Tannstaðatangi, ármót Hvítár og Sogs og þekkt stórlaxsvæði með 2 stöngum. Það gefur á góðu sumri nokkuð af löxum en veiði sveiflast mjög milli ára. Sjóbirtingur veiðist þar einnig síðsumars og einnig bleikja í bland.
Laugabakkar, næst fyrir neðan Tannastaðatanga telst líklega vera Ölfusá og enn gætir tæra vatnsins úr Sogninu. Nokkrir laxar veiðast þarna á sumri hverju og mis mikið af sjóbirtingi. 2 stangir.
Ölfusá - Árbær. Ölfusá fyrir landi Árbæjar, 2 stangir og þarna veiðast nokkrir tugir laxar sumar hvert. Landeigendur nýta sjálfir.
Sogið, ein af frægustu laxveiðiám landsins og vatnsmesta bergvatnsáin. Sogið má þó muna sinn fífil fegri og hér áður var hún mun meiri veiðiá en gengur og gerist í dag. Sogið heldur þó vissum sess og þar eru þrátt fyrir allt að veiðast 200 - 300 laxar á sumri. Áin er seld í bútum og eru þekktustu veiðisvæðin kennd við Alviðru. Áin er afburða góð bleikjuveiðiá.
Varmá og Þorleifslækur. Varmá er í Ölfusinu og heitir neðst
Þorleifslækur. Áin liðast niður Sveitarfélagið Ölfus og sameinast
Ölfusá um það bil 6 km frá sjó. Varmá gengur gegn um
Hveragerði. Þar er Reykjafoss í ánni og lengra gengur fiskur ekki. Upp á Hveragerði um Hengilinn er eitt mesta úrkomusvæði landsins. Getur þar á heitum dögum gert svo mikla úrkomu að Varmá velti fram eins og aurvatn í leysingum. Sjaldan varir slíkt lengi. Vegna hveravatnsins er sameinast í Varmá er hún hlýjasta á landsins. Í Varmá er sjóbirtingur og bleikja. Lax er þar líka þegar líða tekur í sumar. Veiði hefst í Varmá á opnunardegi stangveiðinnar, 1. apríl.
Ölfusá - Hraun. Ölfusá er ein laxauðugasta veiðiá landsins og jafnframt er þar mikið af sjóbirtingi og bleikju. Neðst við Ölfusá er bærinn Hraun sem veiðistaðurinn er kenndur eftir. Hraun er eftirsóttur staður til silungsveiða en þar hefst veiðitímabilið 1. apríl.
Heimildir fengnar af ferðavefnum NAT.IS

