5. fundur fræðslunefndar
haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 14. nóvember 2011 og hófst hann kl. 08:10.
Fundinn sátu:
Ásta Margrét Grétarsdóttir, Halldór Sigurðsson, Sigrún Huld Pálmarsdóttir, Katrín Ósk Hannesdóttir, Dagný Erlendsdóttir, Ásta Pálmadóttir, Hrönn Sverrisdóttir, Ingvar Jónsson og Silja Dögg Jensdóttir. Sigurlaug Gröndal og Henný Hafsteinsdóttir boðuðu forföll og Kristín Ólöf mætti ekki.
Fundargerð ritaði: Ásta Margrét Grétarsdóttir, formaður fræðslunefndar.
Dagskrá:
| 1. |
1111028 - Skýrsla skólatjóra |
|
|
Skólastjóri leggur fram skýrslu um starfsemi skólans frá 16. september til 11. nóvember.
Fræðslunefnd lýsir yfir ánægju sinni með þann frábæra árangur sem náðist á samræmdu könnunarprófunum í september.
|
| |
|
|
| 2. |
1111029 - Starfsmannamál í grunnskóla |
|
|
Skólastjóri skýrir frá stöðu starfsmannamála og eru litlar breytingar þar. |
| |
|
|
| 3. |
1111030 - Skólapúlsinn |
|
|
Skólastjóri vill senda umsókn um áskrift að skólapúlsinum. Skólapúlsinn er vefkerfi sem gerir skólastjórnendum mögulegt að fylgjast með líðan, virkni og skóla- og bekkjaranda í sínum skóla á samræmdan hátt.
Fræðslunefnd tekur undir sjónarmið skólastjóra og er sammála því að skólastjóri sendi inn umsókn.
|
| |
|
|
| 4. |
1111031 - Skólahreystibraut |
|
|
Skólastjóri kynnir fyrir nefndarmönnum hugmyndir sem komnar eru fram hjá einstaklingum hér í bæ um að setja hreystibraut við skólalóðina eða á lóð við íþróttahúsið. |
| |
|
|
| 5. |
1111038 - Skýrsla leikskólastjóra |
|
|
Leikskólastjóri leggur fram skýrslu leikskólastjóra um starfsemi leikskólans frá 7. október og fram að 12 desember. |
| |
|
|
| 6. |
1111039 - Fyrirspurn um skipum í byggingarnefnd varðandi byggingu. |
|
|
Leikskólastjóri hvetur fræðslunefndina enn og aftur að berjast fyrir því að eitthvað verði gert varðandi byggingu nýs leikskóla. Það átti að skipa byggingarnefnd á síðasta bæjarstjórnarfundi sem var 27. október. Leikskólastjóri segist vera búin að sjá uppkast að teikningu sem hún átti ekki að sýna, þannig að það er mjög slæmt ef þetta er að stoppa og verða ekki að neinu. Þannig að núna spyr hún hvort fræðslunefndin viti eitthvað um þessi mál.
Formaður fræðslunefndar greindi frá þeirri vinnu sem fram hefur farið undanfarna mánuði vegna fyrirhugaðrar byggingar við leikskólann. Greindi jafnframt frá því að stofnaður verði starfshópur, m.a. með aðkomu foreldra og starfsfólks leikskólans, um viðbyggingu við leikskólann um leið og fyrir liggur hvaða svigrúm verði að finna í fjárhagsáætlun ársins 2012.
|
| |
|
|
| 7. |
1111040 - Aðalnámskrá sem er komin í gagnið |
|
|
Leikskólastjóri hvetur alla nefndarmenn að lesa nýja aðalnámskrá sem komin er í gagnið. Hægt er að nálgast hana á heimsíðu leikskólans bergheimar.is og á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins og benti á að við höfum 3 ár til að koma henni í gagnið. |
| |
|
|
| 8. |
1111052 - Úttekt á leikskólanum |
|
|
Fyrsta heimsókn úttektaraðila var 26. október og komu þrjár konur frá úttektaraðilunum og voru á leikskólanum frá kl. 9-16. Leikskólastjóri er búin að senda ýmis gögn til þeirra eftir þessa heimsókn og eiga þær eftir að koma aftur og ræða við formann fræðslunefndar meðal annars. |
| |
|
|
| 9. |
1111041 - Vistunartími til kl 12 |
|
|
Leikskólastjóri er mjög ósáttur við niðurstöðuna í þessu máli.
Á síðasta fræðslunefndarfundi voru allir sammála um að annað hvort myndu börnin vera sótt kl. 11.30 eða þau myndu borða. Leikskólastjóri lýsir yfir óánægju sinni að þetta mál hafi ekki verið tekið fyrir í bæjarstjórn eða bæjarráði.
Leikskólastjóri bendir á að hlutverk leikskólastjóra skv. aðalnámsskrá er að vera faglegur stjórnandi innan leikskólans og ber því ábyrgð á starfsemi leikskólans.
Fræðslunefnd tekur undir þau sjónamið leikskólastjóra að hún eigi að taka ákvörðun um mál sem þessi.
|
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. .
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________