Fjármál og rekstur.
Bæjarskrifstofur Ölfuss sjá um innheimtu gjalda samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga og innheimtu á ýmsum reikingum og gjöldum s.s. leikskólagjöldum. Þá sjá bæjarskrifstofur um greiðslur á öllum reikningum og kröfum á sveitarfélagið og fyrirtækjum.
Bæjarskrifstofurnar eru staðsettar að Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn. Afgreiðslan er opin frá kl. 9:00 – 12:00 og frá kl. 13:00 – 16:00 alla virka daga.
Hægt er að fá frekari upplýsingar í síma 480-3800 eða með tölvupósti á póstfangið olfus@olfus.is
Sveitarfélagið Ölfus hefur gert samning við Intrum Justia um milli- og lögfræðiinnheimtu. Íbúar sem lenda í vanskilum eru hvattir til að semja um þau sem fyrst til að forðast megi óþarfa innheimtukostnað.
Meginhlutverk stjórnsýslusviðs er fjármálastjórn bæjarsjóðs og stofnana hans, ásamt því að annast yfirumsjón starfsmannamála.

