Drög að samþykktum um hundahald

24.6.2011

 

Samþykkt um hundahald í Sveitarfélaginu Ölfusi.

1. grein.

Bann við hundahaldi.

Hundahald er bannað í  Sveitarfélaginu Ölfusi að undanteknum þarfahundum á lögbýlum og sérþjálfuðum leiðsögu- eða hjálparhundum sem þeir einstaklingar þurfa á að halda sem eru blindir eða fatlaðir á annan máta

Sveitarstjórn Ölfuss er heimilt að veita einstaklingum búsettum í sveitarfélaginu undanþágu til hundahalds að uppfylltum skilyrðum í samþykkt þessari. Óheimilt er að veita undanþágu til hundahalds í fjölbýlishúsum nema fylgt sé ákvæðum 33. gr. a - 33. gr. c í lögum nr. 26/1994, um fjöleignarhús, sbr. lög nr. 40/2011.

2. grein.

Undanþága frá banni við hundahaldi.

Bæjarstjórn er þó heimilt að veita lögráða einstaklingum, sem lögheimili hafa í sveitarfélaginu eða hafa þar fasta eða reglulega dvöl, undanþágu frá banninu. Undanþága er þá bundin lögheimili eða dvalarstað. Undanþága til hundahalds er bundin nafni og lögheimili einstaklings og einskorðast við tilgreindan hund. Undanþágan er ekki framseljanleg.

 Hundurinn skal skráður á skrifstofu sveitarfélagsins og þar fær eigandi hundsins afhenta númeraða plötu sem jafnan skal vera í ól um háls hundsins. Skylt er að sækja um skráningu hunds innan tveggja vikna frá því að hundur er tekinn á heimili. Hvolpa skal skrá eigi síðar en þegar þeir ná þriggja mánaða aldri. Á heimili eða dvalarstað megi aldrei dvelja fleiri skráðir hundar en þrír. Ákvæði um fjölda hunda á ekki við um dreifbýli. Bætist við hvolpar á heimili eða dvalarstað beri eiganda að gera ráðstafanir innan þriggja mánaða aldurs þeirra til þess að tryggja að skráningar séu innan settra marka.

Árlega skal bæjarsjóði greitt leyfisgjald fyrir þá hunda sem undanþágan er veitt fyrir. Gjaldið skal ákveðið af bæjarstjórn. Við ákvörðun gjaldsins skal tekið mið af þeim kostnaði sem leiðir af framkvæmd þessarar samþykktar. Gjaldið skal í fyrsta sinn greitt við skráningu hunds og síðan árlega. Gjalddagi er 1. maí ár hvert. Í gjaldskrá skal einnig ákveðið handsömunargjald. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu,  greiðslu leyfisgjalds og áfallins kostnaðar.

Hundar sem eru notaðir við búrekstur á lögbýlum eru undanþegnir þessu gjaldi svo og hundar sem notaðir eru til leitar og björgunarstarfa, ásamt sérþjálfuðum leiðsögu- eða hjálparhundum sem þeir einstaklingar þurfa á að halda sem eru blindir eða fatlaðir á annan máta.  Hafi gjaldið ekki verið greitt innan mánaðar frá gjalddaga er heimilt að afturkalla leyfið svo og ef hreinsun hunda er ekki framkvæmd eftir settum reglum.

Sveitarfélagið Ölfus ábyrgðartryggir alla skráða hunda sem greitt er leyfisgjald af. Þeir hundaeigendur sem undanþegnir eru leyfisgjaldi ábyrgðartryggi  hunda sína hjá viðurkenndu tryggingarfélagi. Við hundahreinsun skulu hundaeigendur sem undanþegnir eru leyfisgjaldi  leggja fram kvittun frá tryggingarfélaginu sem sýnir að trygging sé að fullu í gildi.

 

Undanþága til hundahalds er háð eftirfarandi skilyrðum.

 

1.       Að hundurinn gangi aldrei laus á almannafæri innan skipulags þéttbýlis eða samþykktum frístundabyggðum, heldur sé í fylgd með einhverjum sem hefur fullt vald yfir honum.

2.       Að umráðamaður hunds hreinsi tryggilega og án tafar upp saur sem hundurinn skilur eftir sig á almannafæri í skipulögðu þéttbýli eða samþykktum frístundabyggðum.

3.       Að hundurinn fari ekki inn í skólahús, opinberar byggingar, matvöruverslanir eða aðra þá staði sem taldir eru upp í fylgiskjali 3 við reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti.  Heimilt er þó að hleypa hjálparhundum inn á viðkomandi staði.

4.       Að hundurinn raski ekki ró íbúa sveitarfélagsins og sé hvorki þeim, né þeim sem um sveitarfélagið fara til óþæginda, með tilliti til hávaða, óþrifnaðar, eyðileggingar verðmæta, slysahættu eða ógnunar.

5.       Að hundurinn sé ormahreinsaður.

6.       Að meðferð hundsins sé í samræmi við reglugerð nr. 1077/2004 um aðbúnað, umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni.

 

Sveitarstjórn er heimilt hvenær sem er að fella niður undanþágu einstaks hunds eða allar undanþágur, telji hún það nauðsynlegt í þágu hollustuhátta og öryggismarkmiða.

Fyrirhugaða niðurfellingu undanþágu til hundahalds skal tilkynna ábyrgðaraðila bréflega. Skulu honum gefnir sjö dagar til að andmæla niðurfellingunni skriflega. Að öðru leiti fer ákvarðanataka um niðurfellingu undanþágu samkvæmt málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga nr. 37/1993

Hundaeiganda ber að hlíta að öðru leyti lögum og reglum er hundahald varðar þar á meðal reglum um árlega hreinsun hunda og greiðslu leyfisgjalds.

3. grein.

Eftirlit með hundahaldi.

Fyrir hönd bæjarstjórnar annast eftirlitsmaður á hennar vegum framkvæmd og eftirlit með hundahaldi í sveitarfélaginu. Eftirlitsmaður getur leitað aðstoðar lögreglu þegar þörf krefur en að öðru leyti starfar eftirlitsmaður í umboði Heilbrigðisnefndar Suðurlands.

Ef eigandi eða umráðamaður hunds vanrækir skyldur sínar eða brýtur ítrekað gegn ákvæðum samþykktar þessarar eða öðrum reglum sem gilda um hundahald getur bæjarstjórn bannað viðkomandi að halda hund og látið fjarlægja hundinn.

4. grein.

Vanræksla á skráningu hunda.

Vanræki hundahaldari að skrá hund þrátt fyrir ítrekun þar um hefur eftirlitsmaður heimild til að láta sækja hundinn á heimili hundahaldara og láta lóga hundinum. Vanræki hundahaldari að skrá hund varðar það sekt skv. gjaldskrá bæjarins.  Leita skal atbeina lögreglu sé þess þörf.

5. grein.

Fjöldi hunda á heimili.

Óheimilt er að halda fleiri en þrjá hunda  eldri en 3 mánaða á sama heimili. Ákvæði um fjölda hunda á ekki við um lögbýli.

6. grein.

Hundaræktun.

Um hundaræktun gildir reglugerð nr. 1077/2004 um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni.

7. grein.

Bannaðar hundategundir.

Óheimilt er að halda hunda af eftirtöldum tegundum:

a. Pit Bull Terrier/Staffordshire Bull Terrier.
b. Fila Brasileiro.

c. Toso Inu.

d. Dogo Argentino.

e. Blendinga af ofangreindum tegundum.

f. Blendinga af úlfum og hundum.
g. Öðrum tegundum sem hættulegar eða óæskilegar eru að fenginni reynslu eða mati sérfróðra aðila, s.s. dýralæknis eða viðurkennds hundaþjálfara.

8. grein

Skammtímaheimsóknir.

Hundar sem ekki eru skráðir í Ölfusi mega ekki dveljast þar lengur en í þrjá mánuði nema með leyfi sveitarfélagsins og að fengnu samþykki samkvæmt 2. gr. sé um fjöleignarhús að ræða.  Tilkynning um tímabundna dvöl skal berast eigi síðar en fyrsta virkan dag sem hundinum er ætlað að dvelja í sveitarfélaginu.
Framvísa skal  leyfi til hundahalds frá heimasveitarfélagi hundsins eigi það við.

Um skammtímaheimsóknir hunda í húsum gildir ákvörðun eigenda einbýlis- og fjöleignarhúsa hverju sinni og/eða reglur viðkomandi húsfélags.


9. grein

Hundaskrá, tilkynningarskylda eiganda.

Upplýsingar um hunda skal skrá á skrifstofu bæjarfélagsins.  Skrá skal heiti, aldur, kyn, tegund, litarhátt, númer örmerkis og önnur einkenni hunds. Þar skal einnig skrá nafn og heimilisfang leyfishafa. Skila skal inn vottorði um ormahreinsun.

Eiganda hunds ber að tilkynna sveitarfélaginu  um aðsetursskipti. Einnig skal hann tilkynna sveitarfélaginu ef hundurinn drepst eða er fluttur úr lögsagnarumdæminu. Eigendaskipti skal tilkynna með sama hætti.

10. grein

Ormahreinsun, örmerking og merkiplötur.

Skylt er að ormahreinsa hunda á hverju ári. Skal eigandi hunds skila vottorði dýralæknis um ormahreinsun hundsins til  skrifstofu bæjarfélagsins,  fyrir 31. desember ár hvert.

Hundur sem sótt er um leyfi fyrir skal örmerktur af dýralækni samkvæmt stöðlum Alþjóða-staðlaskrárráðsins, ISO 11784 eða 11785. Nr. 321 14. mars 2011 og skal  það númer skráð við skráningu hunds.

Hundar skulu ávallt bera ól með plötu um hálsinn, sbr. 1. mgr. 3. gr. Á plötuna skal greypa skráningarnúmer hunds og símanúmer eiganda hans.

11. grein

Helstu varúðar-, aðgæslu- og umgengniskyldur.

Eigendur og umráðamenn hunda skulu gæta þess vel, að hundar þeirra valdi ekki hættu, óþægindum, óþrifnaði eða raski ró manna, með stöðugu eða ítrekuðu ýlfri eða gelti. Berist kvartanir vegna ónæðis skal gefa hundahaldara tækifæri til úrbóta, við ítrekaðar kvartanir skal bæjarstjórn senda aðvörun um að leyfi til hundahalds verði fellt niður, verði ekki lát á ónæði fyrir nærliggjandi íbúa. Við síendurtekin brot getur bæjarstjórn  fellt niður  leyfi til hundahalds og látið fjarlægja hunda af heimili.

Sveitarfélagið Ölfus  getur krafist þess að eigandi hunds sæki hlýðninámskeið með hund sinn ef ástæða þykir til.

Eigendum og umráðamönnum hunda er ávallt skylt að fjarlægja saur eftir hunda þeirra.

Óheimilt er að láta hunda vera lausa, nema nytjahunda, sbr. þó 13. gr., þegar þeir eru að störfum í gæslu eiganda eða umráðamanns. Hundar skulu annars ávallt vera í taumi utan húss, sbr. þó 13. gr., og í umsjá manns sem hefur fullt vald yfir þeim. Heimilt er þó að hafa hunda lausa undir eftirliti ábyrgs aðila innan hundheldrar girðingar.

Óheimilt er að tjóðra hund án eftirlits ábyrgs aðila eða skilja eftir eftirlitslausa utan húss eða á svölum eða afgirtum veröndum. Þegar hundur er tjóðraður á lóð, skal taumurinn ekki vera lengri en svo að komast megi óhindrað að aðaldyrum viðkomandi húss. Taumur má ekki vera svo langur að hundur komist út fyrir lóðarmörk.

Hafi eigandi eða umráðamaður ástæðu til að ætla að hundur hans sé grimmur eða varasamur skal hann sjá til þess að hundur hans sé ávallt mýldur utan heimilis síns.

Bannað er að árásarþjálfa hunda.

Að öðru leyti skal fara að ákvæðum laga nr. 15/1994 um dýravernd og reglugerðar nr. 1077/2004 um aðbúnað og umhirðu gæludýra og dýrahald í atvinnuskyni, eftir því sem við á.

12. grein.

Lausir hundar, handsömun, geymsla, aflífun, kostnaður.

Sleppi hundur frá eiganda eða umráðamanni, skal viðkomandi tafarlaust gera ráðstafanir til að handsama hann. Hunda í lausagöngu skal færa í sérstaka hundageymslu og tilkynna eiganda um handsömunina svo fljótt sem auðið er. Eigandi hunds skal greiða allan kostnað við handsömun og geymslu hans áður en honum er afhentur hundurinn á ný. Ef hunds er ekki vitjað innan einnar viku frá handsömun er heimilt að ráðstafa honum til nýs eiganda eða selja hann fyrir áföllnum kostnaði. Að öðrum kosti skal hann aflífaður, að undangenginni auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins. Ómerkta hunda er heimilt að lóga án undangenginnar auglýsingar.

Merktir hundar á flækingi skulu einnig teknir úr umferð. Ef eigandi vitjar hans eigi innan sjö sólarhringa og svarar ekki til saka um brot á samþykkt þessari, sé um slíkt að ræða, er heimilt að aflífa hundinn skv. 8. gr. rgl. Nr. 1077/2004.

Hundar sem ráðast á menn eða skepnur skal fjarlægja og lóga þegar í stað.

 

13. grein.

Áminning og svipting leyfis vegna brota.

Ef eigandi hunds brýtur gegn lögum um dýravernd, dýrahald, samþykkt þessari eða öðrum reglum sem um dýrahald gilda, getur sveitarfélagið  afturkallað leyfi til hans og/eða bannað honum að vera með hund í lögsagnarumdæmi Sveitarfélagsins Ölfuss.

Sé brot smávægilegt skal áminna eiganda hunds að undangengnum andmælarétti. Ítrekað brot gegn lögum um dýravernd, dýrahald, samþykkt þessari eða öðrum reglum, sem um dýrahald gilda varðar afturköllun leyfis til hundahalds.

14. grein.

Viðurlög.

Um valdsvið og þvingunarúrræði vísast til VIII. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Eigendur eða umráðamenn hunda sem brjóta gegn ákvæðum samþykktar þessar skulu sæta skriflegri áminningu og gefinn hæfilegur frestur til úrbóta. Ef eigandi eða umráðamaður hunds vanrækir skyldur sínar eða brýtur ítrekað gegn ákvæðum samþykktar þessarar eða öðrum reglum sem gilda um hundahald getur sveitarstjórn bannað viðkomandi að halda hund og látið fjarlægja hundinn.

Brot gegn samþykkt þessari varða sektum rúmist þau jafnframt innan refsiákvæða hlutaðeigandi laga, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Skulu þau brot sæta þeirri málsmeðferð sem boðin er í lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um málskot fer samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

 

Bráðabirgðaákvæði.

I.

Þeir sem halda fleiri hunda en þrjá þegar samþykktin tekur gildi er skylt að skrá þá innan sex mánaða og hafa þeir þá leyfi til að halda þá á heimili sínu á meðan þeir lifa.

 

Ofangreind samþykkt bæjarstjórnar Ölfuss staðfestist hér með skv. 25 gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum og öðlast gildi þegar við birtingu hennar. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt nr. 772/1999  um hundahald í Sveitarfélaginu Ölfus.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Ölfus 27. okt. 2011.

 

 

 


Sendu okkur athugasemd

Athugið: Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:
Ráðhús Ölfuss

Tungumál



Útlit síðu: