Lionsklúbbur Þorlákshafnar
Sagan
Lionsklúbbur Þorlákshafnar var stofnaður árið 1975 og voru stofnfélagar 16. Klúbburinn starfar að líknarmálum samkvæmt einkunnarorðum alþjóðahreyfingar Lions "Við leggjum lið".
Lkl Þorlákshafnar hefur lagt ríka áherslu á landgræðslu og eitt af fyrstu verkefnum klúbbsins var að hefjast handa við að græða upp Þorlákshafnarsandinn ofan við bæinn. Klúbburinn hafði frumkvæði að því að nota lúpínu við uppgræðsluna og þótti það mikil bjartsýni á þeim tíma. Árangur þessa starfs má sjá á lúpínubreiðunum meðfram þjóðveginum og víðar. "Skýjaborgir" er svæði vestan við gatnamót Eyrabakka- og Þorlákshafnarvegar, sem klúbburinn hefur verið að rækta upp á undanförnum áratugum. Þar má sjá fjöldan allan af trjáplöntum og stóra grasflöt. Vegagerðin hefur komið þar upp áningarstað með borði og bekkjum og þar fyrir ofan er fyrirtaks útsýnisstaður.
Rekstur
Lionsklúbbur Þorlákshafnar er rekinn með félagsgjöldum klúbbfélaganna en allt það fé sem safnað er í nafni Lionsklúbbins fer í verkefna- og líknarsjóði.
Klúbburinn hefur að fremsta megni styrkt mannúðar- og menningarverkefni á félagssvæðinu eins og barna og unglingastarf, björgunarsveitina, heilsugæsluna, einstaklinga sem hafa átt í erfiðleikum og fleira. Einnig styrkir klúbburinn verkefni á landsvísu og leggur fjármuni í alþjóðleg hjálparverkefni Lionshreyfingarinnar.
Fjáraflanir
Helstu fjáraflanir Lionsklúbbs Þorlákshafnar eru eins og árviss jólasveinaþjónusta þar sem klúbburinn aðstoðar jólasveinana í Geitafelli við að koma jólapökkunum til barnanna. Hreinsun rusls með fram Þorlákshafnarvegi, Þrengslavegi, til Hveragerðis og út að Óseyrarbrú. Þess má geta að ruslið sem hent er út um bílgluggana, eða á annan hátt, er vel á annað tonn ár hvert. Einnig má nefna sölu jóladagatala og sölu Rauðufjaðrarinnar þegar söfnun fer fram á landsvísu á vegum Lionshreyfingarinnar.
Félagsstarfið
Félagsstarfið utan fjáraflana er með ýmsum hætti og reynt er að hafa það bæði fræðandi og til skemmtunar. Félagsstarfið hefst í september og lýkur með stjórnarskiptum í maí, fundir eru tvisvar í mánuði, annan og fjórða hvern miðvikudag.
Fengnir eru fyrirlestrar frá félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa áhugavert efni til að koma á framfæri. Fyrirlestrar þessir eru bæði af veraldlegum og andlegum toga.
Farið er í heimsóknir til stofnana og fyrirtækja þar sem starfseminni er kynnst. Sem dæmi um fyrirtæki sem hafa verið heimsótt á sl. tveimur árum eru Plastmótun í Ölfusi, höfuðstöðvar og birgðafyrirtæki HAGA (áður Baugur), Orkuveita Reykjavíkur að Nesjavöllum og Siglingamálastofnun þar sem líkanið af nýju höfninni í Þorlákshöfn var sýnt í fullri virkni.
Til að rækta og létta andann eru ýmis stjórnunarnámskeið sótt í Lionsskólann, farið í leikhús, keilu, út að borða og fl.
Við félagar í Lionsklúbbi Þorlákshafnar tökum vel á móti þeim sem vilja fræðast frekar um starfsemi klúbbsins og vilja leggja okkur lið.

