Fræðslunefnd

 

Fræðslunefndarfundur 30.08.2010 kl.16:30

í fundarherbergi Ráðhús Ölfuss

Mættir voru: Ásta Margrét Grétarsdóttir formaður og fræðslunefndarmennirnir, Henný Björg Hafsteinsdóttir, Sigrún Huld Pálmadóttir, Sigurlaug Gröndal, Katrín Ósk Hannesdóttir, Ásgerður Eiríksdóttir leikskólastjóri, Halldór Sigurðsson skólastjóri, Jón H. Sigurmundsson aðst. skólastjóri, Rebekka Ómarsdóttir, fulltrúi foreldrafélags grunnskólans, Ragnheiður María Hannesdóttir, fulltrúi starfsfólks Bergheima, Ragnhildur Þorsteinsdóttir, fulltrúi kennara grunnskólans og Ágústa Ragnarsdóttir fulltrúi foreldrafélags leikskólans.

 

                              Dagskrá:

Formaður setti fund og bauð alla velkomna. Fundarritari kosinn Jón H Sigurmundsson.

 

1.       Skýrsla skólastjóra Halldór fór yfir:

 

a.   Grunnskóladagatal  2010-2011 lagt fram og kynnt.

 

b.  Starfsmannamál Ólína Þorleifsdóttir í ársleyfi, Sigurður Örn Jakobsson smíðakennari hættur,  Hrönn Guðfinnsdóttir í barnsburðarleyfi til 1.mars.  Anna Margrét Smáradóttir nýr starfsmaður svo og Torfi Hjörvar Björnsson ráðinn sem smíðakennari. Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Magnþóra Kristjánsdóttir komnar úr barnsburðarleyfi. Halldór fór yfir starfið í upphafi vetrar og segir allt fara vel af stað. Meðal nýunga má nefna að nemendum í 1 -7 bekk skólans er boðið upp á að kaupa ávexti í morgunhressingu og eldri nemendum boðið síðar ef reynsla verður góð.     

 

c.  Starfsmannanafnalisti kynntur, fjöldi nánast sá sami og síðastliðið ár.

 

d.  Nemendafjöldi hefur heldur aukist frá síðasta ári, eru um 242 .

 

2.     Skýrsla leikskólastjóra Ásgerður fór yfir:

      11 unglingar úr vinnuskólanum unnu með skólanum í sumar mjög ánægjulegt. Gott samstarf við eldri borgara og dagmæður. 

     Starfsmannamál: Liudmila Komarova  óskaði eftir ársleyfi, Ásta Kr. Jensdóttir  og Svala Ósk Sævarsdóttir skipta með sér þeirri stöðu. Daðey Ingibjörg Hannesdóttir óskaði eftir styttri vinnutíma úr 100% í 50 % Helena Jóhannsdóttir leikskólakennari bætti hennar stöðu á sig. Dagný aðstoðarleikskólastjóri óskar eftir lengri vinnutíma á móti er Ásgerður tilbúin að stytta sinn vinnutíma um 10 %. Ingibjörg Aðalsteinsdóttir er í námi í KÍ, tveir starfsmenn hafa sótt um nám í KÍ. Katrín Ósk Sigurgeirsdóttir sótti um leyfi í 3 vikur í ágúst-sept. og eina viku í okt. til að stunda nám í Finnlandi og taka þátt í keppni í Portúgal á vegum ferðamálaskólans sem hún er í, forföllin voru leyst innanhúss og með Bergþóru Jónsdóttur sem hefur leikskólareynslu frá Bifröst.

       Biðlistinn: Biðlisti lengist, margar nýja umsóknir berast, verið er að vinna í því. Stöðugt er verið að lengja vistunartíma barnanna.

 

a.  Árleg ánægjukönnun (2010) lögð fram og kynnt, miklar umræður urðu og þá aðallega um framkvæmd kannana.

 

b. Leikskóladagatal 2010-2011 lagt fram og kynnt.

 

c  Drög að skólanámsskrá Hulduheima 2010-2011 lögð fram og kynnt til yfirlestrar.

 

d. Könnun v/ Hulduheima sent út fyrir næsta fund og tekin fyrir þá.

 

3.     Umsókn um launalaust leyfi Ólína Þorleifsdóttir sækir um árs leifi launalaust erindið afgreitt.

 

4.    Erindi til fræðslunefndar frá Önnu Margréti og Styrmi Geir Hlíðardalsskóla um að fá að sækja skóla í Þorlákshöfn og eru þau reiðubúin að keyra börnin fyrir sanngjarnt verð. Bæjarstjórn hefur samþ.

      

5.      Erindi frá bæjarstjórn um  fæðismál í leikskólanum:

      Á fundi bæjarstjórnar Ölfuss þriðjudaginn 27. apríl sl. var tekin til afgreiðslu fundargerð fræðslunefndar frá 19. apríl sl. Varðandi lið 6 um fæðismál í leikskóla þá samþykkti bæjarstjórn umsögn fræðslunefndar varðandi málið og felur fræðslunefnd að breyta reglum varðandi leikskólann Bergheima sem síðar yrði lagðar fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.

      Formanni falið að klára ganga frá málinu.

 

6. Önnur mál

      a)  Formaður afhenti erindisbréf fyrir nefndarmenn.

    

            b) Úttekt á leik- og grunnskólum á vegum mennta- og    menningamálaráðuneytisins, óskað eftir þremur grunn-  og þremur           leikskólum skólum sem vilja sækja um að vera með. Halldór sagði að        grunnskólinn væri nýleg búinn að fara í sambærilega könnun og       ástæðulaust væri að taka þátt núna. Ásgerður vildi hugsa málið og hafa    samband síðar.

 

            c) Fundartímar nefndarinnar: Halda fundi annan hvern mánuð og  aukafundi ef og þegar með þarf. Fundir annan mánudag í þeim mánuði sem fundir eru og hefjast kl. 16:30. Næsti fundur annan mánudag í  október 2010.

 

            Fundargerð lesin upp og samþ. fundi slitið kl. 18:00

 


Grunnskóli Þorlákshafnar

Tungumál




Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica