Fasteignagjöld
Fasteignagjöld eru lögð á í byrjun hvers árs.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá Sveitarfélaginu Ölfusi
Reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum hjá Sveitarfélaginu Ölfusi 2009.
1. gr.
Tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Sveitarfélaginu Ölfusi er veittur afsláttur af fasteignaskatti, samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Ölfuss ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
2. gr.
Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur í Sveitarfélaginu Ölfusi sem búa í eigin íbúð og:
a) eru 67 ára á árinu eða eldri eða
b) hafa verið úrskurðaðir öryrkjar fyrir 1. janúar 2008.
Afsláttur nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í.
3. gr.
Tekjumörk eru sem hér segir:
| Tekjur einstaklinga árið 2009 | Tekjur hjóna árið 2009 | Niðurfelling |
| Allt að 1.973.000 | Allt að 2.763.000 | 100% |
| Milli 1.973.001 – 2.263.000 | Milli 2763.001 – 3.150.000 | 75% |
| Milli 2.263.001 – 2.634.000 | Milli 3.150.001 – 3.634.000 | 50% |
| Milli 2.634.001 – 3.021.000 | Milli 3.634.001 – 4.171.000 | 25% |
III. Breyting á högum umsækjenda.
4. gr.
Hafi orðið veruleg breyting á högum umsækjanda er heimilt að víkja frá 2. gr. þessara reglna varðandi búsetu í íbúð og viðmið um tekjumörk sl. árs.
Hér er einkum átt við sérstök tilvik, s.s.:
a) þegar maki hefur fallið frá á árinu og tekjur lækkað verulega.
b) ef um skyndilega örorku er að ræða sem hefur veruleg áhrif til lækkunar tekna.
c) einnig er heimilt að lækka fasteignaskatt í allt að 3 ár hjá þeim sem flutt hafa úr eigin íbúð á öldrunarstofnun en eiga áfram íbúð, sem ekki er leigð út eða nýtt af skyldmennum.
IV. Umsókn.
5. gr.
Afsláttur samkvæmt 3. gr. til ellilífeyrisþega skal reikna við álagningu og er birtur á álagningarseðli.
Örorkulífeyrisþegar fá afslátt samkvæmt. 3. grein gegn framvísun örorkuskírteinis.
6. gr.
Bæjarstjórn Ölfuss endurskoðar tekjumörk í desember ár hvert.
Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

