Fjallskilanefnd

 

 

Fundur í fjallskilanefnd Ölfuss haldinn 26 ágúst 2011 kl 9.00 í Ráðhúsi Ölfuss.

Þessir voru mættir: 
Snorri Þórarinsson formaður, Halldór Guðmundsson, Páll Stefánsson og Valdimar Ó Jónasson sem skrifar fundargerð.


Fyrir var tekið hve margir leitarmenn fari til fjalls haustið 2011 og hverjir það verða. (Sjá á meðfylgjandi fjallseðlum).

Ákveðnir eru smaladagar   17. – 18. september n.k.
Selvogsréttir verða 18. september kl 9.00 og Ölfusréttir 19. september kl 14.00.
Eftirsafn verður 1. og 2. október 2011.

Jón Ögmundsson verður leitarstjóri í miðleit en Davíð Sigmarsson til vara.

 

Í nágrenni Húsmúlaréttar hefur vatn runnið utan farvegar og spillt umhverfi réttarsvæðisins. Haft hefur verið samband við bæjarstjóra Ölfus og Orkuveitu Reykjavíkur um málið.

Fjallskilanefnd áréttar mikilvægi þess að að Orkuveita Reykjavíkur sinni umhverfi Húsmúlaréttar eins og ætlast er til.

Halldór Guðmundsson ætlar að yfirfara girðingar við Húsmúla – og Ölfusréttir.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl 10.30.

 



 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica