Bæjarstjórn

   

     Eitthundraðasti og tíundi fundur bæjarstjórnar Ölfuss haldinn fimmtudaginn 5. október. 2006 í Ráðhúsi Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn og hófst kl. 16.30.

 

Mætt voru:

 

Lára Ásbergsdóttir varaforseti bæjarstjórnar

Stefán Jónsson

Ágúst Grétarsson

Dagbjört Hannesdóttir

Ásgeir Ingvi Jónsson

Páll Stefánsson

Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri

Guðni Pétursson bæjarritari sem ritaði fundargerð.

 

     Forseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna  til fundar.

     Þá óskaði hún eftir heimild fundarmanna til að taka á dagskrá undir lið 3c. tillögu að

breyttu deiliskipulagi sorpurðunarsvæðis Sorpstöðvar Suðurlands að Kirkjuferjuhjáleigu unnið af Landform ehf.

     Samþykkt samhljóða.

     Gekk hún síðan til dagskrár.

 

1.  FUNDAGERÐIR.

 

a.  bæjarráðs frá 14. september s.l. samþykkt samhljóða.

b.  heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 6. og 18. september s.l. til kynningar.

     Eftirfarandi bókun varðandi lið 6 í fundargerðinni frá 6. september s.l. lögð fram:

     “Bæjarstjórn Ölfuss lýsir furðu sinni á þeirri ákvörðun Heilbrigðisnefndar Suðurlands að leggja til að starfsleyfi vegna hausaþurrkunar Lýsis hf., verði gefið út til 18 mánaða.

     Um er að ræða ákvörðun sem er þvert á vilja bæjarstjórnar Ölfuss og í hróplegri andstöðu við fyrri ákvörðun Heilbrigðisnefndar Suðurlands um leyfisveitingu.  En í janúar 2006 fékk fyrirtækið starfsleyfi til sex mánaða með ákveðnum skilyrðum sem snéru sérstaklega að úrbótum á lyktarmengun.

     En í bókun heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 11. janúar sl. segir: Framhaldið málefnum Lýsis hf. sem frestað var á síðasta fundi, vegna endurnýjunar starfsleyfa. Farið yfir greinargerð fyrirtækisins og ráðgjafaskýrslu Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins. Ennfremur

 

lagt fram afrit af bókun bæjarráðs Ölfuss frá okt. sl. þar sem fram kemur vilji til að veita Lýsi hf. starfsleyfi tímabundið til 6 mánaða.  Heilbrigðisnefnd Suðurlands samþykkir að veita Lýsi hf. starfsleyfi til 6. mánaða. Ákvarðanir um áframhaldandi starfsleyfi verða teknar á grundvelli þess árangurs sem náðst hefur á þeim tíma.”

     Þrátt fyrir þessi skilyrði hafa engar úrbætur orðið og hefur lyktarmengun frá fyrirtækinu verið þannig að hún er algjörlega óásættanleg fyrir íbúa Þorlákshafnar. 

     Bæjarstjórn Ölfuss skorar á Heilbrigðisnefnd Suðurlands að endurskoða ákvörðun sína um útgáfu starfsleyfis til fyrirtækisins”.

    Samþykkt samhljóða.

c.  skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar frá 2. október s.l. samþykkt samhljóða.

 

2.  ERINDI.

 

a.  Erindi fyrir fjárlaganefnd Alþingis.

 

     Lögð fram tillaga að þeim málum sem sveitarfélagið mun leggja megináherslu á að tekið verði tillit til við gerð fjárlaga 2007:

 

  1. Hafnarmál.
  2. Báta- og vélasafn.
  3. Landgræðsla, vísinda og fræðasetur.
  4. Landbúnaðarháskólinn að Reykjum í Ölfusi.
  5. Sjóminjar í Þorlákshöfn.
  6. Uppbygging tengivega og safnvega í dreifbýli Ölfuss.
  7. Endurbætur á Þrengslavegi – Suðurstrandarvegur – Vegur að hafnarsvæði Þorlákshafnar.

 

Tillagan samþykkt samhljóða.

 

b.  Tillaga að matsáætlun fyrir jarðgufuvirkjun við Hverahlíð.

 

     Óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins um tillögu að matsáætlun fyrir jarðgufuvirkjun við Hverahlíð skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 106/2000 með síðari breytingum og 15. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.

 

     Eftirfarandi tillaga lögð fram:

 

     “Bæjarstjórn Ölfuss hefur farið yfir matsáætlun vegna fyrirhugaðrar jarðgufuvirkjunar við Hverahlíð í Ölfusi.

    Bæjarstjórn telur að í áætluninni komi fram allar þær upplýsingar sem kveðið er á um í 15 gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum og gerir ekki athugasemdir við matsáætlunina”.

     Tillagan samþykkt samhljóða.

    

c.  Tillaga að matsáætlun fyrir jarðgufuvirkjun á Ölkelduhálsi

 

     Óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins um tillögu að matsáætlun fyrir jarðgufuvirkjun á Ölkelduhálsi skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 106/2000 með síðari breytingum og 15. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.

 

     Eftirfarandi tillaga lögð fram:

 

     “Bæjarstjórn Ölfuss hefur farið yfir matsáætlun vegna fyrirhugaðrar jarðgufuvirkjunar við Ölkelduháls í Ölfusi.

     Bæjarstjórn telur að í áætluninni komi fram allar þær upplýsingar sem kveðið er á um í 15 gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum og gerir ekki athugasemdir við matsáætlunina”.

      Tillagan samþykkt samhljóða.

 

d.  Tillaga að reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.

 

     Lögð fram tillaga að reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka í sveitarfélaginu.

     Tillagan samþykkt samhljóða.

 

e.  Tillaga að reglum um ferðaþjónustu fatlaðra í sveitarfélaginu og gjaldskrá.

 

     Lögð fram tillaga að reglum um ferðaþjónustu fatlaðra í sveitarfélaginu svo og gjaldskrá fyrir þjónustuna.

     Tillagan svo og gjaldskráin samþykkt samhljóða.

 

f.  Umsókn um lóð við Hafnarskeið.

 

     Landstólpi ehf. sækir um lóðina Hafnarskeið 16 undir byggingu vöruskemmu.

     Samþykkt samhljóða að úthluta fyrirtækinu lóðinni með venjulegum skilmálum og málinu vísað til skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar til frekari afgreiðslu.

 

g.  Umsókn um lóð við Hraunbakka.

 

     Ásgeir Eiríksson ehf. sækir um lóðina Hraunbakka 3 undir byggingu iðnaðarhúss.

     Samþykkt samhljóða að úthluta fyrirtækinu lóðinni með venjulegum skilmálum og málinu vísað til skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar til frekari afgreiðslu.

 

h.  Umsókn um lóð við nýja innkeyrslu í Þorlákshöfn.

 

     Þröstur Garðarsson sækir um lóð norðaustanmegin við hringtorgið við nýja innkeyrslu til Þorlákshafnar undir byggingu veitingastaðar og bensínstöðvar.

     Eftirfarandi tillaga lögð fram:

     “Þar sem ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu er ekki hægt að úthluta lóðinni endanlega til umsækjanda en bæjarstjórn veitir Þresti vilyrði fyrir lóðinni þar til endanlegt deiliskipulag liggur fyrir og mun umsókn hans þá verða tekin aftur fyrir formlega”

     Samþykkt samhljóða.

     Sigríður Lára Ásbergsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.

 

i.  Umsókn um lóð við nýja innkeyrslu í Þorlákshöfn.

 

     Smári Sveinsson og Hannes Sigurðsson sækja um iðnaðar og verslunarlóð fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags við nýju innkeyrsluna til Þorlákshafnar.

     Eftirfarandi tillaga lögð fram:

 

     “Þar sem ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag af svæðinu er ekki hægt að úthluta lóð til umsækjenda endanlega en bæjarstjórn veitir Smára og Hannesi vilyrði fyrir lóð á svæðinu þar til endanlegt deiliskipulag liggur fyrir og mun umsóknin þá verða tekin aftur fyrir formlega”

     Samþykkt samhljóða.

 

j.  Umsókn um lóðir.

 

     Páll R. Pálsson fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags sem heita á E30 sækir um eftirtaldar lóðir undir byggingu einbýlishúsa.

 

  • Pálsbúð 3
  • Pálsbúð 11
  • Pálsbúð 21
  • Pálsbúð 23
  • Pálsbúð 25
  • Þrjár lóðir í Básahrauni.

 

     Samþykkt samhljóða að úthluta fyrirtækinu lóðunum Pálsbúð 3 og Pálsbúð 11 með venjulegum skilmálum og málinu vísað til skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar til frekari afgreiðslu.

     Afgreiðslu umsóknar fyrirtækisins um lóðir í Básahrauni frestað þar sem lóðunum hefur þegar við úthlutað til annars aðila

 

k.  Umsókn um lóðir.

 

     Gljúfurá ehf. sækir um eftirtaldar lóðir undir byggingu einbýlishúsa.

 

  • Pálsbúð 21
  • Pálsbúð 23
  • Pálsbúð 25

 

     Samþykkt samhljóða að úthluta fyrirtækinu lóðunum og málinu vísað til skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar til frekari afgreiðslu.

 

 

3.  BRÉF TIL BÆJARSTJÓRNAR.

 

a.  VGS ehf.

 

    Lagt fram  afrit af bréfi verkfræðistofu Guðjóns Sigfússonar ehf. dags. 28. sept. s.l. til skipulags- bygginga- og umhverfisnefndar varðandi upplýsingar vegna lóðar fyrir fiskþurrkunarverksmiðju Lýsis hf. í Þorlákshöfn.

     Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að svara erindinu.

 

b.  Samband íslenskra sveitarfélaga.

 

     Kynnt niðurstaða gerðardóms vegna deilu ríkis og sveitarfélaga um kostnaðarskiptingu vegna stofnkostnaðar, meiri háttar viðhalds og tækjakaupa svæðissjúkrahúsa, deildarsjúkrahúsa og almennra sjúkrahúsa, en dómurinn féll sveitarfélögunum í vil.

 

 

c.  Deiliskipulag sorpurðunarsvæðis Kirkjuferjuhjáleigu.

 

     Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi sorpurðunarsvæðis Sorpstöðvar Suðurlands að Kirkjuferjuhjáleigu Ölfusi unnin af Landformi ehf.

     Tillagan var samþykkt á fundi skipulags- bygginga- og umhverfisnefnd Ölfuss þann 8. nóvember 2005 og er um lítilsháttar orðalagsbreytingar að ræða.

     Samþykkt samhljóða.

 

 

 

                                                                        Fleira ekki gert.

                                                                        Fundargerð lesin upp

                                                                        og samþykkt samhljóða.

                                                                        Fundi síðan slitið kl. 17.35.

                                                                                    GP.

 

    

   

 

 

 

 

 

 

 

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica