Bæjarstjórn

  

       Eitthundraðsextuagsti og fimmti fundur bæjarstjórnar Ölfuss haldinn fimmtudaginn 26. ágúst. 2010 í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn og hófst kl. 16.30.

Mætt voru:

Sigríður Lára Ásbergsdóttir forseti bæjarstjórnar
Guðmundur Baldursson
Sveinn Steinarsson
Anna Björg Níelsdóttir
Stefán Jónsson
Kristín Magnúsdóttir
Hróðmar Bjarnason
Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri
Guðni Pétursson bæjarritari sem ritaði fundargerð

 

     Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna, þá óskaði hún eftir heimild fundarins til þess að taka á dagskrá fundarins undir lið 10 g fundargerð bæjarráðs frá 19. ágúst. s.l. og var það samþykkt samhljóða.

    1.  Málefni Sorpstöðvar Suðurlands.

        Á fundinn mætti Guðmundur Tryggvi Ólafsson framkvæmdatjóri Sorpstöðvar Suðurlands
    Fór hann yfir helstu áhersluþætti í starfsemi stöðvarinnar svo og framtíðaráform.  Svaraði
    hann síðan spurningum nefndarmanna.
     Vék hann síðan af fundi.

    2.  Tillaga að breytingum á gjaldskrá Þorlákshafnar.

          Lögð fram tillaga að breytingum á gjaldskrá Þorlákshafnar sem taka á gildi þann 1.  
     september 2010.
     Tillagan var samþykkt á fundi hafnarstjórnar 5. ágúst. sl.
     Tillagan samþykkt samhljóða.

 

     3.  Aðalskipulag jarðarinnar Ósgerði Ölfusi

          Lagt fram bréf frá lögmannsstofu Ingimars Ingimarsson f.h. Skúla Gunnars Sigfússonar
     eiganda jarðarinnar Ósgerði þar sem óskað er eftir að 9 ha. land jarðarinnar Ósgerði verði
     aftur skilgreint sem landbúnaðarland í aðalskipulagi sveitarfélagsins.
     Eftirfarandi tillaga varðandi málið lögð fram og samþykkt samhljóða:

    „ Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss samþykkir að fara í óverulega breytingu á aðalskipulagi, 2002-2014, skv. 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m. sbr. á umræddu svæði. Rökin eru byggð á að aðliggjandi land er flokkað sem landbúnaðarland og ekki er ástæða til að taka hluta af landinu og merkja það sérstaklega fyrir frístundabyggð. Heimilt verði að vera með frístundahús áfram á svæðinu og einnig að heimila lögheimili. Grenndarkynning hefur farið fram með eigendum landsins og hafa allir samþykkt breytingu á landnotkun, fella niður merkinguna F17 og setja inn landbúnaðarland, enda skerðist ekki afnotaréttur þeirra sem fyrir eru, að landinu.
     Sveitarstjórn Ölfuss lýsir því yfir að hún taki að sér að bæta það tjón sem einstakir aðilar kunna að verða fyrir við breytinguna og kemur sá texti inn á aðalskipulagsuppdráttinn“.
     Skipulags- og byggingafulltrúa falið að klára málið.

     4.  Skipan fulltrúa í stjórn Uppgræðslusjóðs Ölfuss.

   Lögð fram tillaga þess efnis að fulltrúi sveitarfélagsins í stjórninni verði Gunnþór Guðfinnsson og sameiginlegur fulltrúi sveitarfélagsins og OR verði Helga Ragna Pálsdóttir.
Samþykkt samhljóða.

     5.  Rekstraryfirlit bæjarsjóðs og stofnana janúar-júní. 2010.

     Lagt fram rekstraryfirlit bæjarsjóðs og stofnana fyrir tímabilið janúar og júní 2010 . Fulltrúar meirihlutans lögðu fram þá bókun að rekstur sveitarfélagsins væri   í góðu jafnvægi miðað við gildandi fjárhagsáætlun.
     Kristín Magnúsdóttir, Stefán Jónsson og Hróðmar Bjarnason lögðu fram eftirfarandi
bókun:
     “Um leið og við fögnum framlagningu rekstraryfirlits fyrir tímabilið 1.1.10 – 30.6. 10 þá óskum við eftir því að bæjarfulltrúar fái reglulega upplýsingar um eftirfarandi:

Rekstur með samanburði við áætlun og fyrra ár. Deildarskipt.
Lausafjárstöðu
Eignfærslur/fjárfestingar.

     Óskum við eftir að þessar upplýsingar verði lagðar fram á hverjum bæjarstjórnarfundi.  Á ágústfundi myndu liggja fyrir upplýsingar fyrir tímabilið 1.1.- 31.7.
    Ábyrgð bæjarfulltrúa er mikil.  Upplýsingarnar sem hér að ofan er óskað hjálpa bæjarfulltrúum að gera sér grein fyrir rekstri sveitarfélagsins og taka upplýstar ákvarðanir byggðar á raunstöðu hverju sinni.

 

      6.  Lóðarumsókn.

     Trésmiðja Heimis sækir um  lóðina Básahraun 41 undir byggingu einbýlishúss á 1 hæð.
     Samþykkt samhljóða að vísa umsókninni til skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar til frekari skoðunar og afgreiðslu.

      7.  Skólaakstur Ölfusi.

    Lagður fram samningur um skólaakstur frá Hlíðardalsskóla til Þorlákshafnar skólaárið 2010-2011 milli sveitarfélagsins sem verkkaupa og Styrmis Geirs Ólafssonar og Önnu Margrétar Þorbjarnardóttur sem verktaka.
     Samningurinn samþykktur samhljóða.

       8. Samningur um akstursæfingasvæði á Bolöldusvæði.

     Lögð fram drög  að samningi milli sveitarfélagsins og Ökukennarfélags Íslands um land á Bolöldusvæðinu undir akstursæfingasvæði.
     Einnig lagðar fram ábendingar frá ökukennarafélaginu varðandi samningsdrögin.
     Samþykkt samhljóða fela bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

        9.  Umsögn um frummatskýrslu fyrir Þorlákshafnarlinur 2 og 3.

     Eftirfarandi tillaga að umsögn lögð fram:

a.  Fara skal að öllu eftir aðalskipulagi um umferð á vatnsverndarsvæðum.
b.  Unnið skal með hellarannsóknarfélaginu um val á línustæði þar sem vitað er um
     hella vestan, sunnan og austan við Geitafell.
c.  Góð samvinna skal vera við landeigendur um línulagnir og framkvæmdir varðandi
     þær.

         d.  Allt efni til framkvæmda sem notað er við möstur og vegi skal tekið úr viður-
              kenndum námum.
        e.  Gæta skal að frágangi eftir röskun á landi að það sé gengið vel frá því  og allt
             umframefni sé flutt burtu.
        f.   Slóðar sem myndast við framkvæmdina skal halda lokuðum og setja upp varnir eftir
             framkvæmd þannig að ekki sé verið að nota þá við akstur vélhjóla eða farartækja
             sem ekki eiga erindi til eftirlits með línulögnunum.
        g.  Tillaga skipulags- bygginga- og umhverfisnnefndar er að lega línunnar um Þrengslin sé
             austan við þjóðveginn og þveri hann sunnan Lambafells.

      Framkvæmdaleyfi verður gefið út áður en framkvæmdir hefjast og þar tilgreint hvernig staðið skal að henni.

      Samþykkt með sex atkvæðum.  Hróðmar Bjarnason sat hjá.

10. Fundargerðir.

a.  Skipulags- bygginga og umhverfisnefndar frá 17. ágúst s.l. staðfest samhljóða.
b.  Félagsmálaráðs frá 23. ágúst s.l. staðfest samhljóða.
c.  Héraðsráðs Árnesinga frá 4. ágúst s.l. til kynningar.
d.  Héraðsnefndar Árnesinga frá 20. júlí. s.l. til kynningar.
e.  Menningarnefndar Ölfuss frá 18. ágúst s.l. staðfest samhljóða.
f.  Stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands frá 16. ágúst til kynningar.
g.  Bæjaráðs frá 19. ágúst s.l. staðfest samhljóða.

 

 

 

 

                                                                       Fleira ekki gert.
                                                                       Fundargerð lesin upp
                                                                       og samþykkt samhljóða.
                                                                       Fundi síðan slitið kl. 18.20.
                                                                                   GP.

 

 

 

 

 

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica