Sveitarfélagið Ölfus er vestast í Árnessýslu. Þorlákshöfn er þéttbýlisstaður sveitarfélagsins. Nafn sitt dregur Þorlákshöfn af Þorláki helga Skálholtsbiskupi (1133-1193) og fer tvennum sögum af tilkomu nafnsins. Önnur sagan segir að staðurinn hafi fengið þetta nafn eftir að Þorlákur biskup steig þar á land þegar hann kom frá biskupsvígslu árið 1178. Hin sagan segir að eigandi jarðarinnar hafi í sjávarháska heitið á Þorlák helga sér til liðsinnis og svo gefið Skálholti jörðina. Talið er að áður hafi jörðin heitið Elliðahöfn.
Útræði hefur alla tíð verið frá Þorlákshöfn enda er þar besti lendingarstaður á suðurströndinni frá náttúrunnar hendi og skammt í fengsæl fiskimið. Fram til loka 18. aldar var jörðin í eigu kirkjunnar en síðan í eigu ýmsra bænda fram til 1934 þegar Kaupfélag Árnesinga eignaðist hana. Meðan gert var út á áraskipum var ekki óalgengt að róið væri á 30-40 skipum frá Þorlákshöfn og hafa því íbúarnir verið um 3-400 yfir vertíðina og bjuggu þeir í byrgjum sem hlaðin voru úr torfi og steini.
Til eru áhugaverðar vefsíður með ýmislegt er tengist sögu eða hluta úr sögu Ölfuss.
Hér fyrir neðan koma tenglar á nokkrar vefsíður. Upplýsingar um fleiri síður sem hér ættu heima eru vel þegnar (sendist á netfangið barbara@olfus.is)
Skólaverkefni um Þorkelsgerði í Selvoginum. Unnið af Guðlaugu Einarsdóttur 2003
Um landgræðslu í Þorlákshöfn og næsta nágrenni. Unnið af Sigríði Guðnadóttur 2004
Upphaf þéttbýlis í Þorlákshöfn. Unnið af Sigríði Guðnadóttur http://www.ismennt.is/not/siggud/heimabaer/upphaf.htm 2003

