Bæjarstjórn

 

182. fundur bæjarstjórnar

haldinn  í ráðhúsi, fimmtudaginn 26. janúar 2012 og hófst hann kl. 16:30.

 

Fundinn sátu:

Sveinn Samúel Steinarsson, Guðmundur Karl Baldursson, Kristín Magnúsdóttir, Stefán Jónsson, Hróðmar Bjarnason, Ólafur Örn Ólafsson, Ásta Margrét Grétarsdóttir og Sigrún Huld Pálmarsdóttir.

 

Fundargerð ritaði:  Guðni Pétursson, bæjarritari.

 

Í upphafi fundar kom fram að hvorki forseti bæjarstjórnar né varaforseti gátu mætt á fundinn. Aldursforseti Guðmundur Baldursson stjórnaði fundi.

 

Þá var eftirfarandi bókun lögð fram og samþykkt samhljóða.

 

"Bæjarstjórn Ölfuss vill óska Grunnskólanum í Þorlákshöfn innilega til hamingju með menntaverðlaun Suðurlands sem forseti Íslands afhenti f.h. Sambands sunnlenskra sveitarfélaga þann 24. janúar s.l.

Veiting þessara verðlauna sýnir að í skólanum er unnið gott og metnaðarfullt starf sem íbúar sveitarfélagsins geta verið stoltir af.

Þá vill bæjarstjórn einnig óska leikskólanum Bergheimum til hamingju með tilnefningu til þessara sömu verðlauna.

 

Dagskrá:

 

1. 1201028 - Aðalfundur Samorku 17. febrúar 2012

Boðað er til aðalfundar Samorku 17. febrúar n.k.

Samþykkt samhljóða að fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum verði Gunnþór K. Guðfinnsson umhverfisstjóri.

 
2. 1112008 - Viljayfirlýsing - trúnaðarmál.

Viljayfirlýsingin (trúnaðarmál) samþykkt samhljóða.

Bæjarstjóra falið að ganga frá málinu.

 
3. 1201045 - Viðhaldsgjald fyrir götulýsingu og breytt eignarhald

Lagt fram bréf RARIK dags. 20. janúar s.l. þar sem óskað er eftir viðræðum við sveitarfélagið um yfirtöku á götulýsingarkerfi á vegumráðasvæði þess.

Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að boða fulltrúa RARIK til fundar um málið.

 
4. 1201032 - Samþykkt v. sveitarfélagamarka

Lagt fram bréf Hveragerðisbæjar dags. 16. janúar s.l. þar sem óskað er eftir því að Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus hefji viðræður um breytt sveitarfélagamörk er lúti að svæðinu ofan við Varmá og upp að fjalli.

Samþykkt samhljóða að sveitarfélagið taki upp viðræður við Hveragerðisbæ um málið og að fulltrúar sveitarfélagsins í viðræðunum verði Sígríður Lára Ásbergsdóttir, Sveinn Steinarssson, Ólafur Örn Ólafsson og Hróðmar Bjarnason.

 
5. 1112048 - Skipan nefndar um umhverfisstefnu sveitarfélagsins.

Eftirfarandi tillaga lögð fram um skipan eftirfarandi fulltrúa í nefnd um umhverfisstefnu sveitarfélagsins:

 

"Anna Björg Níelsdóttir, Ásgerður Eiríksdóttir, Gunnþór Guðfinnsson, Rafn Gíslason, Stefán Jónsson, Hrönn Guðmundsdóttir fulltrúi íbúa og fulltrúi frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Með hópnum starfi eftir þörfum fulltrúar frá grunn- og leikskólum.

Hlutverk hópsins er að vinna heildarstefnu í umhverfismálum og skila tillögu til bæjarstjórnar að umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið fyrir árslok 2012.  Lögð er áhersla á að við mótun stefnunnar verði hugað að lýðræðislegri aðkomu sem flestra þ.m.t. að drög að tillögu liggi frammi opinberlega til athugasemda fyrir íbúa og aðra sem vilja láta sig málið varða.

 

Samþykkt samhljóða.

 
6. 1201007 - Stofnun Orkusveitarfélaga.

Lögð fram stofnfundargerð Sambands orkusveitarfélaga frá 25. nóvember s.l. ásamt samþykktum sambandsins.

Samþykkt samhljóða að sveitarfélagið gerist stofnaðili að sambandinu og bæjarstjóra falið að senda stjórn sambandsins umsókn um aðild.

 
7. 1011057 - Deiliskipulag starfsmannahús

Lagður fram deiliskipulagsuppdráttur er nær til Grænhóls I, Grænhóls II og Strýtu lagfærður eftir ábendingar frá Skipulagsstofnun.

Deiliskipulagið samþykkt samhljóða með þeim breytingum.

 
8. 1111054 - Deiliskipulag ylræktarvers við Hellisheiðarvirkjun.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

 

"Bæjarstjórn Ölfuss samþykkir að deiliskipulag fyrir ylræktarver á svæði vestan við Hellisheiðavirkjun verði auglýst samhliða endurskoðuðu aðalskipulagi Ölfuss 2010-2022.

Bæjarstjórn  samþykkti þennan feril á fundi sínum 29. desember 2011 en málið tekið fyrir að nýju eftir íbúafund".

 

Samþykkt samhljóða.

 
9. 1201018 - Framlenging á stöðuleyfi fyrir gáma vegna CarbFix verkefnis í Svínahrauni og Þrengslum

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu SBU frá 17. janúar s.l. á framlengingu á stöðuleyfi fyrir gáma vegna CarFix rannsóknarverkefnis í Svínahrauni og Þrengslum til næstu 12 mánaða.

Um er að ræða alþjóðlegt verkefni sem Ísland er aðili að.

 
10. 1101031 - Kynning á deiliskipulagi fyrir vatnstöku við Ingólfsfjall til eigenda að Árbæjarlandi

Eftirfarandi tillaga lögð fram varðandi umsókn um framkvæmdaleyfi innan deiliskipulagsreits fyrir vatnstöku við Ingólfsfjall til lagningar rafstrengs.

 

"Deiliskipulag er til samþykktar hjá Skipulagsstofnun. Þegar það verður afgreitt þar verður framkvæmdaleyfi gefið út á grunni deiliskipulagsins".

 

Samþykkt samhljóða.

 
11. 1201026 - Skipulagslýsing, matslýsing, tilkynning

Eftirfarandi bókun lögð fram:

 

"Erindið nær til lands sem nú er þjóðlenda, en sveitarfélagið var í maí 2010 komið með samning við Ökukennarafélag Íslands til undirritunar um afnot af landi fyrir aksturskennslubrautir.

Fyrir liggur skipulags- og matslýsing og tilkynning um matsskylda framkvæmd fyrir deiliskipulag af svæði fyrir aksturskennslubrautir.

Bæjarstjórn samþykkir að heimila að gögnin fari til Skipulagsstofnunar og í kynningu fyrir væntanlegt deiliskipulag".

 

Samþykkt samhljóða.

 
12. 1109012 - Umsögn vegna deiliskipulags Reykjakots II

Eftirfarandi bókun lögð fram varðandi deiliskipulag Reykjakots II.

 

"Fyrir liggur leiðrétt deiliskipulag þar sem byggingarreitur B1 er færður fjær Hengladalsá í samræmi við tillögu Skipulagsstofnunar eða í tæpa 43 metra frá ánni.

Bæjarstjórn samþykkir þá breytingu á deiliskipulagsuppdrætti þar sem fjarlægð að byggingarreit B1, eru tæpir 43 metrar"

 

Samþykkt samhljóða.

 
13. 1201033 - Vegna umsóknar Jóns M Arasonar um heimagistingu

Óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins á umsókn Jóns Arasonar þar sem hann sækir um leyfi til reksturs gististaðar í flokki I (heimagisting) í samræmi við lög nr. 85/2007 á gististaðnum "Hjá Jonna" á heimili sínu að Oddabraut 24 Þorlákshöfn.

 

Samþykkt samhljóða að mæla með veitingu  leyfisins að uppfylltum öllum skilyrðum.

 

Sveinn Steinarsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

 
14. 1201001 - Fundagerð stjórnar SOS dags. 27. des.sl.

Fundargerð stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands frá 27. desember s.l. lögð fram.

TIl kynningar.

 
15. 1201035 - Afskriftir opinberra gjalda

Óskað er eftir því að sveitarfélagið veiti sýslumanninum á Selfossi samþykki til þess að afskrifa opinber gjöld sem sveitarfélagið leggur á aðila og koma til innheimtu hjá embætti sýslumannsins á Selfossi frá og með árinu 2011.

Við afskriftir opinberrra gjalda og sekta er farið eftir verklagsreglum útgefnum af fjármálaráðuneytinu 1. júlí 2005.

 

Samþykkt samhljóða.

 

 

  

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:25.

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 

 

___________________________                      ___________________________    

 

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 

 

___________________________                      ___________________________

 

 

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica