Tvöhundraðasti og fjórði fundur og jafnframt fyrsti fundur nýkjörins bæjarráðs Ölfuss 2010-2011 haldinn fimmtudaginn 1 júlí 2010 í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn og hófst kl. 08.00.
Mætt voru:
Sveinn Steinarsson formaður
Guðmundur Baldursson
Kristín Magnúsdóttir
Sigurlaug Gröndal
Guðni Pétursson bæjarstjóri sem ritaði fundargerð
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna og þá sérstaklega Sigurlaugu Gröndal sem mun sitja fundi bæjarráðs sem áheyrnarfulltrúi með málfrelsi og tillögurétt fyrir hönd Ö-listans.
Gekk hann síðan til dagskrár.
1. FUNDAGERÐ.
a. skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar frá 29. júní s.l. tekin til afgreiðslu.
Liður 1 samþykktur samhljóða. Samþykkt samhljóða að fela umhverfisstjóra að boða til fundar með aðilum málsins.
Liður 2, 3, og 4 samþykktir samhljóða. Liður 5 ásamt tillögu að svarbréfi til umhverfisráðuneytisins samþykktur samhljóða. Liður 6 samþykkt samhljóða að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið. Liður 8 samþykktur samhljóða. Liður 9 samþykktur samhljóða. Liður 10 samþykktur samhljóða. Liður 12 samþykktur samhljóða.
Fundargerðin síðan samþykkt samhljóða í heild sinni.
2. RÁÐNING TÓMSTUNDAFULLTRÚA.
Samþykkt samhljóða að tillögu forstöðumanns Egilsbrautar 9 og félagsmálastjóra að ráða Önnu Lísu Rasmussen í stöðu tómstundafulltrúa við Egilsbraut 9.
Tvær aðrar umsóknir bárust um stöðuna.
3. ERINDI ER HAFA BORIST.
a. Thorsil ehf.
Óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á staðsetningu fyrirhugaðrar lóðar fyrir kísilmálmverksmiðju í Þorlákshöfn.
Þá er einnig óskað eftir því að sveitarfélagið heimili fyrirtækinu að láta fara fram á næstu vikum grunnrannsóknir vegna mats á umhverfisáhrifum á lóðinni og í nágrenni hennar.
Samþykkt samhljóða að fresta erindinu en óska eftir fundi með forsvarsmönnum fyrirtækisins um málið við fyrsta tækifæri.
b. Tónsmiðja Suðurlands.
Farið er fram á að sveitarfélagið geri samning við Tónsmiðju Suðurlands um niðurgreiðslu á námi nemenda úr Ölfusi í tónsmiðjunni.
Samþykkt samhljóða að hafna beiðninni þar sem sveitarfélagið er aðili að rekstri Tónlistarskóla Árnesinga.
c. Grunnskólinn í Þorlákshöfn.
Farið er fram á heimild bæjarráðs til þess að ráða í 60% stöðu forfallakennara skólaárið 2010-2011.
Bæjarráð telur hagkvæmara að ráðið sé í fasta stöðu forfallakennara.
Samþykkt samhljóða.
d. Baldur Kristjánsson
Lagt fram bréf Baldurs með ýmsum ábendingum hans varðandi umferðaröryggismál í Þorlákshöfn.
Bæjarráð þakkar Baldri fyrir áhuga hans og góðar ábendingar í umferðaröryggismálum og samþykkir samhljóða að vísa bréfi hans til skipulags- og byggingafulltrúa sem er í forsvari fyrir sveitarfélagið í vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir Þorlákshöfn sem samþykkt var af fyrri bæjarstjórn að vinna að í samvinnu við Umferðarráð.
e. Capacent ehf.
Lagt fram bréf frá Capacent þar sem boðist er til að vinna úttekt á fjármálalegri stöðu sveitarfélaga í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna nú í vor.
Til kynningar.
3. ÖNNUR MÁL.
a. Sorpstöð Suðurlands.
Kynnt opnun umhleðslustöðvar fyrir sorp á Selfossi á vegum Sorpstöðvar Suðurlands en framvegis mun stærstum hluti sorps úr Ölfusi verða umhlaðið í stöðinni.
Fleira ekki gert.
Fundargerð lesin upp og
samþykkt samhljóða.
Fundi síðan slitið kl. 09.50.
GP.

