Strætóferðir

3.1.2012

Strætó á Suðurlandi

Hægt er að ferðast um Suðurland með strætó, allt frá Reykjavík og austur á Höfn í Hornafirði. Tímatöflur allra leiða eru aðgengilegar á vef Strætó og er þar einnig að finna reiknivél sem reiknar út fargjöld með tilliti til lengdar ferðar og mismunandi fargjaldaforma.

Hægt er að kaupa kort og farmiða á vef Strætó. Einnig er hægt að kaupa miða í vagninum eða á sölustöðum Strætó og á bæjarskrifstofu Ölfuss.

Farþegar geta kynnt sér ferðir vagnanna á rauntímakorti á vefnum http://www.straeto.is/. GPS-búnaður er um borð í vögnunum er því hægt að fylgjast með ferðum vagnanna.

LEIÐIR

Leið 51 Höfn » Skaftafell » Vík »Hvolsvöllur » Selfoss » Hveragerði » Mjódd

Leið 52 Reykjavík » Hveragerði » Selfoss » Hella » Hvolsvöllur » Landeyjahöfn

Leið 71 Hveragerði » Þorlákshöfn » Hveragerði

Leið 72 Selfoss » Borg » Laugarvatn

Leið 73 Selfoss » Flúðir

 Á sumum þessara leiða (72 og 73) þarf að bóka ferð með minnst tveggja tíma fyrirvara í síma 540 2700 og á leið 51 þarf að panta far milli Víkur og Hafnar fyrir kl. 18 daginn áður.


Ölfusið

Tungumál



Útlit síðu: