Bæjarstjórn

Eitthundrað sextugasti og annar fundur bæjarstjórnar Ölfuss haldinn fimmtudaginn 27. maí 2010 í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn og hófst kl. 16.30.

 

Mætt voru:

 

Birna Borg Sigurgeirsdóttir forseti bæjarstjórnar.

Sigríður Lára Ásbergsdóttir

Stefán Jónsson

Ólafur Áki Ragnarsson

Dagbjört Hannesdóttir

Henný Hafsteinsdóttir

Páll Stefánsson

Guðni Pétursson bæjarstjóri sem ritaði fundargerð.

 

     Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna en gekk síðan til dagskrár.

 

1.  Fundagerðir.

 

a.  bæjarráðs frá 12. maí s.l. samþykkt samhljóða.

b.  menningarnefndar frá 5. maí s.l. samþykkt samhljóða.

c.  hafnarstjórnar frá 6. maí s.l. samþykkt samhljóða.

d.  félagsmálanefndar frá 17. maí s.l. samþykkt samhljóða.

e.  stjórnar SASS frá 18. maí s.l. til kynningar.

f.  héraðsnefndar Árnesinga frá 8-9 apríl s.l. til kynningar.

g.  stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands frá 12. maí s.l. til kynningar.

 

2.  Kjörskrá.

 

     Lögð fram kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninganna 29. maí n.k. í Sveitarfélaginu Ölfusi.

     Á kjörskrá  eru 1.307 þar af 689 karlar og 618 konur.
     Kjörskráin samþykkt samhljóða.

     Þá var samþykkt samhljóða að fela bæjarráði fullnaðarvald til að gera þær leiðréttingar á kjörskrá sem kunna að koma upp fram að kjördegi.

 

 

 

3. Erindi.

 

a.  Samtök sunnlenskra sveitarfélaga.

 

     Kynnt bókun stjórnar SASS frá 14. maí s.l. varðandi eldgosið í Eyjafjallajökli.

 

b.  Stofnun Árna Magnússonar.

 

     Farið er fram á að sveitarfélagið styrki verkefni á vegum stofnunarinnar við skipulega

örnefnasöfnun á landinu öllu.

     Samþykkt með 5 atkvæðum  að hafna erindinu.
     Ólafur og Sigríður Lára sátu hjá.

 

c.  Orlof húsmæðra.

 

     Lögð fram skýrsla um starfsemi og ársreikningur orlofs húsmæðra í Árnes- og Rangárvallarsýslu fyrir árið 2009.

 

d.  Samtök sunnlenskra sveitarfélaga.

 

     Kynnt og lögð fram drög að  sameiginlegri viljayfirlýsingu sveitarfélaga á Suðurlandi um sameiginlegt þjónustusvæði um málefni fatlaðra.
     Stefnt er að því að endanlegur samningur liggi fyrir í september n.k.

 

e.  Deloitte hf.

 

     Lagt fram minnisblað frá endurskoðanda sveitarfélagsins Guðmundi Kjartanssyni sem samþykkt var að óska eftir á síðasta fundi bæjarstjórnar varðandi heimildir  f.v. bæjarstjóra til útgjalda á hönnun viðbygginar leikskólans Bergheima  umfram fjárhagsáætlun ársins 2009.

     Dagbjört óskaði eftir því að minnisblaðið verði birt í heild sinni með fundargerðinni.
     Samþykkt samhljóða.
 
 

     Þá lagði hún fram eftirfarandi bókun:

      “Eðlilegt verður að teljast að framkvæmdastjóri sveitarfélagsins þ.e. bæjarstjóri fylgi fjárhagsáætlun sem samþykkt er af bæjarstjórn.  Ljóst er að bæjarstjóri fór langt fram úr þeirri heimild án vitundar bæjarstjórnar við hönnun á viðbyggingu á leikskólanum Bergheimum”.

 

     Þá lagði Ólafur Áki fram eftirfarandi bókun:

     Í samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Ölfuss  sem samþykkt voru á  fundi bæjarstjórnar þann  29. júní  2006 segir í 48. grein.
 
Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn bæjarfélagsins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarfélagsins, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga.  Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningi stofnana og fyrirtækja bæjarfélagsins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem  sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.“

Bæjarráð Ölfuss fyrir árið 2009  skipa eftirtaldir:

Stefán Jónsson, formaður
Ólafur Áki Ragnarsson
Dagbjört Hannesdóttur

     Frá því að ég var kosinn bæjarfulltrúi  í Sveitarfélaginu Ölfusi árið 2006 hafa tekjur sveitarfélagsins numið um 4,6 milljörðum.  Bókun nýs meirihluta bæjarstjórnar um  framúrkeyrslu við hönnun viðbyggingar við leikskólann Bergheima  nemur um 0,64% af tekjum sveitarfélagsins á þessu tímabili.
     Sem fyrrverandi bæjarstjóri og kjörinn fulltrúi í bæjarráði tek ég fulla ábyrgð á mínum þætti þessarar framúrkeyrslu. Ég  vænti þess jafnframt  að aðrir bæjarráðsmenn geri slíkt hið sama”.

     Sigríður Lára Ásbergsdóttir lýsti yfir stuðningi sínum við bókun Ólafs.
 

f.  Lögmenn Suðurlandi.

     Lagt fram minnisblað frá lögmanni sveitarfélagsins Torfa R. Sigurðssyni sem samþykkt var að óska eftir á síðasta fundi bæjarstjórnar varðandi lögmæti þess að f.v. bæjarstjóri gaf eftir fyrir hönd sveitarfélagsiins 1. veðrétt á jörðinni Hlíðarenda gegn bankaábyrgð.
     Dagbjört Hannesdóttir óskaði eftir því að minnisblaðið yrði birt í heild sinni með fundargerðinni.
    
Samþykkt samhljóða.
 
  
      Þá lagði Ólafur Áki fram eftirfarandi bókun:

     ,,Með kaupsamningi dagsettum 23. júní 2006 seldi sveitarfélagið Icelandic Water Holdings ehf. eignirnar Hlíðarenda 1 og 2, Ölfusi, sem greiðslu var sveitarfélaginu afhent skuldabréf, sem útgefið var af kaupanda og tryggt  með veði á 1. veðrétti í Hlíðarendajörðunum. Til að greiða fyrir fjármögnun uppbyggingar vatnsverksmiðju að Hlíðarenda var á vormánuðum 2008 þess farið á leit við sveitarfélagið að það myndi,  gegn annarri sambærilegri, ábyrgð þoka veðrétti sínum á jörðinni Hlíðarenda. Í framhaldinu var sveitarfélaginu boðin bankaábyrgð frá Glitni banka þar sem bankinn ábyrgðist greiðslu á framangreindu kaupverði. Fyrir hrun hins íslenska bankakerfis voru bankaábyrgðir taldar með hvað tryggustu ábyrgðum í viðskiptum. Samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 14. október 2008 varðandi ráðstöfun eigna og skulda Glitni banka til Nýja Glitnis (nú Íslandsbanka) yfirtók Nýi Glitnir banki hf. skuldbindingar skv. ábyrgðum sem þessum. Staðfesting á framangreindu hefur borist sveitarfélaginu frá Íslandsbanka. Ábyrgð þessi er því í fullu gildi og hefur sveitarfélagið því nú ábyrgð banka fyrir því að framangreint kaupverð verði að fullu greitt. Tryggingar fyrir framangreindum efndum eru því í engu lakari heldur en þær voru með veði á 1. veðrétti í Hlíðarenda. Verksmiðja þessi er nú risin og er starfsemi þar í fullum gangi og í reynd ekkert sem bendir til þess að grípa þurfi til framangreindrar ábyrgðar. ”

 

 g.  Samband íslenskra sveitarfélaga.

     Lagt fram minnisblað frá lögfræði- og velferðarsviði Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 30. apríl s.l. yfir vinnu starfshóps til að meta kostnaðaráhrif nýrra laga um leikskóla og grunnskóla.
 

h.  Verksamningur við Garpa ehf.

      Lagður fram verksamningur milli sveitarfélagsins og Garpa ehf. um verkið “Útsýnisskífa og stígar”
     Samningsupphæð hljóðar upp á kr. 18.507.414 sem skiptast þannig að unnið verður fyrir 9.581.724 á árinu 2010 og 8.925.690 á árinu 2011.
     Samningurinn samþykktur samhljóða.

     Þá lögðu Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Stefán Jónsson fram eftirfarandi bókun:

 

     „Á kjörtímabilinu sem er að ljúka hafa framkvæmdir og uppbygging verið mikil í Sveitarfélaginu Ölfusi.
     Við Grunnskólann í Þorlákshöfn voru unnar endurbætur á stjórnunarálmu ásamt því að byggt var nýtt anddyri fyrir framan skólann. Þá var lóðin einnig endurgerð. 1400 fm. viðbygging við skólann var lokið 2005. Í Grunnskólanum í Þorlákshöfn er rúmt um nemendur og vinnuaðstaða starfsfólks góð.
     Að Egilsbraut 9 var reist 280 fm. þjónustuhús sem tekið var í notkun í upphafi kjörtímabils. Þar er miðstöð öflugs þjónustu- og félagsstarfs eldri borgara í rúmgóðum húsakynnum.
     Glæsileg íþróttamannvirki voru reist á kjörtímabilinu og aðstaða til íþróttaiðkunar bæði innan- og utanhúss er til fyrirmyndar. Lögð var mikil vinna og fjármagn í að gera þessa aðstöðu þannig að hún nýtist jafnt ungum sem öldnum til frambúðar.
     Lífæð Þorlákshafnar er höfnin. Sett var stálþil við Svartaskersbryggju og gengið frá þekju með raflögnum og vatni. Bætt aðstaða smábáta varð með nýrri smábátahöfn. Nýr lóðsbátur var keyptur. Um er að ræða lítið notaðan bát sem hentar vel í Þorlákshöfn.
     Uppbygging reiðvega hefur verið mikil um Ölfusið undanfarin fjögur ár. Með gerð reiðvega hefur verið stuðlað að aukinni ferðaþjónustu í sveitarfélaginu og þar með tryggð undirstaða þeirra ferðaþjónustufyrirtækja sem byggja starfsemi sína á hestamennsku.
     Skipulagsmál eru umfangsmikil í Ölfusi. Virkjanir á Hellisheiði gera mögulegt að styðja iðnaðuppbyggingu ýmiskonar þar sem næg raforka er undirstaða iðnaðarframleiðslu. Raforkulínur frá Hellisheiði til Þorlákshafnar eru í aðalskipulagi sem nú er í vinnslu. 535 ha. svæði er skipulagt fyrir lóðir vestan byggðar í Þorlákshöfn eru þær ætlaðar fyrir margvíslegan iðnað.
     Hér hafa verið nefndar nokkrar þeirra framkvæmda sem helstar hafa verið á líðandi kjörtímabili. Allar þessar framkvæmdir eru gerðar með það að leiðarljósi að auka búsetugæði íbúa Sveitarfélagsins Ölfuss“.

 

     Þá þakkaði forseti bæjarstjórnarmönnum gott og ánægjuríkt  samstarf á kjörtímabilinu.        

     Tóku fundarmenn undir orð forseta.
     Sleit forseti síðan þessum síðasta fundi bæjarstjórnar Ölfuss kjörtímabilið 2006-2010.

 

 

 

 

   

                                                                                  Fleira ekki gert.

                                                                                  Fundargerð síðan lesin upp og

                                                                                  samþykkt samhljóða.

                                                                                  Fundi síðan slitið kl. 17.15.

                                                                                                 GP.


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica