Fundur fræðslunefndar
11.04.2011 kl. 08:15
Mættir voru: Henný Hafsteinsdóttir varaformaður, Sigrún Huld Pálmarsdóttir, Katrín Ósk Hannesdóttir, Sigurlaug Gröndal, Sigríður Lára Ásbergsdóttir, sem mætir fyrir Ástu Margréti Grétarsdóttur sem boðaði forföll, Halldór Sigurðsson, G. Ásgerður Eiríksdóttir, Eyrún Hafþórsdóttir, Ragnhildur Þorsteinsdóttir, Svanhildur Helgadóttir og Gyða Sigurðardóttir í stað Ingvars Jónssonar sem boðaði forföll.
Henný Hafsteinsdóttir stjórnaði fundinum og byrjaði á því að bjóða fundarmenn velkomna og var gengið til dagskrár.
1. Grunnskólinn
1.1. Skýrsla skólastjóra Grunnskóla Þorlákshafnar
Halldór sagði frá því hvað gert hefur verið undanfarið og hvað verður um að vera fram að sumarlokum skólans.
1.2. Skóladagatal
Halldór lagði fram dagatal næstkomandi skólaárs og skýrir frá einstaka þáttum. Skóladagatal síðan samþykkt samhljóða.
1.3. Kennslufyrirkomulag næsta skólaárs.
Halldór upplýsti nefndarmenn um stöðu starfsmannamála og hvað verður gert á næstkomandi skólaári til að mæta kröfum um sparnað.
Halldór kynnti fyrirhugaða samkennslu núverandi 7. bekk sem mun skila verulegum sparnaði, málið hefur verið kynnt foreldrum og fjallað um í skólaráði og fengið góðar undirtektir.
Fræðslunefnd samþykkir fækkun kennslustunda úr 730 niður í 700 stundir.
2. Leikskólinn
2.1. Skýrsla leikskólastjóra
Ásgerður fór yfir hvað gert hefur verið á leikskólanum undanfarna mánuði og hvað er framundan í leikskólastarfinu.
2.2. Starfsmannamál
Ásgerður skýrði frá stöðu mála í starfsmannamálum. Nokkuð hefur verið um slys og veikindi og hefur að mestu verið hægt að redda því með tilfærslum meðal þeirra starfsmanna sem fyrir eru en ráðið hefur verið í eina stöðu þar sem einn starfsmaður sagði upp störfum.
2.3. Umsókn leikskólastjóra til sveitarfélagsins um launað námsleyfi frá og með 1. ágúst nk. Lagt fram til kynningar.
2.4. Menntaþing SASS 4. mars sl. Ásgerður sagði frá þinginu sem haldið var í Gunnarsholti. Þingið sóttu af hálfu sveitarfélagsins Halldór, Ásgerður og Sigr. Lára. Fundargerð má nálgast á heimasíðu SASS.
2.5. Viðbragðsáætlun Ölfuss og Fjöldahjálparstöðvarfundur. Vinnan við áætlunina er á lokastigi.
2.6. ECRI – fundur Evrópunefnd gegn kynþáttafordómum. Ásgerður sagði frá heimsókn fulltrúa evrópunefndar til sveitarfélagsins þar sem farið var yfir stöðu málaflokksins. Fundinn sátu af hálfu sveitarfélagsins skólastjórar leikskólans og grunnskólans, félagsmálastjóri, bæjarstjóri, bæjarritari og menningarfulltrúi. Skýrsla um stöðuna verður gefin út í byrjun næsta árs.
3. Næsti fundur fræðslunefndar
Samþykkt er að halda næsta fræðslunefndarfund í ágúst næstkomandi nema ef aðkallandi efni komi upp á.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:30

