Tvöhundraðasti og þriðji fundur bæjarráðs Ölfuss haldinn miðvikudaginn 12. maí. 2010 í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn og hófst kl. 08.00.
Mætt voru:
Stefán Jónsson formaður
Henný Hafsteinsdóttir
Ólafur Áki Ragnarsson
Guðni Pétursson bæjarstjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Þá óskaði hann eftir heimild fundarins til þess að setja fundagerð skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar frá 11. maí s.l. á dagskrá undir lið 1c. og var það samþykkt samhljóða.
1. Fundagerðir:
- íþrótta- og æskulýðsnefndar frá 26. apríl. sl. samþykkt samhljóða.
- menningarnefndar frá 5. maí s.l. Afgreiðslu frestað.
- skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar frá 11. maí tekin til afgreiðslu.
Liður 1 samþykktur samhljóða. Liður 2 samþykktur samhljóða. Liður 4 samþykktur samhljóða og bæjarstjóra falið að vinna að málinu. Liður 6 samþykktur samhljóða. Liður 7 samþykktur samhljóða. Liður 9 samþykktur samhljóða. Þá var tillaga að svarbréfi til umhverfisráðherra vegna umsagnar á afgreiðslu breytingartillögunnar til umhverfisráðuneytisins lögð fram og samþykkt samhjóða.
2. Erindi til afgreiðslu:
- Uppgræðslusjóður Ölfuss.
Lögð fram ársskýrsla fyrir árið 2009 fyrir Uppgræðslusjóð Ölfuss.
- Vegagerðin.
- Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands.
- Intrum greiðsluþjónusta.
Lagt fram yfirlit yfir greiðsluferla á innheimtum sveitarfélagsins tímabilið janúar 2009 til febrúar 2010.
Til kynningar.
Fleira ekki gert.
Fundargerð lesin upp og
samþykkt samhljóða.
Fundi síðan slitið kl. 08.50.
GP.

