Fjallskilanefnd

 

Fundur haldinn í fjallskilanefnd 30. mars 2012 á bæjarskrifstofum Ölfuss Hafnarbergi 1 Þorlákshöfn.

Þessir voru mættir:  Snorri Þórarinsson, Halldór Guðmundsson, Páll Stefánsson, Valdimar Jónasson og Kjartan Ólafsson.

 

1.        Gengið frá uppgjöri vegna fjallskila 2011.  Gjaldskráin frá 2010 hækkar um 10% og  akstur hækkaði úr 110 kr. á kílómeter í 120 kr. á kílómeter.

 

·         Í 1. leit voru 110 dagsverk, í annarri leit voru 38 dagsverk og 15 í aukaleitir.

 

·         6 dagsverk í útréttir, 2 dagsverk í réttarstjórn, 4 dagsverk í leitarstjórn, 10 klst. í réttarviðgerð og 1200 km. akstur.

 

 

·         Dagsverk fyrir 1. og 2. leit er 6.600 kr.   Útréttir 3.850 kr. Leitarstjórn og réttarstjórn 11.050 kr. Akstur 120 kr.  Réttarviðgerð 900 kr.  Aukaleitir 8.800 kr.

 

·         Heildarkostnaður fjallskila fyrir 2011 er 1.351.200 

 

·         1/3  er lagt á jarðir og 2/3 á kindur.  Fjöldi kinda var 1748 og gerir það 515 kr. pr. kind.

 

Fjallskilanefnd óskar eftir því við bæjarstjórn að upp verið sett bannskilti við lausagöngu hunda á tímabilinu 1. júní – 1. nóvember ár hvert og skiltið verði sett á klappir hjá Draugatjörn.

Þá hvetur fjallskilanefnd bæjarstjórn  til að taka ákvörðun um framtíð Ölfusrétta við Núpa en lögum samkvæmt verður að vera til lögrétt í sveitarfélaginu.

 

 

Fleira ekki rætt og fundi slitið.

 

Fundarritari:  Kjartan Ólafsson

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál



Útlit síðu: