Í sveitarfélaginu eru starfandi ýmis félagasamtök sem ætíð eru opin fyrir nýjum félögum. Tónlistarstarfið er blómlegt og eru starfandi þrír kórar í Þorlákshöfn, Kirkjukórinn, Söngfélag Þorlákshafnar og Kyrjukórinn. Þá er einnig starfandi mjög öflu lúðrasveit, Lúðrasveit Þorlákshafnar auk mikils tónlistarstarfs tengt skóla og tónlistarskóla. Þá hefur Leikfélag Ölfuss starfað með miklum blóma frá því það var endurvakið í lok árs 2005.
Íþróttir eru stór hluti af daglegu lífi í Ölfusinu og voru ný og glæsileg íþróttamannvirki tekin í notkun í Þorlákshöfn sumarið 2008. Þar er að finna íþróttasvæði og þjónustuhús, úti- og innisundlaug heilsuræktaraðstöðu, líkamsræktarsal, sánaböð og góða íþróttavelli á útisvæði. Íþróttafélögin sem starfandi eru í Sveitarfélaginu Knattspyrnufélagið Ægir og Ungmennafélagið Þór ásamt fjölda undirfélaga.

