Bæjarráð

Tvöhundraðasti og sjöundi fundur bæjarráðs Ölfuss haldinn fimmtudaginn 19. ágúst. 2010 í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshhöfn og hófst kl. 08.00.

Mætt voru:
Sveinn Steinarsson formaður
Guðmundur Baldursson
Kristín Magnúsdóttir
Sigurlaug Gröndal
Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri
Guðni Pétursson bæjarritari sem ritaði fundargerð.

Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.  Þá óskaði hann eftir heimld fundarins til þess að taka á dagskrá erindi frá SASS frá 17. ágúst varðandi kjör fulltrúa á ársþing SASS 13. og 14. sept. n.k. undir lið nr. 5 og var það samþykkt samhljóða.
     Gekk hann síðan til dagskrár.

1.  ERINDI:

a.  Fimleikadeild Þórs.
     Sótt er um styrk að upphæð kr. 300.000. vegna kostnaðar við aukaæfingar elsta flokks stúlkna á Selfossi veturinn 2010-2011.
     Samþykkt samhljóða að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2011.
    
b.  Kristín Magnúsdóttir.
     Lögð fram fyrirspurn frá Kristínu þar sem hún óskar eftir sundurliðun á greiðslum öðrum en föstum launum til bæjarfulltrúa kjörtímabilin 2002-2006 og 2006-2010.
     Þá spyrst hún fyrir um hvort einhverjar formlegar reglur séu til hjá sveitarfélaginu um slíkar greiðslur.
     Samþykkt samhljóða að vísa málinu til bæjarritara til afgreiðslu en sveitarfélagið hefur ekki sétt sér formlegar reglur um málið.

c.  Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
     Lagðar fram umsóknir um 79% og 54% störf við frístundaheimilið.
     Samþykkt samhljóða að tillögu íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að ráða Olgu Jóhannesdóttur í 79% stöðu og Sigríði Ósk Jensdóttur í 54% starf.
     Þrjár umsóknir bárust um stöðurnar.

d.  Vegagerðin.
     Lagt fram afrit af bréfi Vegagerðarinnar dags. 21. apríl. s.l. til hafnarstjórnar varðandi ferjuaðstöðu í Þorlákshöfn.
     Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að ræða við Vegagerðina um málið í samráði við hafnarnefnd.

e.  Kosning fulltrúa á ársþing SASS.
     Samþykkt samhljóða að fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfund SASS verði:
Aðalmenn:  Sigríður Lára Ásbergsdóttir, Sveinn Steinarsson, Kristín Magnúsdóttir og Hróðmar Bjarnason.
Varamenn:  Guðmundur Baldursson, Anna Björg Níelsdóttir, Stefán Jónsson og Sigurlaug Gröndal.

      Samþykkt samhljóða að fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Suðurlands verði:
Aðalmenn:  Sigríður Lára Ásbergsdóttir, Sveinn Steinarsson, Kristín Magnúsdóttir og Hróðmar Bjarnason.
Varamenn:  Guðmundur Baldursson, Anna Björg Níelsdóttir, Stefán Jónsson og Sigurlaug Gröndal.
     Samþykkt samhljóða að fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfund Atvinnuþróunarfélags Suðurlands verði:
Aðalmenn:  Sigríður Lára Ásbergsdóttir, Sveinn Steinarsson, Kristín Magnúsdóttir og Hróðmar Bjarnason.
Varamenn:  Guðmundur Baldursson, Anna Björg Níelsdóttir, Stefán Jónsson og Sigurlaug Gröndal.
     Samþykkt samhljóða að fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfund Sorpstöðvar Suðurlands verði:
Aðalmaður: Ólafur Örn Ólafsson.
Varamaður:  Sveinn Steinarsson.

2.  FUNDAGERÐIR.

a.  Félagsmálaráðs frá 17. maí s.l. staðfest.
b.  Hafnarstjórnar Þorlákshafnar frá 5. ágúst. sl. staðfest.
c.  Vorfundar fjárhagsnefndar Héraðsnefndar Árnesinga frá 8 og 9. apríl. s.l. til kynningar.
d.  Mennta- og menningarnefndar héraðsnefndar til kynningar.

                                                                              Fleira ekki gert.
                                                                               Fundargerð lesin upp
                                                                               og samþykkt samhljóða.
                                                                               Fundi síðan slitið kl. 09.40.
                                                                                            GP.


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica