaldkeri
Eyrún Ingibjartsdóttir, ritari
Sæmundur B. Ingibjartsson, meðstjórnandi
Hörður Friðþjófsson, meðstjórnandi
Markmið
Að efla og stuðla að tónmennt, sönglist, tónlistarfræðslu og áhuga á tónlist á félagssvæðinu.
Helstu verkefni félagsins eru:
1. Að halda tónleika. Reynt er að hafa þá sem fjölbreyttasta, bæði í hljóðfæraskipan og í verkefnavali, einsöngur / kórsöngur o.fl. Enn fremur er farin hópferð á Vínartónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í janúar á hverju ári.
2. Að vera framkvæmdaaðili að tónlistarhátíðinni „Bjartar sumarnætur“ sem haldnar eru árlega í Hveragerðiskirkju.
3. Flygilsöfnun. Í október 1996 var keyptur flygill að Steinwaygerð sem staðsettur er í kirkjunni sem er okkar tónleikahús. Verð flygilsins var um 4,7 miljónir. Eftirstöðvar kr. 3,5 miljónir erum við að greiða upp á 7 árum (3 ár eru liðin en eftir eru 4 mögur ár).

