Göngukort
Gönguleiðir í Þorlákshöfn.
Á völdum stöðum í Þorlákshöfn er búið að setja upp upplýsingaskilti þar sem greint er frá örnefnum er tengjast sögu staðarins. Um aldir var Þorlákshöfn ein mikilvægasta höfnin á Suðurlandi og komu menn af öllu Suðurlandi þangað á vertíð. Flestar minjar hinnar fornu verstöðvar eru horfnar en á litlu svæði sunnan við elsta hluta bæjarins, sér enn í gamlar tóftir verbúða, þurrkgarða, hákarlabyrgja og annað er tengist verstöðinni. Með skiltunum er reynt að gefa innsýn í söguna, útskýra tóftir og greina frá ýmsu sem löngu er horfið. Upplagt er að ganga á milli staða sem merktir eru sem áhugaverðir staðir á korti bæjarins og fræðast um söguna.
Skiltin eru fyrsti hluti verkefnis sem miðar að því að gera sögu staðarins sýnilega. Verkefnið hefur fengið styrk frá Menningarráði Suðurlands og Þjóðhátíðarsjóði.
Walking around Þorlákshöfn
Information panels have been set up in 12 locations in Þorlákshöfn. For centuries, Þorlákshöfn was one of the most important harbors in southern Iceland. Most relics from the old fishing station have yielded to new construction, but preserved in a small area south of the oldest part of town are old ruins which reveal the location of fishermen´s huts, fields for drying fish, shark shelters, farmsteads, and other sites associated with Þorlákshöfn´s histiorical fishery activities. These information panels are meant to give an insight into history and share knowledge about a long-vanished past. With this map and the numbered panels, it is easy to go on a nice, informing walk in Þorlákshöfn.
The panels represent the first part of a project which aims at making the town´s history visible. The project has received grants from the Southern Cultural Countcil and the Icelandic National Festival Fund.


