Tvöhundraðasti og fimmti fundur bæjarráðs Ölfuss haldinn fimmtudaginn 15. júlí 2010 í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn og hófst kl. 08.00.
Mætt voru:
Sveinn Steinarsson, formaður
Guðmundur Baldursson
Kristín Magnúsdóttir
Sigurlaug Gröndal
Magnús J. Guðmundsson sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Þá óskaði formaður eftir heimild til að setja á dagskrá erindi frá Marteini Mássyni hrl., f.h. Fjarðalax ehf og erindi frá Sveinbirni Guðmundssyni f.h. BM Vallá ehf og var það samþykkt samhljóða.
Gekk hann síðan til dagskrár.
1. FUNDAGERÐIR.
a. Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. júní sl. lögð fram til kynningar.
b. Sorpstöðvar Suðurlands frá 29. júní sl. lögð fram til kynningar.
2. ERINDI ER HAFA BORIST.
a. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Erindi sjóðsins, dags. 28. júní sl. um niðurstöðu endurskoðunar á áætlaðri úthlutun framlags til sveitarfélaga á árinu 2010 vegna hækkunar á tryggingagjaldi úr 7% í 8,65% á árinu 2010. Lagt fram til kynningar.
b. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Erindi sjóðsins, dags. 25. júní sl. þar sem tilkynnt er um að reglur um úthlutun 1 milljóna króna aukaframlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2010 liggi ekki fyrir fyrr en í september nk. Framlagið er ætlað til frekari stuðnings við sveitarfélög. Lagt fram til kynningar.
c. Samband íslenskra sveitarfélaga.
Tölvupóstur Sambandsins, dags. 1. júlí sl., með yfirliti yfir álagningarhlutföll sveitarfélaga vegna A- og C-hluta fasteignaskatts í samanburði við leyfilega hámarksálagningu til að leiða fram nýtingarhlutfall skattsins. Lagt fram til kynningar.
d. Fasteignaskrá Íslands.
Upplýsingar úr Fasteignaskrá Íslands um breytingar á fasteignamati í sveitarfélögum milli áranna 2010 og 2011. Lagðar fram til kynningar.
e. Eignarhaldsfélagið Fasteign hf.
Fundarboð til hluthafa vegna aðalfundar félagsins 14. júlí sl. Guðmundur Baldursson sat fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
f. Samkomulag um fjárhagsramma tilfærslu fatlaðra til sveitarfélaga.
Samkomulag fjármálaráðherra, félags- og tryggingamálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra f.h. ríkisins og formanns og framkvæmdarstjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga f.h. sveitarfélaga frá 6. júlí sl. um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Lagt fram til kynningar.
g. Thorsil ehf.
Erindi frá Thorsil ehf þar sem óskað var eftir staðfestingu sveitarfélagsins á staðsetningu fyrirhugaðrar lóðar fyrir kísilmálmverksmiðju í Þorlákshöfn, sem frestað hafði verið á síðasta bæjarráðsfundi, tekið fyrir að nýju. Þá hefur einnig verið óskað eftir því að sveitarfélagið heimili fyrirtækinu að láta fara fram á næstu vikum grunnrannsóknir vegna mats á umhverfisáhrifum á lóðinni og í nágrenni hennar.
Í samræmi við fund sem bæjarstjórn átti með fulltrúum Thorsil ehf vegna málsins 2. júlí sl. og tölvupóst fyrirtæksins dags. 7. júlí sl. er leiðrétt staðsetning lóðarinnar samkvæmt lóðarblaði samþykkt samhljóða. Einnig samþykkt samhljóða að heimila fyrirtækinu grunnrannsóknir á lóðinni. Skipulags- og byggingafulltrúa falið að afhenda fyrirtækinu gögn varðandi erindið. Þá var samþykkt að eldri samningur milli málsaðila verði endurnýjaður og gildi til haustsins.
h. Ingólfur Guðmundsson.
Erindi þar sem óskað er eftir því að sveitarfélagið gangi til samninga við málshefjanda og Þórarinn Krisinsson, fiskeldisstöðinni Tungu við Kirkjubæjarklaustur um kaup og niðurrif á sjö fiskeldiskerjum á landi sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða að verða við erindinu. Bæjarstjóra falið að fylgja erindinu eftir. Sveitarfélagið gerir kröfu á að málshefjendur gangi frá jarðvegi, samkvæmt lögum og reglugerðum, eftir niðurrif á kerunum.
i. Marteinn Másson, hrl. f.h. Fjarðalax ehf.
Erindi, dags. 13. júlí sl. þar sem greint er frá því að Fjarðalax hafi hug á að nýta sér kauprétt sinn að fiskeldisstöð Fiskeyjar að Nesbraut 25, sbr. 2. gr. leigusamnings milli Fjarðalax ehf og Fiskeyjar hf.
Samkvæmt 12. gr. lóðarleigusamnings Ölfushrepps á sínum tíma um lóðina undir fiskeldisstöðinni ber að leita samþykkis sveitarfélagsins ef til framsals, framleigu eða afhendingu réttinda að öðru leyti samkvæmt samningnum.
Óskað er eftir samþykki sveitarstjórnar Ölfuss fyrir því að Fjarðalax ehf., komi í stað Fiskeyjar hf. sem leigutaki samkvæmt lóðarleigusamningnum við kaupin á fiskeldisstöðinni.
Samþykkt samhljóða að verða við erindinu.
j. Sveinbjörn Guðmundsson, f.h. BM Vallá ehf.
BM Vallá ehf kt. 450510-0680 sækir um að gera lóðaleigusamning við Sveitarfélagið Ölfus vegna lóðarinnar Nesbraut 5 í Þorlákshöfn. Lóðin var áður í leigu BM Vallá hf sem varð gjaldþrota í maí sl. Nýja fyrirtækið hefur keypt reksturinn af þrotabúinu og hyggst starfrækja áfram á lóðinni vinnslu og útflutning á Hekluvikri.
Samþykkt samhljóða að verða við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að vinna verkið með BM Vallá ehf.
Fleira ekki gert.
Fundargerð lesin upp
og samþykkt samhljóða.
Fundi síðan slitið kl. 09.00.
MJG

