229. fundur bæjarráðs Ölfuss
haldinn í ráðhúsi, miðvikudaginn 18. janúar 2012 og hófst hann kl. 08:15.
Fundinn sátu:
Sveinn Samúel Steinarsson, Guðmundur Karl Baldursson, Stefán Jónsson og Hróðmar Bjarnason.
Fundargerð ritaði: Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
| 1. |
1112043 - Reglur um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012 |
|
|
Tillaga meirihluta:
Úthlutuðum byggðakvóta, alls 300 tonn verði þannig úthlutað, að 35% verði skipt jafnt á milli allra skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðar nr. 1182/2011 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Hinn hlutinn 65% skiptist á skip á grundvelli alls landaðs afla sem telur til aflamarks á fiskveiðiárinu 2010/2011.
Rökin felast í eftirfarandi:
1. Sanngirnis- og jafnræðissjónarmið, þ.e. að láta alla þá sem uppfylla skilyrðin njóta hluta byggðakvótans, stóra sem smáa, enda hefur rekstur allra skipanna ellefu áhrif á atvinnuástand í sveitarfélaginu.
Tillaga D-lista.
Tillaga D-lista er að þeirri aðferð verði beitt að 300 tonnum sé skipt í 11 jafna hluta, 27.27 tonn á bát.
Rök: Á bæjarráðsfundi þann 12.1 síðastliðinn þá ákvað bæjarráð að fresta ákvörðun um hvaða aðferð skyldi beitt við úthlutun 300 tonna byggðakvóta sem Þorlákshöfn fékk úthlutað. Skyldi skoða hug þeirra útgerða sem til greina komu miðað við þær reglur sem í gildi eru, með því að boða þá til fundar. Sá fundur var boðaður daginn eftir 13.1. Fulltrúar allra útgerða í Þorlákshöfn mættu á fundinn. Málin voru rædd af skynsemi og yfirvegun, voru nánast allir þeirra skoðunar að skynsamlegast væri að skipta þessum kvóta jafnt á milli þeirra báta sem héðan eru gerðir út. Myndi það nýtast þorpinu best auk þess að hjálpa þeim smáu útgerðum sem eru kvótalitlar, að komast af stað.
Afgreiðsla tillögu D-lista: Felld með tveimur atkvæðum gegn einu.
Afgreiðsla tillögu meirihluta: Samþykkt með tveimur atkvæðum geng einu.
Bókun: Áheyrnarfulltrúi Ö-lista styður tillögu D-lista um jafna skiptingu.
|
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:20.
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________