Gestir og gangandi
Sveitarfélagið Ölfus er landstórt sveitarfélag, um 750
ferkílómetrar og er vestast í Árnessýslu. Íbúar eru í kringum 2000. Aðal atvinnugreinar eru fiskveiðar og vinnsla, verslun og þjónusta, landbúnaður og iðnaður. Margar góðar reiðleiðir eru í dreifbýlinu enda er mikil hrossarækt og hestamennska í Ölfusinu. Þorlákshöfn er þéttbýlisstaður sveitarfélagsins með um 1600 íbúa. Nafn sitt dregur Þorlákshöfn af Þorláki helga Skálholtsbiskupi (1133-1193).
Snemma hófst útræði frá Þorlákshöfn. Á vertíðum var oft róið á 20-30 áraskipum frá Þorlákshöfn og má því áætla að íbúarnir hafi verið um 3-400 yfir vertíðina. Þéttbýlið í Þorlákshöfn myndaðist um og upp úr miðri síðustu öld í kjölfar öflugrar uppbyggingar á vegum Meitilsins hf. Þá fjölgaði íbúum mikið eftir eldgosið í Heimaey.
Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein, sérstaklega í dreifbýli. Ýmsir gistimöguleikar eru fyrir hendi, veitingastaðir, kaffihús og boðið uppá hestaferðir. Víða er veiði í vötnum og í ósum Ölfusár. Rútur ganga frá Reykjavík til Þorlákshafnar. Við bæjarmörkin í Þorlákshöfn er 18 holu golfvöllur, í Ráðhúsi Ölfuss er kaffihús, bókasafn og upplýsingamiðstöð og í bænum eru fleiri veitingastaðir. Glæsileg íþróttaaðstaða er í Þorlákshöfn með nýrri sundlaug og við hana tjaldstæði.
