Fræðslunefndarfundur mánudaginn 22. júní 2009, kl. 16:30 í fundarherbergi Ráðhússins.
Mætt: Sigr. Lára Ásbergsdóttir form., Katrín Ósk Hannesdóttir, Guðbjartur Örn Einarsson, Guðmundar Oddgeirsson, Henný Björg Hafsteinsdóttir, Halldór Sigurðsson skólastjóri, Rebekka Ómarsdóttir fulltrúi foreldrafélags grunnskólans, Ingibjörg Þ. Þorleifsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Ásgerður Eiríksdóttir leikskólastjóri, Ragnhildur Þorsteinsdóttir fulltrúi foreldrafélags leikskólabarna og Þóra Ragnarsdóttir fulltrúi starfsfólks leikskólans.
Jón H. Sigurmundsson og Magnþóra Kristjánsdóttir boðuðu forföll.
Formaður bauð fundarmenn velkomna og gekk síðan til dagskrár.
1. Skýrsla grunnskólastjóra
Grunnskólastjóri svaraði spurningum og málin rædd.
2. Skýrsla leikskólastjóra
Leikskólastjóri svaraði spurningum og málin rædd.
3. Kennsluáætlun 2009 – 2010.
Lögð fram kennsluáætlun næsta skólaárs þar sem gert er ráð fyrir um um 716 kennslustundum. Umræður.
Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leyti.
4. Sjálfsmatsskýrsla grunnskólans.
Skýrsla lögð fram til kynningar. Halldór og Rebekka greindu frá þeirri miklu vinnu sem farið hefur fram í kjölfar úttektar á sjálfsmati skólans.
Umræður.
5. Sumarskipulag leikskólans.
Leikskólastjóri greindi frá sumarskipulagi skólans sem komið hefur verið til að tryggja betri samfellu í starfsemi leikskólans. Skólastarfið fer að mestu leiti fram utandyra yfir sumartímann.
6. Samstarf Hulduheima og Frístundar.
Leikskólastjóri greindi frá samstarfinu hingað til og fyrirhuguðu skipulagi næsta skólaár. Mikil bjartsýni ríkir fyrir þessu samstarfi og eru foreldrar almennt ánægðir með þessar áætlanir.
7. Heimakennsla.
Lögð fram til kynningar skýrsla eftirlitsfulltrúa með heimakennslu í Ölfusi. Umræður.
8. Verklagsreglur leikskólans.
Leikskólastjóri lagði fram tillögu um breytingu á verklagsreglum um að bæta inn ákvæði um uppsögn elstu barna leikskólans.
Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leyti.
9. Starfsmannamál grunnskólans.
Skólastjóri fór yfir breytingar á starfsmannahaldi.
Fræðslunefnd samþykkir það fyrir sitt leyti.
10. Starfsmannamál leikskólans.
Leikskólastjóri fór yfir breytingar á starfsmannamálum.
Fræðslunefnd samþykkir það fyrir sitt leyti.
11. Hönnun leikskólaviðbyggingar og lóðar.
Lagðar fram til kynningar teikningar af hönnun leikskólalóðar.
Fleira ekki tekið fyrir
Fundargerð lesin yfir og samþykkt
Fundi slitið kl. 18:00
Katrín Ósk Hannesdóttir
nefndarritari

