Fundargerð félagsmálaráðs
Fundur haldinn í félagsmálaráði þann 20. Júní 2011 í fundarsal Ráðhúss Ölfuss. Fundur hófst kl. 17:30.
Formaður setti fundinn og starfsmaður félagsþjónustu ritaði fundargerð í tölvu.
Mættir: Jón Páll Kristófersson formaður, Helena Helgadóttir varaformaður, Íris Ellertsdóttir, Dagbjört Hannesdóttir, Ágúst Örn Grétarsson sem kemur inn fyrir Hörpu Hilmarsdóttur sem boðaði forföll og Eyrún Hafþórsdóttir starfsmaður félagsþjónustunnar.
1.–7. Fjárhagsaðstoð
Fært í trúnaðarmálabók.
8. Barnaverndarmál
Fært í trúnaðarmálabók.
9. Önnur mál
Rætt var um skemmtanahald á Hafnardögum og áberandi unglingadrykkju á skemmtanasvæðinu föstudags- og laugardagskvöld. Beinir félagsmálaráð því til bæjarstjórnar, annarra sem halda skemmtanir í bænum sem og til foreldra og forráðarmanna að betur verði staðið að gæslu og eftirliti með ungmennum á viðkomandi skemmtunum.
Ennfremur skorar nefndin á bæjarstjórn að hún hafi forgöngu um að klára forvarnarstefnu sveitafélagsins sem var unnin á síðasta kjörtímabili.
Fundi slitið 19:05
Jón Páll Kristófersson
Helena Helgadóttir
Íris Ellertsdóttir
Dagbjört Hannesdóttir
Ágúst Örn Grétarsson
Eyrún Hafþórsdóttir

