Bæjarráð
236. fundur bæjarráðs Ölfuss

haldinn  í ráðhúsi, fimmtudaginn 12. júlí 2012 og hófst hann kl. 08:15.

 

 

Fundinn sátu:

Anna Björg Níelsdóttir varaformaður, Guðmundur Karl Baldursson varamaður, Stefán Jónsson aðalmaður, Sigurlaug Berglind Gröndal varamaður og Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri.

 

Fundargerð ritaði:  Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjóri.

 

Varaformaður bæjarráðs bauð nýtt bæjarráð velkomið til starfa.

 

Varaformaður bæjarráðs óskaði eftir að taka á dagskrá með afbrigði erindi íþrótta-og æskulýðsfulltrúa um mannabreytingar í íþróttamiðstöð og erindi Árna Johnsen um styrk til gerðar líkans af Þorláki ÁR 5.

 

 Samþykkt samhljóða.

 

Dagskrá:

 

 

1. 1207007 - Breyting á reglum um leigu á geymslusvæði.
Lagðar fram tillögur umhverfisstjóra að breytingum á reglum um gjaldskrá vegna geymslusvæðis við Nesbraut.
Bæjarráð samþykkir samhljóða breytingar á reglum um gjaldskrá fyrir geymslusvæði. SBU og umhverfisstjóra falið að leggja fram tillögur um framtíðarlausn á staðsetningu geymslusvæðis.
 
2. 1206024 - Erindi Ölfussports vegna samnings um rekstur líkamsræktar.
Bæjarstjóri fór yfir viðræður við Ölfussport. Bæjarstjóra falið að vinna áfram málinu.
 
3. 1207002 - Fasteignamat 2013
Lagt fram bréf Þjóðskrár um breytingu á fasteignamati sveitarfélaga. Fram kemur að hækkun í Ölfusi er um 1.3%, milli áranna 2012 og 2013.
Lagt fram til kynningar.
 
4. 1206044 - Fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga
Lagt fram bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Fram kemur að samkvæmt útreikningi nefndarinnar er sveitarfélagið 4% yfir 150% viðmiði en þá hefur ekki verið tekið tillit til lífeyrisskuldbindinga umfram 15 ár, en ef það væri tekið með eins og heimilt er væri skuldahlutfallið undir 150% markinu.

Bæjarráð vísar í þriggja ára fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og hluta lífeyrisskuldbindga sem svar við bréfi nefndarinnar.
 
5. 1206028 - Kvörtun vegna leikskóla - Trúnaðarmál.
Lagt fram bréf, kvörtun vegna leikskóla sem trúnaðarmál.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram í málinu.
 
6. 1207013 - Ósk um sameiningu lóða, Hafnarskeið 10 og 12
Lagt fram bréf Sláturfélags Suðurlands um sameiningu lóðar við Hafnarskeið, vegna byggingar birgðarskemmu.
Bæjarráð óskar eftir umsögn hafnarstjórnar og SBU.
 
7. 1206017 - Starfsmannamál leikskólans
Lagt fram erindi tveggja leikskólakennara, annars vegar um launað námsleyfi og hins vegar um svigrúm í starfi til að stunda framhaldsnám í leikskólakennarafræðum. Fyrir liggur jákvæð afstaða fræðslunefndar og leikskólastjóra til erindanna.
Bæjarráð samþykkir að veita ólaunað námsleyfi og tekur jákvætt í launuð námsleyfi og vísar til gerðar fjárhagsáætlunar. Bæjarstjóra falið að leggja fram tillögu að reglum um launuð námsleyfi.

Samþykkt með tveimur atkvæðum, Stefán situr hjá.

Bókun.

Tek jákvætt undir ólaunuð námsleyfi en er á móti að sveitarfélagið greiði laun í námsleyfum.

Stefán Jónsson.
 
8. 1207004 - Styrkur til sjálfboðaliðavinnu á Ólympíuleikunum 2012
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir styrk til að fara sem sjálfboðaliði á Ólympíuleikana í London.
Bæjarráð óskar Karen góðrar ferðar en sér sér ekki fært að verða við erindinu.

Stefán vék af fundi við afgeiðslu málsins.
 
9. 1207006 - Tilboð í jarðvinnu við leikskólann.
Lagður fram samningur við Suðurtak ehf. um jarðvinnu við leikskólann Bergheima. Bæjarráð samþykkir samninginn og felur byggingafulltrúa sveitarfélagsins að hafa eftirlit með verkinu.
 
10. 1207009 - Tillögur um rekstur líkamsræktar í íþróttamiðstöð.
Lagðar fram tillögur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa um rekstur sveitarfélagsins á líkamsræktarstöðvar í íþróttamiðstöð.

Bæjarráð samþykkir tillögurnar og bæjarstjóra og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að fullmóta reglur.
 
11. 1207011 - Umsókn vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi, Sigfríður Óskarsdóttir
Lögð fram umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi Sigríðar Óskarsdóttur.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við endurnýjun starfsleyfis.
 
12. 1207014 - Mannabreytingar í íþróttamiðstöð.
Lagðar fram tillögur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa vegna mannabreytinga í íþróttamiðstöð þar sem einn starfsmaður er að hætta vegna aldurs. Óskað er eftir að auka starfshlutfall um 30% m.a. til að uppfylla kröfur reglugerða um öryggi á sund- og baðsöðum.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.
 
13. 1207016 - Erindi Árna Johnsen, styrkur vegna gerðar líkans af Þorláki ÁR 5.
Lagt fram erindi frá Árna Johnsen fyrir hönd Þorláksbúðarfélagsins. Óskað er eftir styrk til gerða líkans af Þorláki ÁR 5 sem staðsett yrði í Þorláksbúð við Skálholt.

Samþykkt að veita kr. 300.000 í styrk, enda verði líkanir merkt sem gjöf frá sveitarfélaginu.

Samþykkt samhljóða.
 
14. 1207005 - Fundagerð stjórnar SOS dags. 26. júní sl.
Fundagerðin lög fram.
 
15. 1207008 - Fundagerð stjórnar SÍS.
Fundagerðin lög fram.
 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:10.

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 

 

___________________________                      ___________________________    

 

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál



Útlit síðu: