Bæjarstjórn

 

          Eitthundrað sextugasti og fjórði  fundur bæjarstjórnar Ölfuss haldinn í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn fimmtudaginn 29. júlí 2010 og hófst kl. 16:30

Mætt voru:

Sigríður Lára Ásbergsdóttir forseti bæjarstjórnar
Guðmundur Baldursson
Sveinn Steinarsson
Anna Björg Níelsdóttir
Stefán Jónsson
Kristín Magnúsdóttir
Hróðmar Bjarnason
Hafdís Sigurðardóttir sem ritaði fundargerð.

  Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna og þá sérstaklega Kristínu Magnúsdóttur sem situr sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.

     Þá óskaði hann eftir heimild fundarins til þess að setja fundagerð bæjarráðs frá 27. júlí s.l. á dagskrá undir lið 1.d. og var það samþykkt samhljóða.

     Gekk forseti síðan til dagskrár.

 

1.  FUNDAGERÐIR;

a)  bæjarráðs frá 1. júlí sl. samþykkt samhljóða.

b)  bæjarráðs frá 15. júlí sl. samþykkt samhljóða.

c)  fulltrúaráðs BÁ frá 14. júlí sl. lögð fram til kynningar.

d)  bæjarráðs frá 27. júlí sl. samþykkt samhljóða.

2. ERINDI ER HAFA BORIST;

a. Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna landsþings, kosning fulltrúa.

       Lagt  fram erindi um boðun til XXIV. Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri dagana 29. september til 1. október 2010.

      Lagt er til að fulltrúar sveitarfélagsins verði:

      Sigríður Lára Ásbergsdóttir og Kristín Magnúsdóttir. Varamenn verði: Sveinn Steinarsson og Stefán Jónsson.  Auk þeirra sækir bæjarstjóri þingið.

     Samþykkt samhljóða.

b.  Skólahreysti.

      Þar sem óskað er eftir fjárstuðningi að upphæð kr. 50.000.- til að standa straum af kostnaði vegna Skólahreysti 2010.

      Samþykkt samhljóða að verða við erindinu.

c.  Kosning fulltrúa í fulltrúaráð Brunavarna Árnessýslu.

      Lagt er til að fulltrúi sveitarfélagsins verði bæjarstjóri. Varamaður hans verði bæjarritari.

      Samþykkt samhljóða.

d.  Þorsteinn Guðnason.

      Þar sem hann kynnir verkefni  í matvælaiðnaði með “grænni” orku og og á sviði fiskeldis. Þá óskar hann eftir upplýsingum um hvaða hvata Ölfus býður nýjum fyrirtækjum almennt og viðhorfi sveitarfélagsins til þessara verkefna.

     Í framhaldi af fundi sem fulltrúar sveitarfélagsins áttu  með málshefjanda fyrr í þessum mánuði um málið hafa verið unnin drög að bréfi um afstöðu sveitarfélagsins til verkefnanna.

     Drögin samþykkt samhljóða og bæjarstjóra falið að ganga formlega frá málinu. 

3.  Ráðning bæjarstjóra Sveitarfélagsins Ölfuss.

Á fundi sínum í dag, 29. júlí 2010 hefur bæjarstjórn Ölfuss samþykkt samhljóða að ráða Ólaf Örn Ólafsson sem bæjarstjóra sveitarfélagsins til næstu fjögurra ára.

      Á bæjarstjórnarfundi 18. júní sl. samþykkti bæjarstjórn að fela Capacent að annast ráðningarferli nýs bæjarstjóra. Bæjarráði var falið að fara með vinnslu málsins en bæjarstjórn myndi síðan ráða bæjarstjóra og ganga frá ráðningarsamningi. Alls sóttu 30 aðilar um starf bæjarstjórans í Ölfusi en 3 drógu umsókn sína til baka. Að afloknu hæfnismati Capacent valdi bæjarráð og forseti bæjarstjórnar 6 umsækendur sem kallaðir voru til viðtals.  Að viðtölunum komu fulltrúar allra lista. Í kjölfarið voru þrír aðilar taldir hæfastir til að gegna stöðu bæjarstjóra sveitarfélagsins. Ákveðið var þá að ganga til viðræðna við Ólaf Örn Ólafsson og liggur nú fyrir samkomulag þess efnis að hann gegni stöðu bæjarstjóra sveitarfélagsins til næstu fjögurra ára. Ólafur Örn hefur störf 5. ágúst nk.

      Ólafur Örn er  52 ára að aldri, kvæntur Ásu Ólafsdóttur og eiga þau 2 syni og 2 dætur. Hann er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði. Hann hefur undanfarin ár starfað sem bæjarstjóri í Grindavík, en áður var hann forstöðumaður Eimskip Canada Inc. með aðsetur í St. John´s á Nýfundnalandi.

       Bæjarstjórn lýsir yfir mikilli ánægju með ráðningu Ólafs Arnars og væntir mikils af störfum hans í þágu samfélagsins í Ölfusi.

      Bæjarstjórn Ölfuss vill þakka öllum umsækjendum fyrir áhuga þeirra á stöðu bæjarstjóra sveitarfélagsins.

      Tillagan samþykkt samhljóða.

      Þá tók nýráðinn bæjarstjóri til máls og þakkaði gott traust til sín og væntanlegra starfa sinna.  Lýsti sig ánægðan að vera kominn í Sveitarfélagið Ölfus til að vinna að góðum verkum með góðu fólki.

 

 


  
                                                                            Fleira ekki gert.
                                                                            Fundargerð lesin upp
                                                                            og samþykkt samhljóða.
                                                                            Fundi síðan slitið kl.  17:00  
                                                                                   HS.

                                                                    


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica