Tvöhundraðasti og sjötti fundur bæjarráðs Ölfuss haldinn þriðjudaginn 27. júlí 2010 í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn og hófst kl. 16:00.
Mætt voru:
Sveinn Steinarsson, formaður
Guðmundur Baldursson
Kristín Magnúsdóttir
Sigurlaug Gröndal
Hafdís Sigurðardóttir sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna og gekk síðan til dagskrár.
1. Ráðningarsamningur við nýjan bæjarstjóra.
Lagður fram ráðningarsamningur við nýjan bæjarstjóra Ólaf Örn Ólafsson og samþykkt að vísa samningnum til bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert.
Fundargerð lesin upp
og samþykkt samhljóða.
Fundi síðan slitið kl. 09.00.
HS

