Eitthundrað sextugasti og þriðji fundur bæjarstjórnar Ölfuss og jafnframt fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Ölfuss kjörtímabilið 2010-2014 haldinn í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn föstudaginn 18. júní 2010 og hófst kl. 13.00.
Mætt voru:
Stefán Jónsson
Sveinn Steinarsson
Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Kjartan Ólafsson
Anna Björg Níelsdóttir
Guðmundur Baldursson
Hróðmar Bjarnason
Guðni Pétursson bæjarritari sem ritaði fundargerð.
Stefán Jónsson sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn ásamt Sigríði Láru og er eldri af þeim tveimur setti fund og bauð nýja bæjarstjórn hjartanlega velkomna til starfa.
Gekk hann síðan til dagskrár.
1. FUNDAGERÐIR
a. kjörstjórnar frá 8. maí s.l. samþykkt samhljóða.
b. kjörstjórnar frá 28. maí s.l. samþykkt samhljóða.
c. kjörstjórnar frá 29. maí s.l.
Á kjörskrá voru 1307. Greidd atkvæði voru 1032 þar af auðir og ógildir 38.
Kosning féll þannig.
A-listi fékk 255 atkvæði og 2 menn kjörna.
Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Guðmundur Baldursson
Til vara:
Ólafur Áki Ragnarsson
Ásta Margrét Grétarsdóttir
B-listi fékk 297 atkvæði og 2 menn kjörna.
Sveinn Steinarsson
Anna Björg Níelsdóttir
Til vara:
Jón Páll Kristófersson
Sigrún Huld Pálmarsdóttir
D-listi fékk 323 atkvæði og 2 menn kjörna.
Stefán Jónsson
Kristín Magnúsdóttir
Til vara:
Dagbjört Hannesdóttir
Kjartan Ólafsson
Ö-listi fékk 119 atkvæði.
Hróðmar Bjarnason
Til vara:
Sigurlaug B. Gröndal.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2. KOSNING Í NEFNDIR OG RÁÐ SVEITARFÉLAGSINS
a. Kosning forseta bæjarstjórnar
Lögð fram tillaga meirihluta A og B-lista þess efnis að Sigríður Lára Ásbergsdóttir verði kjörin forseti bæjarstjórnar til eins árs.
Tillagan samþykkt með fjórum atkvæðum. Stefán, Kjartan og Hróðmar sátu hjá.
Nýkjörinn forseti bæjarstjórnar tók síðan við fundarstjórn.
b. Kosning varaforseta bæjarstjórnar
Lögð fram tillaga meirihluta A- og B-lista þess efnis að Anna Björg Níelsdóttir verði kjörinn varaforseti bæjarstjórnar til eins árs.
Tillagan samþykkt með fjórum atkvæðum. Stefán, Kjartan og Hróðmar sátu hjá.
c. Kosning bæjarráðs
Eftirfarandi tillaga lögð fram um fulltrúa í bæjarráði til eins árs.
Aðalmenn:
Sveinn Steinarsson
Guðmundur Baldursson
Kristín Magnúsdóttir
Varamenn:
Anna Björg Níelsdóttir
Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Stefán Jónsson
Formaður bæjarráðs:
Sveinn Steinarsson
Varaformaður bæjarráðs:
Guðmundur Baldursson
Samþykkt samhljóða.
Þá lagði Hróðmar Bjarnason til að fulltrúi Ö-lista Sigrún Gröndal taki sæti sem áheyrnarfulltrúi á fundum bæjaráðs og til vara Hróðmar Bjarnason
Samþykkt samhljóða.
d. Kosning í kjörstjórn til eins árs
Aðalmenn:
Jón H. Sigurmundason
Þóra Ragnarsdóttir
Guðlaugur Óskar Jónsson
Varamenn:
Ingveldur Pétursdóttir
Alda Kristjánsdóttir
Björg Óskarsdóttir
Formaður:
Jón H. Sigurmundsson
Varaformaður:
Þóra Ragnarsdóttir
Samþykkt samhljóða.
e. Kosning skoðunarmanna
Aðalmenn:
Linda Björg Sigurðardóttir
Stefán Guðmundsson
Varamenn:
Sigurður Þráinsson
Guðrún Ágústsdóttir
Samþykkt samhljóða.
f. Kosning skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar
Aðalmenn:
Anna Björg Níelsdóttir
Gauti Guðlaugsson
Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Þór Emilsson
Guðmundur Oddgeirsson
Varamenn:
Sveinn Steinarsson
Reynir Guðfinnsson
Harpa Hilmarsdóttir
Kjartan Björnsson
Hróðmar Bjarnason
Formaður:
Anna Björg Níelsdóttir
Varaformaður:
Gauti Guðlaugsson
Samþykkt samhljóða.
g. Kosning félagsmálaráðs
Aðalmenn:
Jón Páll Kristófersson
Helena Helgadóttir
Harpa Hilmarsdóttir
Dagbjört Hannesdóttir
Íris Ellertsdóttir
Varamenn:
Eyrún Hafþórsdóttir
Ágúst Örn Grétarsson
Sæmundur Gíslason
Kristín Magnúsdóttir
Ingibjörg Þorleifsdóttir
Formaður:
Jón Páll Kristófersson
Varaformaður:
Helena Helgadóttir
Samþykkt samhljóða.
h. Kosning hafnarstjórnar Þorlákshafnar
Aðalmenn:
Þráinn Jónsson
Guðmundur Baldursson
Stefán Jónsson
Varamenn:
Sigurður Garðarsson
Ármann Einarsson
Guðni Birgisson
Formaður:
Þráinn Jónsson
Varaformaður:
Guðmundur Baldursson.
Samþykkt samhljóða.
Hróðmar Bjarnason lagði síðan fram eftirfarandi tillögur:
“Samkvæmt reglum og lögum (samþykktum) sveitarfélagsins, nánar tiltekið 5. lið 57. greinar um Hafnarstjórn, skulu fimm aðalmenn og jafnmargir til vara sitja í Hafnarnefnd. Þessi skipan á rót sína að rekja til reglugerð nr. 290/2005 (Hafnarreglugerð fyrir Þorlákshöfn), þar kemur fram að kjósa skuli 5 aðalmenn og jafnmarga til vara. Undirritaður óskar þess að þessari reglugerð verði fylgt. Með fjölgun fulltrúa, má einnig athuga hvort ekki megi breikka verksvið nefndarinnar, þannig að hún leitist einnig við að markaðsetja höfnina og sveitarfélagið þar með ýti undir hafnartengda starfsemi í Þorlákshöfn”.
“Stofnuð verði sérstök Umhverfisnefnd. Á síðasta kjörtímabili voru umhverfimál hluti af verkefnasviði Skipulags- , byggingar og umhverfisnefndar. Öll framboðin lögðu áherslu á umhverfismál í sínum málflutningi. Miðað við vægi þeirra þar og áherslum meirihlutans í umhverfismálum samkvæmt málefnasamningi, þarf að gera umhverfismálum hærra undir höfði í stjórnskipan sveitarfélagsins. Breyta þarf samþykktum sveitarfélagsins, þannig að þetta megi verða að veruleika”
Samþykkt samhljóða að fresta tillögum Hróðmars til næsta reglulegs fundar bæjarstjórnar.
i. Kosning fræðslunefndar
Aðalmenn:
Ásta Margrét Grétarsdóttir
Henný Björg Hafsteinsdóttir
Sigrún Huld Pálmarsdóttir
Katrín Hannesdóttir
Sigurlaug Gröndal.
Varamenn:
Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Ingvi Þór Þorkelsson
Oddfreyja Oddfreysdóttir
Ármann Einarsson
Guðbjörg Heimisdóttir
Formaður:
Ásta Margrét Grétarsdóttir
Varaformaður:
Henný Björg Hafsteinsdóttir
Samþykkt samhljóða.
j. Kosning fulltrúa í skólanefnd grunnskólans í Hveragerði
Aðalmenn:
Dagbjört Helga Guðmundsdóttir
Baldur Guðmundsson
Varamenn:
Charlotte Clausen
Ingibjörg Kjartansdóttir
Samþykkt samhljóða.
k. Kosning menningamálanefndar
Aðalmenn:
Magnþóra Kristjánsdóttir
Valgerður Guðmundsdóttir
Jenný Dagbjört Erlingsdóttir
Brynjólfur Hjörleifsson
Róbert Dan Bergmundsson
Varamenn:
Jóhanna M. Ingimarsdóttir
Hrönn Guðmundsdóttir
Ólöf Haraldsdóttir
Sigþrúður Harðardóttir
Rúnar Gunnarsson
Formaður:
Magnþóra Kristjánsdóttir
Varaformaður:
Valgerður Guðmundsdóttir
Samþykkt samhljóða.
l. Kosning fjallskilanefndar
Aðalmenn:
Snorri Þórarinsson
Halldór Guðmundsson
Páll Stefánsson
Kjartan Ólafsson
Valdimar Jónasson
Varamenn:
Sæmundur Gíslason
Gunnar Arnarson
Formaður:
Snorri Þórarinsson
Varaformaður:
Páll Stefánsson
Samþykkt samhljóða.
m. Kosning íþrótta- og æskulýðsnefndar
Aðalmenn:
Ágúst Örn Grétarsson
Hákon Hjartarson
Anna S. Ingvadóttir
Skúli Skúlason
Valur Rafn Halldórsson
Varamenn:
Þórunn Jónsdóttir
Jón Páll Kristófersson
Ársæll Jónsson
Guðbjartur Örn Einarsson
Brynjólfur Magnússon
Formaður:
Ágúst Örn Grétarsson
Varaformaður:
Hákon Hjartarson
Samþykkt samhljóða.
n. Kosning fulltrúa í starfskjaranefnd
Aðalmenn:
Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Bæjarstjóri
Samþykkt samhljóða.
o. Kosning þjónustuhóps aldraðra
Aðalmenn:
Helgi Hauksson
Bæjarstjóri
Bergdís Sigurðardóttir
Kristinn Kristinsson
Formaður:
Helgi Hauksson
Samþykkt samhljóða.
p. Kosning fulltrúa í Héraðsnefnd Árnesinga
Aðalmenn:
Sveinn Steinarsson
Stefán Jónsson
Varamenn:
Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Kristín Magnúsdóttir
Samþykkt samhljóða.
q. Kosning fulltrúa í Almannavarnarnefnd Árnessýslu.
Aðalmaður:
Bæjarstjóri.
Varamaður:
Bæjarritari
Samþykkt samhljóða
3. Málefnasamningur meirihluta.
Málefnasamningur A- og B-lista lagður fram til kynningar.
Sigríður Lára gerði grein fyrir og fór yfir helstu liði í málefnasamningi um samstarf A-lista fyrir okkur öll og B-lista framfarasinna í bæjarstjórn á komandi kjörtímabili.
Kjartan Ólafsson gerði samstarfssmamning meirihlutaflokkanna að umtalsefni og spurðist fyrir um nokkur atriði í honum.
Þá svöruðu fulltrúar meirihluta fyrirspurnum fulltrúa minnihluta bæjarstjórnar varðandi nánari útfærslur á ýmsum atriðum í samningnum.
Þá lagði Hróðmar Bjarnason fram eftirfarandi bókun:
“Fyrir hönd Ö - listans vill undirritaður óska nýrri bæjarstjórn til hamingju með málefnasamninginn. Sérstaklega lýst okkur í Ö – listanum vel á að meira samstarfs er óskað við öll framboð. Þetta birtist hvað skýrast í að öllum framboðum er ætluð þátttaka í þeim starfsnefndum sem meirihlutinn ráðgerir að stofna. Þessu ber að fagna.
Nú er þessi málefnasamningur mjög almennt orðaður. Við sem stöndum að Ö – listanum hlökkum til að sjá hvernig staðið verði að markaðssetningu á sveitarfélaginu sem fýsilegum búsetukosti fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Ljóst er að markaðsstarfið þarf að vera markvissara en áður.
Aukið vægi ferðaþjónustunnar og stofnun sjóðs til styrktar frumkvöðlastarfi í sviði ferðaþjónustunnar er mjög til bóta.
Sú leið sem valin er varðandi leikskólabyggingu er eðlilegt framhald á núverandi skipan mála. Þörf er á byggingu nýs leikskóla, en þá byggingu þarf að aðlaga fjárhagsstöðu og getu sveitarfélagsins!
Einnig þarf að tryggja að íbúar dreifbýlisins hafi öruggan aðgang að leikskólaplássum fyrir sín börn. Óeðlilegt er að leikskólapláss séu ekki í þeim bæjarfélögum, þar sem framtíðarskólaganga þeirra mun verða.
Fagleg ráðning bæjarstjóra var eitt af stefnumiðum Ö – listans og þeirri viðleitni meirihlutans ber einnig að fagna, sem og að gera stjórnsýsluna gagnsærri og skilvirkari. Almennur vilji er í samfélaginu fyrir opinni stjórnsýslu.
Ljóst er að umhverfisráðherra þarf að samþykkja breytingar á aðalskipulagi 2002-2014, áður en unnt er að ganga frá aðalskipulagi sveitarfélagsins 2010-2022. Forvitnilegt er að vita hvort núverandi meirihluti hafi myndað sér skoðun um lausn mála , ef ráðherra samþykkir ekki fyrirhugaðar breytingar á aðalskipulagi 2002-2014.
Æskilegt er, samanber fyrrnefndar breytingartillögur við nefndarskipan, að stofnuð verði umhverfisnefnd. Verkefnin eru ærin. Hugmyndir meirihlutans um heildarstefnumótun í umhverfismálum, áframhaldandi vinnu í átt til vistvænna samfélags, ýta enn frekar undir skipan nefndarinnar”.
4. Ráðning bæjarstjóra.
Sigríður Lára gerði grein fyrir þeirri ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar að auglýsa eftir bæjarstjóra.
Fyrir fundi lágu 2 tilboð frá Capacent og Hagvangi um að sjá um ráðningarferlið.
Lagði hún til að gengið verði til samninga við Capacent á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs og að staðan yrði auglýst strax eftir helgi. Þá lagði hún til að bæjarráði verði falið að fara með vinnslu málsins en bæjarstjórn myndi síðan ráða bæjarstjóra og ganga frá ráðningarsamningi um tímalengd kaup og kjör.
Samþykkt með 5 atkvæðum. Kjartan og Stefán sátu hjá..
Þá lagði hún til að bæjarritara verði falið að gegna starfi bæjarstjóra uns gengið hefur verið frá ráðningu nýs bæjarstjóra.
Samþykkt samhljóða.
5. Skólastefna Sveitarfélagsins Ölfuss.
Lögð fram tillaga að skólastefnu sveitarfélagsins sem unnið hefur verið að á vegum sérstaks starfshóps sem skipaður var af bæjarstjórn haustið 2009.
Sigríður Lára fór yfir helstu liði hennar og útskýrði.
Tillagan síðan samþykkt samhljóða.
6. Hæstaréttardómur um þjóðlendur í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Lagður fram dómur Hæstaréttar frá 3. júní s.l. þar sem staðfestur var úrskurður Óbyggðanefndar frá 31. maí 2006 þess efnis að landsvæði það sem nefnt er Ölfusafréttur og Selvogsafréttur eins og þeir eru afmarkaðir teljist þjóðlenda í skilningi laga nr. 58/1998.
7. Erindi.
a. Umsóknir um starf við grunnskólann.
Samþykkt samhljóða að tillögu skólastjóra að ráða Torfa Hjörvar Björnsson sem smíðakennara við Grunnskólann í Þorlákshöfn veturinn 2010-2011.
Þrjár aðrar umsóknir bárust um stöðuna.
b. Velferðarvaktin.
Þar sem því er beint til sveitarfélaga að leita allra leiða til að tryggja ungmennum 17 og 18 ára vinnu í sumar og láta þau sem ekki fengu vinnu í fyrrasumar fá forgang að störfum.
c. Réttur lögfræðistofa.
Lagt fram bréf lögfræðistofunnar Réttur varðandi stjórnsýslu sveitarfélagsins vegna framkvæmda við hesthús að Faxabraut 6 Þorlákshöfn.
d. Samband íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi kjör fulltrúa á landsþing sambandsins en samkvæmt því á Sveitarfélagið Ölfus 2 fulltrúa.
Samþykkt samhljóða að kjósa fulltrúa á landsþingið á næsta fundi bæjarstjórnar.
Fleira ekki gert.
Fundargerð lesin upp
og samþykkt samhljóða.
Fundi síðan slitið kl. 14.40.
GP.

