Eitthundrað sextugasti og fimmti fundur bæjarráðs Ölfuss haldinn fimmtudaginn 12. júlí 2007 í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn og hófst kl. 08:00
Mætt voru:
Stefán Jónsson formaður
Ásgeir Ingvi Jónsson
Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri sem jafnframt ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Áður en gengið var til dagskrár óskaði formaður eftir því að erindi frá formanni fræðslunefndar verði tekið á dagskrá og var það samþykkt samhljóða. Síðan var gengið til dagskrár.
1. FUNDAGERÐIR.
a) Skipulags- byggingar- og umhverfisnefndar dags. 19. júní 2007, samþykkt samhljóða.
b) Heilbrigðisnefndar Suðurlands dags. 19. júní 2007, til kynningar.
c) Skólaskrifstofu Suðurlands dags. 20. júní 2007, til kynningar.
d) Verkfundar vegna framkvæmda í Grunnskólanum í Þorlákshöfn.
Eftirfarandi samþykkt var gerð:
Bæjarráð samþykkir að veita Trésmiðju Sæmundar ehf., frest til loka mars til að skila verki við endurbætur á Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Verklok samkvæmt samningi voru áætluð í desember 2007. Skilyrði fyrir breytingu á verklokum er að verktaki leggi inn nýja verkáætlun og ber þann kostnað sem sveitarfélagið kann að verða fyrir vegna tafanna.
2. ERINDI TIL AFGREIÐSLU:
a) Umsókn um lóð við Unubakka 23 frá Þróunarfélaginu Land ehf. Samþykkt samhljóða að úthluta Þróunarfélaginu Landi lóðinni. Málinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar til frekari afgreiðslu.
b) Umsókn um lóð við Hafnarskeið. Samþykkt að úthluta lóðinni ekki að svo stöddu þar sem gámasvæði sveitarfélagsins er á lóðinni.
c) Umsókn um lóð frá Einingarverksmiðjunni ehf., Breiðhöfða 10 Reykjavík. Samþykkt að úthluta þeim lóð á svæði merktu I1 á aðalskipulagi. Málinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar til frekari afgreiðslu.
d) Umsóknir um lóðir við Pálsbúð 27, 29, 30, 31, 32, 33, 34, 36 og 38 frá Gljúfurá ehf. Samþykkt að úthluta Gljúfurá ehf. lóðum nr. 27 og 29 við Pálsbúð. Málinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar til frekari afgreiðslu.
e) Umsókn um lóð við Nesbraut frá HJ húsverk ehf. Þar sem ekki hefur verið gengið frá skipulagi á svæðinu er bæjarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn HJ húsverks og bjóða þeim lóð á svkipulögðu iðnaðarsvæði við Unubakka eða Hraunbakka. Undir þessum lið vék Stefán Jónsson af fundi.
f) Umsóknir um lóðir í Búðahverfi frá Eiríku G. Magnúsdóttur og Þorvaldi Helga Auðunssyni. Samþykkt að úthluta Eiríku lóð nr. 30 við Pálsbúð og Þorvaldi lóð nr. 32 við Pálsbúð. Málinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar til frekari afgreiðslu.
g) Umsóknir um lóð við Finnsbúð frá B. Gíslasyni ehf., Maríu Sigurðardóttur, Brynjari Guðmundssyni, Jóhanni Magnússyni, Gísla Sigurðssyni og Ólafíu Rafnsdóttur. Með hliðsjón af reglum um úthlutun lóða í Sveitarfélaginu Ölfusi var samþykkt að úthluta Brynjari Guðmundssyni lóð nr. 16 við Finnsbúð og Gísla Sigurðssyni og Ólafíu Rafnsdóttur lóð nr. 14 við Finnsbúð. Málinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar til frekari afgreiðslu.
h) Umsóknir um lóðir við Gissurarbúð 4 frá Jóhanni Magnússyni. Samþykkt að úthluta Jóhanni lóðinni. Málinu vísað til skipulags- og byggingarnefndar til frekari afgreiðslu.
i) Tvö tilboð bárust í lagningu göngustíga. Frá Smávélum og flutningum að upphæð kr. 16.506.000.- og Vélgröfunni ehf. að upphæð kr. 13.044.500. Kostnaðaráætlun hljóðaði uppá kr. 11.500.000.- Samþykkt var að taka tilboði frá Vélgröfunni ehf. með ákveðnum breytingum.
j) Teknar fyrir umsóknir um störf við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Fjárar umsóknir bárust í starf skólaliða og þrif 100% starf og eru nöfn þeirra:
Lilja Pálsdóttir
Jensína Kjartansdóttir
Sjöfn Ísaksdóttir
Fimm umsóknir bárust í starf í mötuneyti og þrif 75% starf og eru nöfn þeirra:
Guðfinna Óskarsdóttir
Hólmfríður Björg Þorvaldsdóttir
Sigrún Ásgeirsdóttir
Sigríður Karlsdóttir
Sjöfn Ísaksdóttir
Ein umsókn barst í starf skólaliða og þrif 51% starf:
Gyða Steina Þorsteinsdóttir
Samþykkt var að styðjast við umsögn skólastjóra, aðstoðarskólastjóra og húsvarðar við ráðninguna og var eftirfarandi tillaga samþykkt:
Í mötuneyti og þrif 75% starf var samþykkt að ráða Guðfinnu Óskarsdóttur
Í starf skólaliða og þrif 100% starf var samþykkt að ráða Lilju Pálsdóttur
Í starf skólaliða og þrif 51% starf var samþykkt að ráða Gyðu Steinu Þorsteinsdóttur.
k) Teknar fyrir umsóknir um starf í íþróttamiðstöð. Tvær umsóknir bárust frá eftirtöldum:
Helga Pétri Guðjónssyni og Halldóri Sævari Grímssyni.
Samþykkt var að ráða Helga Pétur Guðjónsson samkvæmt umsögn íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.
3. BRÉF TIL BÆJARRÁÐS FRÁ:
a) Iðnaðarráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins á leyfi til handa Orkuveitu Reykjavíkur til að nýta 400 MW í varmaframleiðslu í Hellisheiðarvirkjun.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gefa jákvæða umsögn um málið.
b) Þrjú tilboð bárust í byggingu Íþróttamiðstöðvar í Þorlákshöfn sem Eignarhaldsfélagið Fasteign óskaði eftir tilboðum í. Tilboð komu frá Atafl að upphæð kr. 735.994.844.-, Ístak að upphæð kr. 726.418.336.-, og frá JÁ-Verk að upphæð kr. 637.904.079.-
Lagt fram til kynningar.
c) Lagt var fyrir bréf frá formanni skólanefndar FSU, þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélaga á Suðurlandi til áframhaldandi uppbyggingar Fjölbrautarskólans.
Samþykkt var að Sveitarfélagið Ölfus verði með í áframhaldandi uppbyggingu skólans, jafnframt var samþykkt að sveitarfélagið greiði framlag til uppbyggingarinnar.
d) Lagt fram bréf frá Sveitarfélaginu Árborg varðandi samning milli sveitarfélaganna um námsvist nemenda úr Ölfusi í grunnskóla Árborgar.
e) Lagt fram bréf til kynningar frá Skipulagsstofnun varðandi beiðni um undanþágu frá 13. gr. laga nr. 105/2006 vegna deiliskipulags Hverahlíðar.
f) Sveitarfélaginu Árborg þar sem óskað er eftir viðræðum við bæjarstjórn Ölfuss um breytingu á sveitarfélagamörkum milli Árborgar og ölfuss.
Eftirfarandi samþykkt var gerð:
Fyrir um 1 ½ ári síðan fóru fram kosningar um sameiningu sveitarfélaga á svæðinu. Góð kosningarþátttaka var í Sveitarfélaginu Ölfusi eða yfir 90%. Mikill meirihluti íbúa Ölfuss höfuðu tillögu um sameiningu. Aðeins 7% íbúa kusu með sameiningu. Engar óskir hafa komið fram frá íbúum Árbæjarhverfis um breytingu á sveitarfélagamörkum. Bæjarráð telur því ekki ástæðu til að funda um breytingu á sveitarfélagamörkum að svo stöddu.
g) Kvenfélaginu Bergþóru þar sem þakkað er fyrir fánastöng sem sveitarfélagið gaf félaginu til að kom afyrir við bústað félagsins í landi Gljúfurs í tilefni af 80 ára afmæli Kvenfélagsins Bergþóru.
h) Samorku þar sem kynnt er samþykkt um að starfsemi samtakanna tæki einnig til fráveitna. Lagt fram til kynningar.
i) Flóahreppi þar sem kynnt er samþykkt sveitarstjórnar um þátttöku í vinnu við endurskoðun á svæðisskipulagi.
j) Valdimar Össurarsyni um forkönnun á staðarvali fyrir Tæknisafn Íslands, lagt fram til kynningar.
k) Samþykkt að styrkja skólaþróunarverkefni á vegum kennara við Grunnskólann í Þorlákshöfn sem formaður fræðslunefndar kynnti í bréfi til bæjarráðs. Um er að ræða verkefnið Stærðfræðistiginn sem beinist að stærðfræðinámi á yngsta stigi grunnskólans. Áætlaður kostnaður er um kr. 1,0 millj. sem skiptist á tvö ár.
Ásgeir Ingvi samþykkti erindið fyrir sitt leyti en telur eðlilegt að málið hefði fyrst verið rætt í fræðslunefnd áður en það er tekið fyrir í bæjarráði.
Fleira ekki gert.
Fundargerð lesin upp
og samþykkt samhljóða.
Ó.Á.R.

