3. fundur fræðslunefndar
haldinn í ráðhúsi, mánudaginn 4. júlí 2011 og hófst hann kl. 08:15.
Fundinn sátu:
Ásta Margrét Grétarsdóttir, Henný Björg Hafsteinsdóttir, Katrín Ósk Hannesdóttir, Sigurlaug Berglind Gröndal, Guðlaug Ásgerður Eiríksdóttir, Halldór Sigurðsson, Ingvar Jónsson, Ragnheiður María Hannesdóttir, Ragnhildur Þorsteinsdóttir, Svanhildur Helgadóttir, Ingvi Þór Þorkelsson og Dagný Erlendsdóttir.
Fundargerð ritaði: Ásta Margrét Grétarsdóttir, formaður fræðslunefndar.
Dagskrá:
| 1. |
1107001 - Starfsmannaráðningar |
|
|
Ásgerður gerir grein fyrir tilnefningu í þau störf sem auglýst voru laus til umsóknar. Af þeim sem fengu tilnefningu dró einn umsækjandinn umsókn sína til baka. Fræðslunefnd gerir engar athugasemdir um ráðningarnar og leggur til að Bæjarráð staðfesti þær. Gerð var athugasemd við að umsækjendur um störf eru ekki látnir vita af því að ráðningar eru ekki frágengnar fyrr en Bæjarráð hefur fjallað um þær og samþykkt. |
| |
|
|
| 2. |
1107002 - Niðurstaða könnunar um hádegismat í hádegi |
|
|
Á fundi fræðslunefndar þann 14.02 bað Ásgerður um leyfi til að gera óformlega könnun meðal foreldra hvort þeir vilji kaupa hádegismat fyrir börn sem eru með vistun frá 8-12.
Niðurstaða þeirrar könnunar leiddi í ljós að tveir vilja ekki kaupa mat, einn vill kaupa og einum er alveg sama. Þar með verður engin breyting til að byrja með en eftirleiðis verður þeim sem eru í vistun til 12 boðið upp á að kaupa mat.
|
| |
|
|
| 3. |
1105042 - Viðbragðsáætlanir stofnana sveitarfélagsins. |
|
|
Viðbragsáætlun vegna samfélagsáfalla sem unnin var af VSÓ ráðgjöf í samráði við starfsmenn sveitarfélagsins ásamt bæjarstjóra er lögð fram svo nefndarmenn geti kynnt sér hana.
Fjallað verður um viðbragðsáætlunin á fyrsta fundi eftir sumarfrí og skilað inn ályktun um liðinn sem tilheyrir fræðslusviðinu.
|
| |
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00.
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________