| 1. |
1011042 - Forsvarsmenn Fertils koma til fundar. |
|
|
Á fundinn voru mættir forsvarsmenn Fertils ehf. og kynntu hugmyndir að byggingu áburðarverksmiðju í sveitarfélaginu.
Þá kynntu þeir þá vinnu sem fram hefur farið við verkefnið fram að þessu.
Fram kom að athafnasvæði verksmiðjunnar þarf að vera um 55 ha.
Þá óskuðu þeir eftir því að eldri viljayfirlýsing milli félagsins og sveitarfélagsins um uppbyggingu verksmiðjunnar yrði endurnýjuð.
Svöruðu þeir síðan spurningum nefndarmanna.
Véku þeir síðan af fundi.
Samþykkt samhljóða að boða til aukafundar bæjarstjórnar um málið 29. nóvember n.k.
|
| |
|
|
| 2. |
1011032 - Sjónarhóll óskar eftir styrk. |
|
|
Sjónarhóll ráðgjafamiðstöð sækir um rekstrarstyrk.
Bæjarstjórn sér sér ekki fært að verða við erindinu og því hafnað samhljóða.
|
| |
|
|
| 3. |
1011035 - Beiðni um viðbótarframlag |
|
|
HSK sækir um viðbótarframlag til sveitarfélaga á sambandssvæði sínu en styrkur til sambandsins hefur á undanförnum árum verið greiddur í gegnum Héraðsnefnd Árnesinga.
Sveitarfélagið hefur lagt metnað sinn í að styrka aðildarfélög HSK sem starfandi eru í sveitarfélaginu myndarlega og sér sér því ekki fært að verða við erindinu og því hafnað samhljóða.
|
| |
|
|
| 4. |
1011024 - Óskað eftir stuðningi |
|
|
Sótt er um stuðning við Snorraverkefnið sumarið 2011.
Bæjarstjórn sér sér ekki fært að verða við erindinu og því hafnað samhljóða.
|
| |
|
|
| 5. |
1011048 - Erindi SASS vegna málefna fatlaðra. |
|
|
Óskað er eftir því við aðildarsveitarfélög samnings um sameiginlegt þjónustusvæði Suðurlands um þjónustu við fatlaða veiti fulltrúum aðildarsveitarfélaga í stjórn SASS umboð til stjórnar þjónustusvæðisins.
Samþykkt samhljóða.
|
| |
|
|
| 6. |
1011041 - Bréf Thorsil vegna kísilmálmverksmiðju. |
|
|
Lagt fram bréf Thorsil ehf. dags. 18.nóvember s.l. varðandi uppbyggingu kísilmálmverksmiðju í Þorlákshöfn.
Eftirfarand bókun lögð fram og samþykkt samhljóða.
"Bæjarstjórn Ölfuss fagnar áformum Thorsils ehf. um uppbyggingu kísilmálmverksmiðju í sveitarfélaginu og mun vinna með félaginu að lausn þeirra vandamála sem upp kunna að koma. Varðandi mikla flutninga frá hafnarsvæði að iðnaðarsvæði leggur bæjarstjórn til að sá flutningur fari um Suðurstrandarveg og Hafnarskeið í fyrsta áfanga verksmiðjunnar. Fari annar áfangi af stað þar sem gert er ráð fyrir stækkun hafnarinnar mun bæjarfélagið beita sér fyrir því að athafnasvæði fyrir verksmiðjuna flytjist austur fyrir núverandi hafnarsvæði".
|
| |
|
|
| 7. |
1011043 - Samningur við Securitas |
|
|
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að segja upp samningi frá 27. mars. 2007 við Securitas ehf. um farandgæslu. |
| |
|
|
| 8. |
1011037 - Þjónustusamningur við Sveitarfélagið Árborg |
|
|
Lagður fram þjónustusamningur milli Sveitarfélagsins Árborgar sem verktaka og stjórnar þjónustusvæðis um málefni fatlaðra á Suðurlandi um sameiginleg verkefni þjónustusvæðisins sem Árborg mun annast frá og með 1. janúar. 2011.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða þjónustusamninginn en minnir á að eðlilegt sé að endurskoða samninginn að ári þegar reynsla hefur komið á umfang hans.
|
| |
|
|
| 9. |
1011023 - Niðurstaða aðalfundur Suðurlandsvegar ehf |
|
|
Lögð fram fundargerð aðalfundar Suðurlandsvegar ehf. sem sveitarfélagið er hluthafi í þar sem fram kemur að ákveðið hefur verið að slíta félaginu. |
| |
|
|
| 10. |
1010069 - Kynning á starfsemi MSS og ósk eftir samningi um þátttöku í markaðsstofunni. |
|
|
Stjórn Markaðsstofu Suðurlands fer þess á leit við sveitarfélagið að það gangi til samninga um þátttöku í rekstri Markaðsstofu Suðurlands en kostnaður við þáttökuna nemur 350 kr. á ári pr. íbúa.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
"Bæjarstjórn samþykkir að hefja þátttöku í Markaðsskrifstofu Suðurlands frá og með 1. janúar 2011".
Tillagan samþykkt með 5 atkvæðum. Kristín og Stefán sátu hjá.
|
| |
|
|
| 11. |
1011012 - Ósk um breytingu á samningi vegna Bolaöldu. |
|
|
Lagður fram viðauki dags. 27. október 2010. við samning sveitarfélagsins við Bolaöldur ehf. vegna efnistöku í Bolaöldum.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukasamninginn samhljóða.
|
| |
|
|
| 12. |
1011049 - Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars árið 2011. |
|
|
Eftirfarandi tillaga lögð fram og samþykkt samhljóða:
"Bæjarstjórn Ölfuss samþykkir að útsvarshlutfall árið 2011 verði óbreytt, þ.e. 13,28%, en með fyrirvara um að nauðsynlegar lagabreytingar nái fram að ganga á Alþingi um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga og hækkun útsvarshlutfalls um 1,20 prósentustig sem af því leiðir, verður álagningarhlutfallið 14,48% á árinu 2011.
|
| |
|
|
| 13. |
1011040 - Skil fjárhagsáætlunar 2011 |
|
|
Lagt fram bréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins dags. 17. nóvember s.l. þar sem fram kemur að sveitarfélögum landsins ber að ljúka gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 fyrir 31. desember 2010 og skila henni til ráðuneytisins á rafrænu formi sem uppfyllir kröfur þess. |
| |
|
|
| 14. |
1011021 - Fjárhagsáætlun 2011. |
|
|
Fjárhagsáætlun 2011 lögð fram til fyrri umræðu. Bæjarstjóri fór yfir helstu niðurstöður tillögunnar svo helstu forsendur hennar og liði.
Þá voru drög að gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir árið 2011 kynntar
Síðan samþykkt að vísa henni til síðari umræðu sem verður 30. desember. 2010.
|
| |
|
|
| 15. |
1011022 - Stofnun lóðar, skiki úr landi Hvols II, landnr. 172321 |
|
|
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða bókun skipulags-, bygginga- og umhverfisnefndar frá 16. nóvember 2010 þess efnis að tekin verði landspilda úr jörðinni Hvoll II til handa Vegagerðinni. Vegagerðin fyrirhugar að staðsetja mislæg gatnamót á Suðurlandsveginn á þessum stað. |
| |
|
|
| 16. |
0803030 - Efnistaka Jarðefnaiðnaðar ehf úr námu sveitarfélagsins í Lambafelli |
|
|
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða bókun skipulags-, byggingar- og umhverfisnefndar frá 16. nóvember 2010 um að heimila auglýsingu á deiliskipulagi fyrir efnistöku úr Lambafelli, landi sem er innan afréttar Ölfuss. |
| |
|
|
| 17. |
1011027 - Gjaldskrármál hafnarinar |
|
|
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
"Bæjarstjórn samþykkir að hækka gjaldskrá hafnarinnar um 3,5% og hækka aflagjald í 1.4% frá og með 1. janúar 2011".
Samþykkt samhljóða.
|
| |
|
|
| 18. |
1011028 - Fjárhags-og framkvæmdaáætlun 2011 |
|
|
Lögð fram fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs Þorlákshafnar fyrir árið 2011 sem samþykkt hefur verið í hafnarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða fjárhagsáætlun hafnarsjóðs og vísar til annarrar umræðu í bæjarstjórn með þeirri breytingu að til gjalda verði fært framlag til afmælishátíðar kr. 1.500.000.
|
| |
|
|
| 19. |
1011055 - Fundarboð hlutafafundar EFF ehf. |
|
|
Boðað er til hluthafafundar í Fasteign ehf 7. desember. n.k.
Samþykkt samhljóða að fulltrúar sveitarfélagsins á fundinum verði Sigríður Lára Ásbergsdóttir, Sveinn Steinarsson, Kristín Magnúsdóttir, Hróðmar Bjarnason og Guðni Pétursson. |
| |
|
|
| 20. |
1011002F - Bæjarráð Ölfuss - 211 |
|
|
Fundargerðin lögð fram til staðfestingar og samþykkt samhljóða. |
| |
|
|
| 21. |
1011007F - Bæjarráð Ölfuss - 212 |
|
|
Fundargerðin lögð fram til staðfestingar og samþykkt samhljóða. |
| |
|
|
| 22. |
1011004F - Hafnarstjórn Þorlákshafnar - 4 |
|
|
Fundargerðin lögð fram til staðfestingar og samþykkt samhljóða. |
| |
|
|
| 23. |
1011003F - Skipulags-, byggingar- og umhverfisnefnd - 5 |
|
|
Fundargerðin lögð fram til staðfestingar og samþykkt samhljóða. |
| |
|
|
| 24. |
1011038 - 1.og 2. fundur stjórnar þjónustusvæði málefni fatlaðra |
|
|
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
| |
|
|
| 25. |
1011039 - Fundagerð stjórnarfundar SASS dags.12.nóv s.l. |
|
|
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
| |
|
|
| 26. |
1011046 - Fundagerð stjórnar Sorpstöðvar dags. 18.nóv.s.. |
|
|
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
| |
|
|
| 27. |
1011045 - Fundagerð stjórnar SIS 18.nóv. s.l. |
|
|
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
| |
|
|