Reglur og lög (samþykktir)

20.1.2009

 

Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar.

1. gr.

Bæjarstjórn  Sveitarfélagsins Ölfuss er skipuð 7 sveitarstjórnarmönnum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

2. gr.

Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.

3. gr.

Bæjarstjórn  fer með stjórn Sveitarfélagsins Ölfuss samkvæmt  ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórn  með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins, að svo miklu leyti sem sveitarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

4. gr.

Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera í fyrirsvari fyrir það og vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa þess.

5. gr.

Bæjarstjórn  annast þau verkefni, sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum.

Þá getur bæjarstjórn ákveðið, að sveitarfélagið taki að sér verkefni, sem varðar íbúa sveitarfélagsins sérstaklega, enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

6. gr.

Meðal verkefna bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Ölfuss  er:

·        Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráðs og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla samþykktar þessarar. Kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga sveitarfélagsins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem vinna skal að endurskoðun hjá sveitarfélaginu.

·        Að setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.

·        Að stjórna fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja. skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga sbr. og  VI. kafla samþykktar þessarar.

·        Að ákveða stjórnkerfi sveitarfélagsins og ráða bæjarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.

 

II. KAFLI

Um fundarsköp bæjarstjórnar .

7. gr.

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi einu sinni í hverjum mánuði, síðasta  fimmtudag hvers mánaðar að Hafnarbergi 1, salur Versala.

Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.30.  Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra sveitarfélagsins og skylt er að halda aukafundi í bæjarstjórn af a.m.k. þriðjungur bæjarstjórnarmanna krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

8. gr.

Sá kjörinn fulltrúi sem á að baki lengstu setu í bæjarstjórn  kveður bæjarstjórnina saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum, eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.

Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í bæjarstjórn átt jafnlengi setu í bæjarstjórn fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1.mgr.

9. gr.

Bæjarstjóri  sveitarfélagsins, sbr. þó 14. gr., boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað, hafi  bæjarstjórn ekki gert það.

10. gr.

Íbúum sveitarfélagsins skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við að sem flestir íbúar sveitarfélagsins hafi greiðan aðgang að auglýsingunni.

Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórn ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti, svo sem dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði.

11. gr.

Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta bæjarstjórnar og skal dagskráin fylgja fundarboði.

Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka:

1.      Lögákveðnar kosningar s.s kosningar forseta  bæjarstjórnar og varaforseta, kosningar nefnda,  ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, svo og ráðningar bæjarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu.

2.      Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins, sbr. 49.gr. sveitarstjórnarlaga.

3.      Önnur mál, sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri og/eða forseti bæjarstjórnar ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarstjórnarmanna óskar, að tekin verði á dagskrá. Bæjarstjórnarmaður, sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar, skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna, sem bæjarstjóri telur nauðsynleg til að bæjarstjórnarmenn geti undirbúið sig fyrir fund. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta bæjarstjórnarfundar.

12. gr.

Bæjarstjóri  sveitarfélagsins skal hafa sent bæjarfulltrúum fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund.

13. gr.

Dagskrá bæjarstjórnar skal vera aðgengileg íbúum sveitarfélagsins þegar hún hefur verið samin, svo sem á auglýsingatöflu sveitarfélagsins, heimasíðu sveitarfélagsins, skrifstofu sveitarfélagsins á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem bæjarstjórn ákveður.

14. gr.

Bæjarstjóri sveitarfélagsins skal senda bæjarstjórnarmönnum fundarboð aukafundar í bæjarstjórn þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund.

15. gr.

Sá bæjarstjórnarmaður er boðar til fyrsta fundar skv. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum uns forseti bæjarstjórnar  hefur verið kjörinn.

Forseti bæjarstjórnar skal kjörinn til eins árs. Ef forseti bæjarstjórnar  nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórninni, skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný.

Sá er rétt kjörinn forseti bæjarstjórnar, sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórninni. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð, skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarstjórnarmenn fengið jafnmörg atkvæði, skal varpa hlutkesti, um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn oddviti bæjarstjórnar, sem fleiri atkvæði fær þó hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn, skal hlutkesti ráða kosningu.

Forseti bæjarstjórnar  stjórnar kjöri varaforseta bæjarstjórnar, og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3. mgr. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti.

Tilkynna skal kjör forseta bæjarstjórnar og varaforseta til félagsmálaráðuneytisins þegar að því loknu.

Sé enginn forseti bæjarstjórnar  á fundi, gegnir aldursforseti forsetastörfum, nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra.

Ef forseti bæjarstjórnar  deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa forseta bæjarstjórnar  í hans stað til loka kjörtímabils forseta.

16. gr.

Bæjarstjórn getur kosið tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarstjórnarmanna til eins árs í senn á sama fundi og forsetakosning fer fram. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórninni.

17. gr.

Bæjarstjórnarfund skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim, eftir því sem húsrúm leyfir.

Bæjarstjórnarfundur skal haldinn í húsnæði sem fullnægir ákvæðum byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks.

Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna sveitarfélagsins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur bæjarstjórn ákveðið, að bæjarstjórnarfundur, þar sem eingöngu er fjallað um slík mál, verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn.

Óheimilt er að skýra frá því, sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn.

 

18. gr.

Bæjarstjórnarfundur er lögmætur, ef meira en helmingur bæjarstjórnarmanna er mættur á fundinn og getur bæjarstjórn enga bindandi ályktun gert nema bæjarstjórnarfundur sé lögmætur.

19. gr.

Forseti bæjarstjórnar stýrir fundi hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar. Forseti bæjarstjórnar  úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti bæjarstjórnar  sér um, að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarstjórnarmönnum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði, getur forseti  vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta bæjarstjórnar þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á sveitarstjórnarfundum.

20. gr.

Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð, sem það eru á dagskrá, nema forseti bæjarstjórnar  eða bæjarstjórnar ákveði annað.

Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál, sem ekki hefur verið á dagskrá, ef 2/3 viðstaddra bæjarstjórnarmanna samþykkja slíkt afbrigði.

21. gr.

Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:

Fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.

Ársreikninga sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja.

Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár, sem njóta eiga staðfestingu ráðherra.

Áætlanir fyrir sveitarfélagið, sem gilda eiga til lengri tíma, s.s. þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.

Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.

22. gr.

Bæjarstjórnarmanni er skylt að sækja bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi.

Sé bæjarstjórnarmaður forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra sveitarfélagsins sem boðar þá varamenn hans á fund. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Þar sem bæjarstjórn hefur verið kjörin bundinni hlutfallskosningu taka varamenn sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast.

Bæjarstjóri sveitarfélags skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt, en ekki hefur hann atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn bæjarstjórnarmaður.

Bæjarstjórn getur heimilað að maður utan bæjarstjórnar kveði sér hljóðs á bæjarstjórnarfundi.

23. gr.

Bæjarstjórnarmanni ber að víkja sæti við umræður og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.

Bæjarstjórnarmenn eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnarinnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.

Bæjarstjórnarmenn sem jafnframt eru starfsmenn bæjarfélagsins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórn fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra sveitarfélagsins né þegar bæjarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélagsins.

Bæjarstjórnarmanni sem veit hæfi sitt orka tvímælis, ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarstjórnarmanni er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða, að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarstjórnarmanna sé vanhæfur. Bæjarstjórnarmaður sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.

Bæjarstjórnarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.

24. gr.

Bæjarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðarétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarstjórnarmaður, sem taka vill til máls, skal óska heimildar forseta bæjarstjórnar . Að jafnaði skulu bæjarstjórnarmenn taka til máls í þeirri röð, sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu, ef um er að ræða bæjarstjóra sveitarfélagsins, framsögumann í máli eða bæjarstjórnarmann sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarstjórnarmenn kvatt sér hljóðs samtímis, ákveður forseti bæjarstjórnar, í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarstjórnarmaður skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti bæjarstjórnar  leyfi annað.

 

25.gr.

Bæjarstjórnarmaður skal beina máli sínu til forseta bæjarstjórnar  eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð nefndar, ráðs eða stjórnar skal bæjarstjórnarmaður taka fram, hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða.

Bæjarstjórnarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarstjórnarmanni að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta bæjarstjórnar. Bæjarstjóri sveitarfélagsins, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls.

Ekki má bæjarstjórnarmaður lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta bæjarstjórnar.

26.gr.

Beri bæjarstjórnarmaður aðra menn brigslum, skal forseti bæjarstjórnar  víta hann. Forseti bæjarstjórnar  getur lagt til við bæjarstjórn, að bæjarstjórnarmaður, sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi, verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist bæjarstjórnarmaður ekki úrskurði forseta bæjarstjórnar  eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi, skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi og slíta fundi, ef nauðsyn krefur.

27.gr.

Telji forseti bæjarstjórnar  umræður dragast úr hófi fram, getur hann lagt fram dagskrártillögu um, að ræðutími hvers bæjarstjórnarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarstjórnarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo, að hún standi skemur en tvær klukkustundir, ef einhver bæjarstjórnarmaður kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar.

28.gr.

Bæjarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál, sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar, ef forseti  óskar. Forseti bæjarstjórnar  ákveður, í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu.

29.gr.

Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu nefndar, ráðs eða stjórnar eða bæjarstjóra sveitarfélagsins.  Máli, sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða, verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls, nema um sé að ræða mál, sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma.

30.gr.

Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti bæjarstjórnar  biður bæjarstjórnarmenn sem samþykkja mál, að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti  mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.

Ef mál er svo vaxið, að forseti bæjarstjórnar  telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það, skýrir hann frá því, að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.

Forseti bæjarstjórnar  getur ákveðið, að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall, ef a.m.k. þriðjungur bæjarstjórnarmanna óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti, hvaða bæjarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarstjórnarmaður, þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með eða móti eða tekur fram, að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu, ef bæjarstjórnarmaður óskar og bæjarstjórn samþykkir.

Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.

31.gr.

Á bæjarstjórnarfundi ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.

Ef jöfn atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.

Kosningar, sem fram fara í bæjarstjórn, skulu vera hlutfallskosningar skv. d´Hondts reglu sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til bæjarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör.

32.gr.

Bæjarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók bæjarstjórnar. Í fundargerð skal getið, hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál, sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál eru afgreidd. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda, nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar, um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða.

Mál, sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál.

Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað.

Bæjarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert skal bóka í gerðabók bæjarstjórnarinnar númer fundar, hver skráði, hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir bæjarstjórnarmenn skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal forseti bæjarstjórnar  og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu.

Bæjarstjórnarmaður, sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð, getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði.

Bæjarstjórn getur ákveðið, að umræður á bæjarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið, skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur.

 

IV. KAFLI

Um réttindi og skyldur bæjarstjórnarmanns.

33. gr.

Bæjarstjórnarmanni er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli.

Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráði eða stjórn á vegum bæjarfélagsins. Hver bæjarstjórnarmaður er skyldugur til að taka að sér þau störf, sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar, svo sem oddvitastörf. Þó getur sá, sem verið hefur oddviti eitt kjörtímabil eða lengur eða nefnd sama tímabil, skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.

34. gr.

Bæjarstjórnarmanni ber að gegna störfum sínum í bæjarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna sveitarfélagsins, en í störfum sínum er bæjarstjórnarmaður einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.

35.gr.

Bæjarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari.

Bæjarstjórnarmanni er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál, sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða s.s. fjárhagsáætlun, eða ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu, ef minna en helmingur bæjarstjórnarmanna tekur þátt í atkvæðagreiðslunni.

Bæjarstjórnarmaður á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar enda tilkynni hann það bæjarstjóra sveitarfélags skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.

36. gr.

Bæjarstjórnarmaður á aðgang að bókum og skjölum sveitarfélagsins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.

37.gr.

Bæjarstjórnarmaður á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í sveitarstjórn.

38. gr.

Bæjarstjórnarmaður skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst áfram eftir að bæjarstjórnarmaður lætur af þeim störfum.

39. gr.

Nú telur bæjarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórninni án óhæfilegs álags og getur bæjarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Missi fulltrúi í bæjarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.

Nú er bæjarstjórnarmaður af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal bæjarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.

40.gr.

Bæjarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis bæjarstjórnarmanns og fundarstaðar bæjarstjórnar, getur bæjarstjórnin auk þess ákveðið að hann skuli fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist bæjarstjórnarmaður á hendur ferð á vegum bæjarstjórnar samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar á hann rétt á greiðslu ferða- og dvalarkostnaðar.

Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.

41. gr.

Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig, að bæjarstjórnarmaður eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.

42. gr.

Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarstjórnarmanna gilda einnig um varamenn, sem taka sæti í bæjarstjórninni.

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica